Pink Sandstone |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og axlarsæti. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-37 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 7,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8½ cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-13-21-21-25-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 109-109-121-129-137-145 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki í hálsmáli. Fyrsta prjónamerki: Teljið 19-19-20-22-22-24 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 39-39-41-45-45-49 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 19-19-20-22-22-24 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað í sléttprjóni yfir lykkjur á axlarsæti/ermi og sléttprjóni á bakstykki. Yfir lykkjur á framstykki er prjónað þannig: Prjónið A.1 (= 20-20-21-23-23-25 lykkjur), A.2 (= 19-19-20-22-22-24 lykkjur). Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að allt A.1 og A.2 fái pláss á framstykki, halda útauknar lykkjur áfram í sléttprjóni. A.1x og A.2x er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 20-21-24-24-26-26 sinnum = 189-193-214-225-241-249 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 og A.2). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón og A.1/A.2 hringinn eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 21-22-22-21-21-21 sinnum = 273-281-305-309-325-333 lykkjur. Stykkið mælist ca 24-25-26-25-26-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 56-58-62-60-64-64 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1/A.2 eins og áður. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-5-6-10-11-14 sinnum = 305-321-353-389-413-445 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 27-29-31-33-35-37 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-70-78-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 85-91-99-109-119-131 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-70-78-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 185-201-217-237-261-285 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-10-10-10-12-12 lykkja undir ermum í báðum hliðum. Það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við hvort prjónamerki. Prjónið sléttprjón og A.1/A.2 hringinn eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 169-185-201-221-245-269 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-15-16-14-14 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 39-39-39-39-39-39 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-260-284-308 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 68-70-78-86-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 76-80-88-96-100-104 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 18-17-16-14-14-13 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 12-12-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-68-68-72-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður á röngu þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Ida wrote:
Kan det være en feil i avsnittet Sadelskulderøkning for str L? 20+20+41+29+20=130 masker, men oppskriften sier 121 masker. De to skulderpartiene har ulikt antall masker (20 m etter 2. merke vs 29 etter 4. merke)
12.04.2021 - 17:04DROPS Design answered:
Hei Ida. Ja, her er det nok en taste feil i str. L og XL (skal være 20 masker og ikke 29 masker). Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette, vi vil rette dette asap. mvh DROPS design
26.04.2021 - 13:51Mieke Baras wrote:
Does this mean that there are 2 stitches (with the marker in between these 2 stitches) between each increase when you start increasing before and after each marker for the pass?
07.04.2021 - 14:26DROPS Design answered:
Dear Mrs Baras, correct. You increase now for yoke both before and after all 4 marker-stitches: increase, knit 1 with marker, increase. Happy knitting!
07.04.2021 - 16:12Elin wrote:
Jeg strikker str. M. Når der er taget 2 masker ud på hver ærme 22 gange, skal der så ikke være 64 masker, man starter jo med 20 masker.
05.04.2021 - 11:04DROPS Design answered:
Hej Elin, antallet masker bliver justeret på de forskellige stykker, når du deler arbejdet op. Det vil sige du sætter 70 masker på en tråd til ærmet. God fornøjelse!
21.04.2021 - 15:42Mieke wrote:
Why am I not getting an answer to,my question? Maybe you are too busy?
31.03.2021 - 15:19DROPS Design answered:
Dear Mieke, when all increases for sleeves are done, there are 60 sts; move the markers in the first + in the last of these 60 sts: there are now 58 sts between each of the stitches with a marker. Happy knitting!
06.04.2021 - 10:49Mieke Baras wrote:
Hello, I’m knitting this wonderful sweater but have some problems with the increasing of the sleeves. I am doing medium size, but after 22 increases I get 60 stitches between the sleeve markers, not 58. \r\nThe increasing on sleeves as well as om body show that each sleeve, after increasing 5 times 2 stitches on each sleeve has 70 stitches in total, sonthat suggests that not 58 but 60 stitches are required between the markers of the sleeves? Correct or not?
27.03.2021 - 18:45Sandra wrote:
Hallo, in der Webversion sind die Diagramme noch falsch (fehlende Umschläge). In der mobilen Version sind die Diagramme richtig.
14.03.2021 - 07:22DROPS Design answered:
Liebe Sandra, aktualisieren Sie die Seite in Ihrem Browser und leeren Sie den Cache, so sollten Sie auch in der Webversion die richtige Version finden. Viel Spaß beim stricken!
15.03.2021 - 09:36Anna wrote:
I had the same issue with the pattern as Eva. In my opinion there are missing yarn overs at the beginning of row 1, 19 and 35 A.2 (size S/M), but I see it is the same with other sizes. Mam ten sam problem co Eva. Moim zdaniem brakuje narzutów na początku rzędów 1, 19 i 35 w schemacie A.2 rozmiar S/M, i widzę te same braki w innych rozmiarach
01.03.2021 - 11:27DROPS Design answered:
Dear Anna, thanks for your feedback, our design team will check diagrams again.
01.03.2021 - 13:26Eva Ruisanchez wrote:
Hi! I just casted this wonderful new pattern on and have problems with the number of stiches in the front pattern. Aren’t some yarnovers missing from A2 pattern on the beginning of rows 1, 17, etc? Thanks! Ekezdtem kötni ezt a friss mintát, és érdeklődni szeretnék, hogy az A2 minta első sorában (és az összes ismétlésnél) nem hiányzik véletlenül egy ráhajtás a sor elején? A minta is csak így jön ki, a fotón is így látszik. Köszönöm a választ!
26.02.2021 - 17:13DROPS Design answered:
Dear Mrs Ruisanchez, thanks for your feedback, our designer team will check diagrams again.
01.03.2021 - 13:25Tatjana wrote:
Sehr schön, wird von mir nachgeschickt. Danke DropsTeam.
22.02.2021 - 08:45Else Jensen wrote:
Den vil jeg lave når den kommer
04.02.2021 - 22:09