Vísbending #3 - Það þarf tvo til að dansa tangó

Nú er komið að ermum!

Passaðu uppá að velja rétta uppskrift þegar þú byrjar með ermarnar. Ef þig vantar aðstoð og kennsluleiðbeiningar þá getur þú byrjað á að skoða leiðbeiningar og kennslumyndbönd sem eru neðst á síðunni.


Barnapeysa

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára

Stærð (hæði í cm): 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett í miðju á 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 28-28-30-30-32-32 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með milligráum Air eða gráum Nepal. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin) þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og síðan er prjónað sléttprjón, skiptið e.t.v. yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4-4-4-4 cm millibili alls 5-7-7-9-10-11 sinnum = 38-42-44-48-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-32-36-40-44-48 cm fellið LAUST af. Prjónið aðra ermi alveg eins.

Tilbúið? Byrjaðu á næstu vísbendingu >>

Viltu sjá alla uppskriftina? Þú finnur hanahér!


Fullorðins peysa

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
ÚTAUKNING (laskalína):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja með garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn – það eiga að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fitjið upp 10-12-12-12-10-8 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á hringprjón 8 með milligráum. Prjónið 1 umferð brugðna frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-19 sinnum = 36-40-42-44-44-46 lykkjur. Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukningar. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Fijtið síðan upp 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 40-44-48-50-52-54 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón með 1 kantlykkju með garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið – lesið ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 7-5-4-3½-3½-3 cm millibili alls 6-8-9-10-10-11 sinnum = 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-40-39-39-39-37 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 30-30-30-30-34-34 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja með garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni. Prjónið svona í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið aðra ermi alveg eins.

Mynsturteikning

=slétt frá réttu, brugðið frá röngu
=brugðið frá réttu, slétt frá röngu

Tilbúið? Byrjaðu á næstu vísbendingu hér >>

Viltu sjá alla uppskriftina? Þú finnur hana hér!


Vantar þig aðstoð?

Hér er listi yfir hjálpargögn sem geta leitt þig áfram þegar þú prjónar bakstykki á barnapeysuna eða fullorðins peysuna:

Athugasemdir (1)

Elisabetta wrote:

Ho un dubbio. Il gettato delle maniche va cominciato al primo ferro dritto come per il pezzo davanti e dietro oppure dopo un giro senza aumenti? Grazie elisabetta

07.12.2017 - 22:22

DROPS Design answered:

Buongiorno Elisabetta. Inizia i gettati al primo ferro diritto, come per il davanti e il dietro. Buon lavoro!

04.01.2018 - 16:21

Skrifaðu athugasemd eða spurningu við þessa vísbendingu

Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.