Hvenig á að hekla mörg hjörtu

Keywords: teppi,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig þú heklar mörg hjörtu í sömu umferð, sem t.d. er hægt að nota þegar hekla á teppi.
Fitjið upp þann fjölda lykkja sem er deilanlegur með 7 (+8) með grunnlit. Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Við höfum fitjað upp 28 LAUSAR loftlykkjur (= 4 heil hjörtu) + 8 = 36 loftlykkjur.
HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðul í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni. 1 stuðul í hverja og eina af 33 næstu lykkjum = 34 stuðlar, skiptið um lit (hjartalit 1) þegar draga á bandið í gegn í lokin, klippið frá og snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (hjartaumferð): Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í 1. stuðul, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 5 lykkjur, * í næsta stuðul er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 loftlykkja, 2 stuðlar, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 6 lykkjur *. Endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, en í síðustu endurtekningunni er hoppað yfir 5 lykkjur (í stað 6 lykkjur) og heklið 2 stuðla í 3. loftlykkju frá fyrri umferð. Skiptið yfir í grunnlit þegar draga á bandið í gegn í lokin, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í 1. stuðul. Nú er heklað um loftlykkjurnar í umferðinni að neðan og í stuðlana 2 í umferðinni að neðan þannig: Hoppið yfir 1 stuðul 1 umferð að neðan og 1 stuðul 2 umferðum að neðan, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2 stuðlum. * Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuna í hjarta, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðlana í hjarta og 2 stuðla frá 2 umferð að neðan, 1 stuðull í hvern af 2 næstu stuðlum, hoppið yfir 2 stuðla *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkju í hjarta, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla frá 2 umferð að neðan, 1 stuðul í hvern af 2 næstu stuðlum, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja í 3. loftlykkju, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í næstu loftlykkju, 1 stuðul í hvern af 2 næstu stuðlum. * 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðul í næstu fastalykkju, 2 stuðlar í næsta loftlykkjuboga, 1 stuðul í hvern af 2 næstu stuðlum *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Endið með 2 stuðlum í síðustu lykkju og skiptið um lit (hjartalitur 2) þegar draga á bandið í gegn í lokin, snúið stykkinu og klippið frá. Endurtakið 2-4 umferð að óskaðri lengd.
Við notum DROPS Snow frá Garnstudo í myndbandinu og það er DROPS Cotton Merino frá Garnstudio í litlu prufunni.

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.