DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8778.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Feeling Whimsy

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og vösum. Stærð 3 til 14 ára.

DROPS Baby & Children 38-19
DROPS Design: Mynstur sk-016-bn
Garnflokkur B + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200-250-300 g litur 14, ljós syren
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-125-125 g litur 03, ljós bleikur

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8778.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 10.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat. Lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 5 kantlykkjur að framan og 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 2 lykkjur í hverri útaukningsumferð (1 lykkja í hvorri hlið).

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 2 stakir vasar, þeir eru síðar settir í stykkið. Það eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsi. Þeir eru settir inn á hringprjóninn áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskriftinni (kantar í hálsi eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka).
Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður og það eru prjónaðir vasar. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

VASAR (fyrri helmingur):
Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna/hringprjón 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fellið kantlykkjur af = 20-20-22-22-24-24 lykkjur. Setjið lykkjurnar á þráð. Prjónið annan vasa alveg eins. Geymið vasana og prjónið berustykkið. Seinni helmingur á þessum 2 vösum er prjónaður þegar peysan hefur verið prjónuð til loka og frágangur er gerður í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og prjónið garðaprjón fram og til baka (1. umferð = rétta).
Prjónið garðaprjón í 8-8-8-10-11-11 cm. Klippið þráðinn frá og geymið kant í hálsi til hliðar.
Prjónið annan kant í hálsmáli á sama hátt. Setjið lykkjur á hringprjón 5,5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 36-36-36-46-48-48 lykkjur á sama hringprjón strax eftir kant í hálsmáli og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir 5 lykkjur frá hinum kanti í hálsmáli = 46-46-46-56-58-58 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
LESTU ALLAN KAFLANN UM BERUSTYKKI ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR AÐ PRJÓNA!
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 7 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-18-20-20 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 7 lykkjur eftir í öllum stærðum á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki).
Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 14-16-16-17-17-18 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. JAFNFRAMT í 4. umferð (þ.e.a.s. í 2. umferð frá réttu) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig:
Aukið út í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og eftir alla útaukningu fyrir v-hálsmáli mælist stykkið ca 16-19-19-20-20-21 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 170-186-188-206-210-218 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 27-29-30-31-32-33 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 36-40-40-46-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-48-48-52-54-56 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 36-40-40-46-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-29-30-31-32-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 110-118-124-130-134-142 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist ca 13-14-18-18-21-23 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð (seinni helmingurinn af vasanum er prjónaður hér, aðeins síðar), prjónið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á öðrum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasanum), prjónið þar til 31-31-33-35-37-37 lykkjur eru eftir í umferð, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð (seinni helmingurinn af vasanum er prjónaður hér, aðeins síðar), prjónið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á hinum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 21-22-26-28-31-33 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 120-128-136-144-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-50-54-58-61-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 36-40-40-46-46-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-46-48-54-54-58 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3½-3-3½-3½ cm millibili alls 6-7-7-10-9-10 sinnum = 30-32-34-34-36-38 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 23-25-30-33-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-8-6-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 29-31-36-39-44-48 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið fram og til baka á hringprjóna.
Setjið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á prjón 5,5. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 22-22-24-24-26-26 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 8-8-8-10-10-10 cm, fellið laust af. Prjónið vasa á vinstra framstykki á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið vasana saman innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana að innanverðu á peysuna með nokkrum smáum, fínum sporum í hvert af 2 neðstu hornunum (þetta á ekki að sjást frá réttu á peysunni). Saumið kant í hálsmáli saman mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kantinum og saumið við hálsmál aftan í hnakka.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Debbie Vernell wrote:

I am having a hard time envisioning how the collar pieces will be incorporated into the sweater. I have followed the instructions but the collar pieces seem too short to sew them "together" at the back. They don't seem long enough.

09.11.2021 - 01:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Vernell, this video shows for another pattern (and with short rows that will not be worked here) how to crochet the 2 pieces of collars and the stitches for neck edge in between - the both pieces will then be somewhat stretched to fit the sts along the neck line on back piece. Happy knitting!

09.11.2021 - 13:07

country flag Debbie Vernell wrote:

I can't wait to make this but I have a few questions: 1. Am I right in assuming that I'm combining 2 different color/sizes of yarn? 2. Am I understanding that I can substitute yarns as long as they are in the same yarn "group"? Thanks for the help.

23.10.2021 - 03:41

DROPS Design answered:

Dear Debbie, yes, and yes, but... Yes, the pattern combines two different yarns (different color, structure and thickness). And yes, you can substitute within the same yarn group, but the resulting structure and gauge might be different, so you should aways make a swatch, wash and dry and check it. Happy Stitching!

24.10.2021 - 03:00

country flag Sanna wrote:

Hejsan! De två halskanterna,ska de vara i mitten längst bak,eller ut vid sidorna? 🤔

09.10.2021 - 07:36

DROPS Design answered:

Halskanterna ska sys fast mot halsen på bakstycket, halskanten sys ihop mitt bak i nacken.

13.10.2021 - 18:35

country flag Viktorija wrote:

Hallo liebes Drops Team, diese Jacke ist wunderschön, allerdings würde ich es gerne mit Drops Baby Merino stricken. Könnte ich es durch 2 Fäden Baby Merino ersetzen? Wie viel Wolle bräuchte ich für Größe 146/152 und wie viel für Größe 158/164? Vielen Dank im Voraus für Eure Hilfe. Gruß Viktorija

30.09.2021 - 09:32

DROPS Design answered:

Liebe Viktorija, diese Jacke wurde mit einer Maschenprobe von 15 M x 17 Reihen glatt rechts gestrickt, stricken Sie Ihre Maschenprobe mit 2 Fäden Baby Merino, so wissen Sie genau, ob es so stimmt und Ihnen gefällt. Hier lesen Sie mehr über Garnalternative, Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne damit helfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

30.09.2021 - 10:08

country flag ERIC Evrard wrote:

Bonjour, y a t il possibilité de trouver un modèle qui commence par le bas. Tous les ceux que je regarde et tentant c'est toujours du haut vers le bas. Merci

11.09.2021 - 13:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mr Evrard, tout à fait, vous trouverez ici tous nos modèles qui se tricotent de bas en haut, ajoutez des filtres si besoin. Bon tricot!

13.09.2021 - 08:23

country flag Eva wrote:

Får ikke strikkefastheten til å stemme med den pinnestørrelsen dere setter her. Prøvd flere ganger, og jeg strikker ikke spesielt stramt heller

07.09.2021 - 20:36

country flag Gunnel Folkesson wrote:

Hej, Min fråga är: måste man sticka på rundsticka eller går det bra att sticka på vanliga?

07.09.2021 - 09:29

DROPS Design answered:

Hej Gunnel. Du måste inte sticka på rundsticka, det går bra även med vanliga parstickor (bara du får plats med alla maskor på stickorna). Mvh DROPS Design

07.09.2021 - 09:55

country flag Sand wrote:

Je conseille à celles (ou ceux :) qui souhaitent tricoter Sky associé à un autre fil de ne pas zapper l'échantillon, le mien est toujours plus petit que celui du modèle, alors que je tricote assez souple et n'ai pas de différence notable d'habitude avec d'autres fils. Curieux...

21.06.2021 - 14:33

country flag Sand wrote:

Je conseille à celles (ou ceux :) qui souhaitent tricoter Sky associé à un autre fil de ne pas zapper l'échantillon, le mien est toujours plus petit que celui du modèle, alors que je tricote assez souple et n'ai pas de différence notable d'habitude avec d'autres fils. Curieux...

21.06.2021 - 14:32

country flag Lise-Lotte wrote:

Hej Jeg sidder og kigger alternativer til sky garnet, men er i tvivl om jeg skal kigge på løbelængden eller garn gruppe. Vi har kigget på drops Puna, men der er rigtig stor forskel på løbelængden

23.05.2021 - 16:44

DROPS Design answered:

Hej Lise-Lotte. Se på andra garn i garngrupp B om du vill ha ett alternativ till DROPS Sky (garn i samma garngrupp har samma stickfasthet). Sky är kabelspunnet och därför lättare än t.ex. Puna, så du behöver fler nystan om du byter till Puna. Läs gärna mer om detta här. Mvh DROPS Design

24.05.2021 - 08:00