Baby Leaf Sweater |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með laskalínu og köðlum, ofan frá og niður. Stærð 6 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby & Children 38-9 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Berustykkið er prjónað síðan með köðlum og laskaútaukningu á hringprjóna. Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn á hringprjóna með köðlum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-52 (60-60-68-68) lykkjur á sokkaprjóna/hringprjóna 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Umferðin byrjar ca mitt að aftan. Prjónið síðan stroff þannig: Hálft bakstykki: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 4-4 (4-4-8-8) lykkjur, A.1 (= 5 lykkjur). Hægri ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 6-6 (10-10-10-10) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið). Framstykki: A.2 (= 5 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10 (10-10-14-14) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið), A.1 yfir 5 lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 6-6 (10-10-10-10) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið). Hálft bakstykki: A.2 yfir 5 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, yfir síðustu 6 lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið berustykki þannig: BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Hálft bakstykki: Prjónið 3-3 (3-3-7-7) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 0-1 (2-3-1-3) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 7 lykkjur). Hægri ermi: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4 (8-8-8-8) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4 (0-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Framstykki: A.4 (= 7 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-8 (8-8-12-12) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 0-2 (4-6-2-6) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 yfir 7 lykkjur. Vinstri ermi: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4 (8-8-8-8) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4 (0-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Hálft bakstykki: A.4 yfir 7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 0-1 (2-3-1-3) lykkjur jafnt yfir. Nú hafa verið auknar út alls 8-12 (8-16-8-16) lykkjur jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.3/A.4 (= alls 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu) og 1 lykkja í hverju A.3/A.4 (= 4 lykkjur) = alls 72-76 (80-88-88-96) lykkjur í umferð. Uppslátturinn hvoru megin við A.3/A.4 er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Haldið áfram með A.3 og A.4 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 10-11 (12-12-13-14) sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan) = 144-156 (168-176-184-200) lykkjur. Þegar A.3a og A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.3a og A.4a á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir allar útaukningar mælist stykkið ca 10-11 (12-12-13-14) cm frá prjónamerki. Prjónið áfram eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 21-23 (25-26-29-32) lykkjur eins og áður, setjið næstu 28-30 (32-34-36-38) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið eins og áður yfir næstu 44-48 (52-54-56-62) lykkjur, setjið næstu 28-30 (32-34-36-38) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 23-25 (27-28-27-30) lykkjur eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-108 (116-120-124-136) lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.3/A.4 eins og áður. Lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 13-15 (17-20-23-26) cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 13-15 (17-18-21-24) sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 0-2 (4-3-4-1) lykkjur jafnt yfir, A.3a eins og áður, 6 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir, A.4a eins og áður, 28-32 (36-38-40-46) lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4 (4-6-4-6) lykkjur jafnt yfir, A.3a eins og áður, 6 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir, A.4a eins og áður, 15-17 (19-20-19-22) lykkjur á meðan aukið er út um 4-2 (0-3-0-5) lykkjur jafnt yfir = 112-120 (128-136-136-152) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 12-16 (20-20-24-24) lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.3b yfir A.3a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.4b yfir A.4a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 30-34 (38-42-42-50) lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.3b yfir A.3a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.4b yfir A.4a, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 18-18 (18-22-18-26) lykkjur (þ.e.a.s. það er byrjað og endað með 2 lykkjur slétt). Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 16-18 (20-23-26-29) cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 30-33 (36-40-44-48) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 28-30 (32-34-36-38) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36 (38-40-42-44) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja undir ermi. Það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3-2½ (3½- 5-5½-6) cm millibili alls 3-4 (4-4-4-4) sinnum = 28-28 (30-32-34-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-15 (18-22-25-29) cm frá skiptingu, aukið út 0-0 (2-0-2-0) lykkjur jafnt yfir = 28-28 (32-32-36-36) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 16-18 (21-25-28-32) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (72)
Lieke wrote:
Thank you, I see my misinterpretation. In the beginning it states 6 stitches for the sleeve and 20 for the front and back piece, in the yoke it is 22 stitches for the front and back piece and 4 for the sleeves. It is coming together nicely, really like the cable along the raglan.
23.03.2021 - 19:48Lieke wrote:
I started with the yoke in the smallest size and I think there is a small mistake in the pattern. The front piece of the neck measures 20 stitches in total. The description for the yoke is as follows for the front piece: knit A3, yarn over, knit 8, yarn over, knit A4. A3 and A4 are both 7 stitches plus 8 is 22 stitches. Am I correct that it should says, knit 6-6-(6-6-1-10) ?
21.03.2021 - 14:30DROPS Design answered:
Dear Lieke, pattern is right, look at the stitches number for sleeves: under neck edge, you worked 6 sts for sleeve, when working yoke, the first of these 6 sts will be the last st in A.3, then knit 4 (inc 4) and the 6th st is the first on A.4 for front piece, so that the round is worked over the 52 sts increasing evenly in the stocking stitch sections + increasing in A.3/A.4 + increasing for raglan. Happy knitting!
22.03.2021 - 10:10