Hvernig á að hekla net fyrir fuglamat

Keywords: eldhús, gatamynstur, gæludýr, hringur, taska,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við heklum net sem er hægt að nota fyrir fuglamat, eins og í netinu «Merry Chirping» í DROPS Extra 0-1585. Fyrst er heklaður hringur með stuðlum í botni, eftir það eru heklaðir loftlykkjubogar sem mynda netið. Í lokin eru heklaðar loftlykkjuraðir sem eru fléttaðar saman og mynda hanka/lykkju. Við notum garnið DROPS Snow í myndbandinu.
Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.