DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14256.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Manitoba Mingle

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með röndum. Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-32
DROPS Design: Mynstur ai-325
Garnflokkur C + C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 23, kóralrif
150-150-200-200-200-250 g litur 02, hveiti
50-50-100-100-100-100 g litur 07, rúbínrauður
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50-75-75-75-100-100 g litur 07, rauður
50-75-75-75-75-100 g litur 08, ljung

PRJÓNFESTA:
6 lykkjur á breidd með klukkuprjóni og 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.
9 lykkjur á breidd og 12 umferðir á hæðina með sléttprjóni og 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 10: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir klukkuprjón og sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 40 cm fyrir stroff í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14256.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
Litur A: 2 þræðir hveiti Air + 1 þráður ljung Brushed Alpaca Silk.
Litur B: 2 þræðir kóralrif Air + 1 þráður Brushed Alpaca Silk.
Litur C: 2 þræðir rúbínrauður Air + 1 þráður ljung Brushed Alpaca Silk.

LEIÐBEININGAR:
Ef þú ert í einhverjum vafa um hvaða lit þú átt að prjóna næst með þegar prjónað er tveggjalita klukkuprjón með uppslætti eins og útskýrt er að neðan, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á litnum á kantlykkjunni.

EINLITT KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað með lit A – sjá útskýringu í kaflanum RENDUR að ofan):
2 umferðir klukkuprjón gefur 1 sýnilega lykkju á hæðina.
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið (stingið inn hægri prjóni í lykkjuna á vinstri prjóni frá hægri til vinstri) * prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 2 og 3.

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Í LIT A OG B eða LIT B OG C:
2 umferðir klukkuprjón gefur 1 sýnilega lykkju á hæðina.
UMFERÐ 1 (= rétta og prjónað er með lit B):
1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Skiptið um lit og lesið LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2 (= rétta og prjónað er með lit A eða C):
1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu og skiptið um lit.
UMFERÐ 3 (= ranga og prjónað er með lit B):
1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Færið síðan til baka lykkjurnar á hringprjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Skiptið um lit.
UMFERÐ 4 (= ranga og prjónað er með lit A eða C):
1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu og skiptið um lit.
Endurtakið umferð 1-4.

ÚRTAKA (á við um í hliðum á ermum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er að neðan.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 kantlykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og prjónað er neðan frá og upp. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir frá garnflokki C).
Framstykkið og bakstykkið er prjónað í röndum með einum lit og tveggja lita klukkuprjóni með uppslætti. Allur lykkjufjöldinn sem gefinn er upp í uppskrift er talinn án uppsláttar í klukkuprjóni, þar til uppslátturinn er talinn sem 1 lykkja saman með lyftu lykkjunni.
Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 31-33-35-39-41-45 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum hveiti Air + 1 þræði ljung Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Prjónið síðan þannig:
Prjónið EINLITT KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 19-20-20-21-22-22 cm, prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Í LIT A OG B – sjá útskýringu að ofan og lesið LEIÐBEININGAR!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-2-2-4-4-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg (mundu að uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja) = 27-29-31-31-33-33 lykkjur eftir. Haldið áfram með tveggja lita klukkuprjón með uppslætti eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 38-40-40-42-44-44 cm, prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Í LIT B OG C – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fellið af miðju 5-5-7-7-7-7 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 9-10-10-10-11-11 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 31-33-35-39-41-45 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum í litnum hveiti Air + 1 þræði í litnum ljung Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Prjónið síðan þannig:
Prjónið einlitt klukkuprjón með uppslætti á sama hátt og á bakstykki.
Þegar stykkið mælist 19-20-20-21-22-22 cm, prjónið tveggja lita klukkuprjón með uppslætti í lit A og B á sama hátt og á bakstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-2-2-4-4-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 27-29-31-31-33-33 lykkjur eftir. Haldið áfram með tveggja lita klukkuprjón með uppslætti eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 38-40-40-42-44-44 cm, prjónið tveggja lita klukkuprjón með uppslætti í lit B og C.
Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið miðju 5-5-7-7-7-7 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 9-10-10-10-11-11 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til 1 lykkja er eftir í umferð þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt. Framstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur.

ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið upp frá réttu og prjónið upp 38-40-42-44-44-46 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum í litnum kóralrif Air + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir).
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 3-3-3-7-7-10 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Bilið á milli hæðar fram að prjónamerkjum á að vera jafn langt og botninn á handveg (þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).
Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 12-14-14-16-14-16 sinnum, fækkið lykkjum til skiptis í lok og í byrjun umferðar = 26-26-28-28-30-30 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 46-46-45-42-41-39 cm frá prjónamerki. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 50-50-49-50-49-50 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem voru sett í ermar eiga að passa við hliðar á framstykki og bakstykki. Saumið saum neðan á ermi og hliðarsauma í eitt – byrjið neðst á ermi og saumið upp að handveg, saumið síðan niður að uppfitjunarkanti á framstykki og bakstykki – saumið í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði flatur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 40 til 48 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður Air + 1 þræði í litnum ljung Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff hriginn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið af að stroffið passi fallega yfir lykkjur mitt framan í hálsmáli með slétta lykkju yfir slétta klukkuprjónslykkju og brugðna lykkju yfir brugðna klukkuprjónslykkju.
Þegar kantur í hálsi mælist ca 3 til 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin. Leiðrétting á úrtöku í ermi - allar stærðir.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Anne wrote:

Hallo, ich verstehe die Ärmelabnahme so, dass (in Größe S) alle 2cm eine Masche abgenommen werden soll. Dann komme ich aber erst nach 14x auf die angegebene Maschenzahl, die erreicht werden soll. Heißt das, dass alle 2cm 2 Maschen abgenommen werden, am Anfang und am Ende der Reihe? Danke für eine Antwort! LG Anne

29.03.2024 - 14:16

DROPS Design answered:

Liebe Anne, es wird insgesamt 12-14-14-16-14-16 Mal zugenommen, abwechslungswise am Anfang und am Ende der Reihe, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!

05.04.2024 - 16:43

country flag Anne wrote:

Hallo, wenn bei Rücken- und Vorderteil an den Schultern nur noch rechts gestrickt werden soll, ist das dann Farbe B oder Farbe C? Und werden die beiden Schulterseiten, die noch im Patent gestrickt werden, am Halsausschnitt auch Randmaschen gearbeitet? Vielen Dank

03.01.2024 - 21:38

DROPS Design answered:

Liebe Anne, stricken Sie mit Farben B (die Farbe der rechts gestrickene Maschen, von der Vorderseite gesehen). Viel Spaß beim stricken!

04.01.2024 - 08:27

country flag GERARD wrote:

Modele Manitoba Mingle DOS Côtes anglaises bicolores : 1er rang sur l’endroit coloris B OK 2ème rang sur l’endroit coloris A : *1 jeté, glisser 1 maille à l’ENVERS :ce n’est pas possible elle est à l’endroit. Je ne comprends pas comment faire. Merci de votre aide

05.01.2023 - 19:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gerard, le 2ème rang se tricote aussi sur l'endroit, et la 1ère m des côtes anglaises a été tricotée (ensemble à l'endroit avec son jeté) au début du 1er rang sur l'endroit en coloris B, cette maille va maintenant être glissée en faisant 1 jeté avec le coloris A/C . Cette vidéo montre comment tricoter des côtes anglaises bicolores: on tricote alternativement 2 rangs sur l'endroit et 2 rangs sur l'envers. Bon tricot!

06.01.2023 - 08:51

country flag Carolin wrote:

Hallo, ich stricke gerade die Ärmelabnahmen. Soll ich in Größe M in jeder Reihe 2 M abnehmen sodass ich nach 7 Mal auf 26 Maschen komme oder in jeder Reihe nur eine Masche sodass ich erst nach 14 Mal auf 26 Maschen komme? Vielen Dank für die Hilfe im Voraus

08.10.2022 - 15:04

DROPS Design answered:

Liebe Carolin, in M sollen Sie die Abnahmen in jeder 2. cm stricken ; messen Sie 2 cm bei der Ärmel so wissen Sie wieviele Reihen Sie dafür brauchen. Viel Spaß beim stricken!

10.10.2022 - 08:45

country flag Marie Garpefjäll wrote:

När jag har stickat storlek xl så mäter tröjan 44 cm på bredden längst ner. Jag har använt stickor 10. Jag brukar ha storlek Medium. Nu får jag börja om igen? Det stämmer ju inte alls med storlek?? Besviken 😢

17.09.2022 - 15:06

DROPS Design answered:

Hei Marie. Arbeid i helpatent er meget tøyelig. Om du strikker i str. XL skal du legge opp 39 masker og i følge strikkefastheten og målskissen skal dette bli ca 65 cm. Anbefaler deg å strikke en prøvelapp for å sjekke strikkefastheten din. Om det kun er oppleggskanten som strammer, prøv å legg opp litt løsere. mvh DROPS Design

19.09.2022 - 11:37

country flag Chokolade Hennings wrote:

Hej, jeg har et spørgsmål om strikkefastheden i patent. Jeg kan overhovedet ikke komme i nærheden af 10 cm med 6 m. Jeg har prøvet p 8-9-10-12. I opskriften står p 10 som vejledende, men jeg har for mange m på de 10 cm på alle de forskellige pindestørrelser. Jeg tæller både ret og vrang som 1 m , men er nu kommet i tvivl om det er rigtigt og jeg måske kun skal tælle retmaskerne ,for så passer det fint med p 9. Med venlig hilsen Charlotte Hennings

28.09.2021 - 18:37

DROPS Design answered:

Hej Charlotte. Du ska telle både ret og vrang, men det kan vara litt vanskligt att måle stickfasthet i patent eftersom det är så elastiskt. Om du får riktig stickfasthet i glattstrik så ska det gå fint. Mvh DROPS Design

05.10.2021 - 13:54

country flag Pia Hansen wrote:

Jeg kunne godt tænke mig at strikke den i grønne farver, hvilke vil I anbefale ? Mvh Pia

19.09.2021 - 19:28

DROPS Design answered:

Hej Pia. Det är väldigt individuellt vilka nyanser man önskar, men vi har fina färger i skogsgrön och salvia både i DROPS Air (nr 30 och 19) och DROPS Brushed Alpaca Silk (nr 21 och 11 ) som du skulle kunna använda. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 11:10

country flag Lene Sørensen wrote:

Jeg har købt garn til denne trøje i grønne farver, men kan ikke finde ud af hvordan jeg skal mixe dem. kan I være behjælpelig? fredag på 24626510

26.08.2021 - 19:02

DROPS Design answered:

Hei Lene. Det er litt vanskelig, vi vet jo ikke hvilken grønnfarger du har kjøpt. Men farge 23 korallrev er lysere enn farge 07 rubin rød. Da kan du erstatte farge 23 med den lyseste grønnfargen og farge 07 med den mørke grønn fargen. Kid-Silk farge 07 rød og farge 08 lyng har ca samme styrke, så da må du velge de fargene du syns passer best. mvh DROPS design

27.08.2021 - 14:04

country flag Pia Wettergren wrote:

Hvilket garn kan jeg skifte Air med ?

09.08.2021 - 21:59

DROPS Design answered:

Hei Pia, Du kan velge hvem som helst garn fra gruppe C (samme gruppe som Air). Det er lurt å strikke en prøvelapp uansett, for å sjekke strikkefastheten før du begynner; justere pinnestørrelsen hvis nødvendig. God fornøyelse!

10.08.2021 - 08:20

country flag Mia Fahlén wrote:

I själva beskrivningen verkar det som om det går åt 4 resp3 resp 1 resp 3 resp 3 nystan. När jag ska beställa ett kit i stl M verkar det bli färre nystan. Vilket är rätt?

27.07.2021 - 14:56

DROPS Design answered:

Hej Mia, ja det stemmer som du skriver i str M. Hvad mener du med at det bliver færre nystan.... Hvor bliver det færre... ?

05.08.2021 - 14:31