Vísbending #5 - Nú fær nýi vinurinn okkar andlit!

Nú er komið að því að nýi vinurinn okkar fái andlit. Fylgdu leiðbeiningunum okkar – eða hannaðu þinn eigin kall sem passar við þinn stíl.

Ekki gleyma að þú getur fengið aðstoð í gegnum leiðbeiningarnar okkar og kennslumyndböndum neðst á síðunni.


Barnapeysa

NEF:
Fitjið upp 8 lykkjur með 2 þráðum appelsínugulum Air eða Nepal á prjón 5,5 (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður í fyllingu í lokin). Prjónið síðan með 1 þræði. Prjónið 1 umferð brugðna. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna. Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 6 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna. Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt = 5 lykkjur. Klippið frá (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður síðar í frágang), dragið endann í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Saumið saman hliðina og leggið löngu endana frá uppfitjuninni inn í nefið sem fyllingu. Saumið nefið saman mitt á höfuðið á snjókarlinum.

TREFILL:
Fitjið upp 62 lykkjur á prjón 5,5 með páfuglabláum Air eða djúpsævi Nepal. Prjónið 2 umferðir með sléttprjóni. Fellið af. Dragið hálsklútinn í gegnum peysuna við háls á snjókarli og upp að réttu á hinni hlið á hálsi. Hnýtið hálsklútinn saman með tvöföldum hnút á framhlið.

SNJÓR, TÖLUR OG AUGU:
Gerið 12 hnúta með natur Air eða Nepal fyrir snjó og 5 hnúta með afgang af svörtum Air eða Nepal fyrir tölur og augu þannig: 1 hnútur: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5,5 sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á bandi á þessum hnút = 1 hnútur). Leggið hnútana yfir framstykki á peysu, dragið endana í gegn hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið á röngu – sjá mynd.

=einfaldur hnútur

Fullorðins peysa

NEF:
Fitjið upp 8 lykkjur með 2 þráðum appelsínugulum á prjón 7 (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður í fyllingu í lokin). Prjónið síðan með 1 þræði. Prjónið 1 umferð brugðna. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna. Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 6 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna. Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt = 5 lykkjur. Klippið frá (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður síðar í frágang), dragið endann í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Saumið saman hliðina og leggið löngu endana frá uppfitjuninni inn í nefið sem fyllingu. Saumið nefið saman mitt á höfuðið á snjókarlinum.

TREFILL:
Fitjið upp 62 lykkjur á prjón 7 með turkos. Prjónið 2 umferðir með sléttprjóni. Fellið af. Dragið hálsklútinn í gegnum peysuna við háls á snjókarli og upp að réttu á hinni hlið á hálsi. Hnýtið hálsklútinn saman með tvöföldum hnút á framhlið.

SNJÓR, TÖLUR OG AUGU:
Gerið 12 hnúta með natur fyrir snjó og 5 hnúta með afgang af svörtu fyrir tölur og augu þannig: 1 hnútur: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 8- sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á bandi á þessum hnút = 1 hnútur). Leggið hnútana yfir framstykki á peysu, dragið endana í gegn hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið á röngu – sjá mynd.

=einfaldur hnútur

Tilbúið!

Nú erum við tilbúin með þessa skemmtilegu snjókallapeysu og okkur hlakkar til að sjá þína útfærslu! Sendu inn þínar myndir í okkar DROPS-Along galleri!


Vantar þig aðstoð?

Hér færðu aðstoð við að ljúka við peysuna þína.

Skrifaðu athugasemd eða spurningu við þessa vísbendingu

Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.