Buttercream Swirls |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 15, 25, 35 og 45 cm M: 5, 13, 21, 29, 38 og 47 cm L: 5, 13, 22, 31, 40 og 49 cm XL: 5, 14, 23, 32, 41 og 50 cm XXL: 5, 14, 23, 32, 42 og 52 cm XXXL: 5, 13, 21, 29, 37, 45 og 54 cm ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 45) = 3,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Peysan er prjónuð út 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 175-191-199-215-239-263 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 45-45-45-53-53-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 220-236-244-268-292-316 lykkjur. Haldið svona áfram – frá réttu: Stærð S-M-L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 29-37-41 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 29-37-41 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stærð XL-XXL-XXXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 37-49-61 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 37-49-61 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur, fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm fellið af fyrir handveg þannig – frá réttu: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 55-59-61-67-73-79 lykkjur (= hægra framstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-106-110-122-134-146 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur (= vinstra framstykki). Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á þráð fyrir framstykki og prjónið síðan yfir 98-106-110-122-134-146 lykkjur á bakstykki: BAKSTYKKI: = 98-106-110-122-134-146 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-4-5-7 sinnum = 90-94-96-102-108-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 27-25-25-27-29-30 lykkjur, prjónið næstu 36-44-46-48-50-52 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur yfir hver A.1 og 4 lykkjur yfir hvert A.2/A.3, prjónið síðustu 27-25-25-27-29-30 lykkjur í umferð (fækkað er um alls 10-14-14-14-14-14 lykkjur yfir alla kaðla). Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-30-32-34-36-38 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 og 4 lykkjur yfir A.2/A.3 = 21-21-21-21-23-24 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-5-7 sinnum = 51-53-54-57-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir 2 fyrstu mynstureiningar af A.1 (við miðju að framan) og 4 lykkjur yfir A.2, í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 14-16-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð (prjónið þær fyrst). Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 25-25-25-27-29-30 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (í stærð XL, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.3 = 21-21-21-21-23-24 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-5-7 sinnum = 51-53-54-57-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir 2 síðustu mynstureiningar af A.1 (við miðju að framan) og 4 lykkjur yfir A.3, í næstu umferð frá röngu eru fyrstu 14-16-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð (prjónið þær fyrst). Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 25-25-25-27-29-30 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (í stærð XL, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.2 = 21-21-21-21-23-24 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og er prjónað áfram fram og til baka. Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13 lykkjur jafnt yfir = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið síðan þannig: A.4 yfir fyrstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir síðustu 12-14-14-16-16-18 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð, þetta er mitt undir ermi. Haldið áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið út með 3½-3-3-2½-2-1½ cm millibili alls 10-11-12-13-15-16 sinnum = 73-77-81-85-91-95 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-44-44-43-42-40 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki og lykkju með prjónamerki (= 7 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 1-2-2-3-4-6 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 52 cm í öllum stærðum, fellið af 3 lykkjur 1 sinni, JAFNFRAMT sem fellt er af í síðasta skipti, fækkið um 4 lykkjur yfir lykkjur í A.3 og 2 lykkjur yfir lykkjur í hverju A.1. Í næstu umferð eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af. Ermin mælist ca 53 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan frá réttu: Prjónið upp ca 91 til 101 lykkjur í kringum hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði), deilanlegt með 2 + 1 á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. ). Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Vladi Zelina wrote:
Je vous remercie.
07.02.2023 - 11:20Vladi Zelina wrote:
Bonjour 2 mailles envers, A.1 (= 4 mailles), 4 mailles envers Ces mailles à l'envers comment sont tricotées aux rangs d'envers?
07.02.2023 - 10:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Zelina, les mailles tricotées à l'envers sur l'endroit se tricotent à l'endroit sur l'envers (= mailles en jersey envers). Bon tricot!
07.02.2023 - 10:38Claudia wrote:
Salve, è possibile lavorare le maniche dall'alto verso il basso riprendendo le maglie?... non amo molto cucire le maniche!! se sì, anzichè aumentare procedo all'inverso diminuendo? grazie mille! buon lavoro! ;-)
24.10.2021 - 09:39DROPS Design answered:
Buonasera Claudia, può apportare le modifiche che preferisce alla lavorazione delle maniche, e può farsi assistere dal suo rivenditore DROPS di fiducia nella riprogettazione del lavoro. Buon lavoro!
24.10.2021 - 20:12Nicole wrote:
If were decreasing the stitches for the front right piece, are we working away from the garter stitch or to the garter stitch? Which row do we place the 14 stitches on?, starting from the garter border or from the arm hole? Do we bind off from the garter stitch side that will create a shaping? What can I do if my needle is facing the opposite side from where im supposed to start? Right now my back piece is finished and I am starting to bind off for the front right piece.
09.05.2021 - 01:37DROPS Design answered:
Dear Nicole, for the neck shaping, it is best to put the stitches for the neck on the needles on the row where you are knitting AWAY, from the mid front. You can avoidcutting and reattaching the yarn, if you knit the stitches first, and then put them on a stitch-holder / piece of yarn (including the garter stitches for the band), and then in the following rows do the decreases at the front edge according to the pattern. Happy Knitting!
09.05.2021 - 13:48Nicole wrote:
Is A.4 a 3x1 rib?
23.04.2021 - 01:51DROPS Design answered:
Dear Nicole,, A.1 pattern is a "broken" rib, , in 1st row: knit all stitches, in 2nd row: K1, P1. Happy Knitting!
23.04.2021 - 03:01Nicole wrote:
If i am starting the body part after the ribbing, do I start at the bottom of the diagrams like A1? Or do I start with making the cables?
22.04.2021 - 17:04DROPS Design answered:
Dear Nicole, after the ribbing, you should start at the bottom row of the diagrams, according to the descriprions. The first row in each diagram consist only knit stitches. Happy Knitting!
22.04.2021 - 18:20Laura wrote:
Nautic Enchantment
17.01.2021 - 22:37Laura wrote:
Summer Breeze
17.01.2021 - 22:36Laura wrote:
By The Sea
17.01.2021 - 22:35Julie wrote:
Links to the sea
11.01.2021 - 04:50