Vísbending #5 - Nú gerum við andlitið!

Nú er loksins komið að því að gera andlitið á hreindýrinu. Fylgdu leiðbeiningunum okkar – eða hannaðu þitt eigið hreindýr sem passar þínum karakter. Allt er leyfilegt!

Ekki gleyma að ef þú ert í einhverjum vafa þá finnur þú fullt af kennsluleiðbeiningum og kennslumyndböndum neðst á síðunni, þú getur einnig skrifað okkur línu í dálkinn neðst á síðunni og við reynum að svara eins fljótt og mögulegt er.

Við vonumst svo sannarlega til að þú hafir haft gaman af því að prjóna þessa peysu með okkur – sendu okkur endilega myndir af peysunni þinni full frágenginni í KAL gallery!


Barnapeysa

HÁR:
Festið 3 kögur fyrir hár framan á höfuðið og 3 kögur aftan á höfði.

1 kögur = klippið 2 þræði millibrúnn (litur e) ca 8-9 cm. Leggið 2 þræðina saman, dragið þræðina utan um lykkju efst á höfði á hreindýri á milli beige (litur d) á höfði og millibrúna (litur e) í horni – mitt á sjálfu höfðinu. Hnýtið tvöfaldan hnút. Festið alveg eins kögur hvoru megin við miðju kögrið – sjá mynd.

AUGU:
Gerið 2 augu með millibrúnn (litur e) þannig: 1 auga. Klippið 3 þræði ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5 – sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 auga til viðbótar. Staðsetjið augun framan á höfuðið á hreindýri, akkúrat yfir ljós beige eininguna – sjá mynd. Dragið þræðina í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið þræðina á röngu.

NEF:
Gerið einn dúsk með rauður (litur a) ca 5-6 cm að þvermáli, munið að setja 2 þræði í til að festa dúskinn með. Festið dúskinn framan á höfuðið á hreindýri ca mitt í ljós beige eininguna með því að þræða þræðina í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið á röngunni.

HÁLSÓL AÐ AFTAN (á við um bakstykki með hreindýri):
Heklið loftlykkjuröð ca 14 cm með heklunál 4 með gulum (litur f). Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýrinu á bakstykki. Festið enda á röngu á stykki.

HÁLSÓL AÐ FRAMAN:
Heklið loftlykkjuröð ca 16-18 cm með heklunál 4 með gulur (litur f). Þræðið rautt hjarta eða svipað sem skraut á loftlykkjuröðina og hnýtið hnút þannig að hjartað haldist mitt í loftlykkjuröðinni. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýri á framstykki. Festið enda á röngu á stykki.

Mynsturteikning

= einfaldur hnútur

Fullorðins peysa

NEF:
Gerið einn dúsk með rauður (litur a) ca 7 cm að þvermáli. Klippið dúskinn þannig að hann fái sporöskjulaga form, þannig að það verða ca 7 cm í aðra áttina og ca 5 cm í hina áttina, en munið að skilja eftir 2 þræði til að festa dúskinn með. Festið dúskinn framan á höfuðið á hreindýri ca mitt í ljós beige eininguna – sjá mynd. Dragið þræðina í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið endana saman á röngunni.

AUGU:
Gerið 2 augu með millibrúnn (litur e) þannig: 1 auga. Klippið 3 þræði ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5 – sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 auga til viðbótar. Staðsetjið augun framan á höfuðið á hreindýri, akkúrat yfir ljós beige eininguna – sjá mynd. Dragið þræðina í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið þræðina á röngunni.

HÁR:
Festið 4 kögur fyrir hár framan á höfuðið og 4 kögur aftan á höfði.

1 kögur = klippið 2 þræði millibrúnn (litur e) ca 8-9 cm. Leggið 2 þræðina saman, dragið þræðina utan um lykkju efst á höfði á hreindýri á milli beige (litur d) á höfði og millibrúna (litur e) í horni – mitt á sjálfu höfðinu. Hnýtið tvöfaldan hnút. Festið alveg eins kögur hvoru megin við miðju kögrið – sjá mynd.

HÁLSÓL AÐ FRAMAN:
Heklið loftlykkjuröð ca 16-18 cm með heklunál 4 með gulur (litur f). Þræðið rautt hjarta eða svipað sem skraut á loftlykkjuröðina og hnýtið hnút þannig að hjartað haldist mitt í loftlykkjuröðinni. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýri á framstykki. Festið enda á röngunni á stykki.

HÁLSÓL AÐ AFTAN:
Heklið loftlykkjuröð ca 15 cm með heklunál 4 með gulur (litur f) Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýrinu á bakstykki. Festið enda á röngunni á stykki.

SNJÓR:
Gerið ca 16 hnúta með natur (litur b) fyrir snjó: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5,5 – sjá A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á bandi á þessum hnút = 1 hnútur). Staðsetjið snjó á efri hluta á berustykki, t.d. 4 snjókorn á framstykki, 5 snjókorn á bakstykki, 4 snjókorn á vinstri ermi og 3 snjókorn á hægri ermi. Dragið þráðar enda í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju í peysu og hnýtið þráðar endana saman á röngunni.

Mynsturteikning

= einfaldur hnútur

Tilbúið

Nú höfum við klárað! Við getum ekki beðið eftir því að sjá hvernig þitt hreindýr lítur út. Vertu viss um að nota myllumerkið þegar þú deilir myndunum þínum á netinu: #DROPSChristmasKAL og #RedNoseJumper (ef þú hefur gert fullorðinspeysu) eða #RedNoseJumperKids (ef þú hefur gert barnapeysu) – og ekki gleyma að senda myndirnar þínar á DROPS-Along gallery!


Vantar þig aðstoð?

Hér er listi yfir kennsluleiðbeiningar og kennslumyndbönd til að aðstoða við andlitið á hreindýrinu!

Skrifaðu athugasemd eða spurningu við þessa vísbendingu

Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.