DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Heart on Fire

Prjónaður toppur í DROPS Safran. Stykkið er prjónað með gatamynstri og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 223-27
DROPS Design: Mynstur e-316
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS – S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-150-200-200 g litur 59, rauður leir

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5: Fyrir hlýra.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 174 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 17,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 16. og 17. hverja lykkju og 17. og 18. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og v-hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
FRÁ RÉTTU:
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju í garðaprjóni og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman.
FRÁ RÖNGU:
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju í garðaprjóni, prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í útaukningsumferð).
Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til þær ganga jafnvel upp í mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg.
Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað, hvort fyrir sig. Framstykkið skiptist mitt að framan fyrir v-hálsmáli og bæði stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls, síðan er hlýrinn á öxl prjónaður á hvoru framstykki. Bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Hlýrar á öxl frá framstykki er saumað í lokin á bakstykkið.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 174-196-216-244-272-298 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 1½ til 2 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-11-11-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 165-185-205-231-259-283 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 83-93-103-115-129-141 lykkjur. Það eru 82-92-102-116-130-142 lykkjur eftir í umferð fyrir bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 7-2-7-9-6-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 20-30-30-30-40-50 lykkjur (= 2-3-3-3-4-5 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2 (= 29-29-29-37-37-37 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 20-30-30-30-40-50 lykkjur (= 2-3-3-3-4-5 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið 14-4-14-18-12-4 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum), prjónið A.1 yfir næstu 60-80-80-90-110-130 lykkjur (= 6-8-8-9-11-13 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4 (= 8 lykkjur) og endið með 7-2-7-9-6-2 lykkjur sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-5-5½-5½-6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 181-201-221-247-275-299 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-24-25-25-26-27 cm – stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að gatamynstrið sé prjónað frá röngu þegar stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki).
Prjónið nú 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 8-10-12-16-20-26 lykkjurnar í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 4-5-6-8-10-13 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Eftir 4 umferðir garðaprjón, fellið af fyrir handveg og v-hálsmáli, þ.e.a.s. næsta umferð sé prjónuð þannig: Fellið af 3-4-5-7-9-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-46-50-54-59-62 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 1 lykkju (= mitt að framan), prjónið 42-46-50-54-59-62 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 6-8-10-14-18-24 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir lykkjur á bakstykki þar til 3-4-5-7-9-12 lykkjur eru eftir í umferð og fellið af síðustu 3-4-5-7-9-12 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.
Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 84-92-100-110-120-126 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 14-16-18-20-22-22 sinnum í hvorri hlið = 56-60-64-70-76-82 lykkjur eftir. Eftir síðustu úrtöku, prjónið 1 umferð til baka frá röngu eins og áður.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 42-46-50-54-59-62 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA-2.
HANDVEGUR:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 13-14-15-17-18-20 sinnum.
V-HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 24-27-30-32-36-37 sinnum.
Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 5 lykkjur eftir á prjóni fyrir hlýra á öxl. Prjónið hlýrann eins og útskýrt er að neðan.

HLÝRI Á ÖXL:
Skiptið yfir á 2 stykki sokkaprjóna 2,5 (setjið lykkjur á annan sokkaprjóninn og prjónið með hinum). * Færið lykkjurnar til að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið 5 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til hlýrinn á öxl mælist ca 18-18-19-20-21-20 cm (10-10-11-11-12-11 cm af þessari lengd tilheyrir framstykki, afgangurinn tilheyrir bakstykki – hlýrinn á öxl er saumaður niður að bakstykki). Klippið þráðinn frá, dragið þráðinn í gegnum 5 lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 42-46-50-54-59-62 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA-2.
V-HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 24-27-30-32-36-37 sinnum.
HANDVEGUR:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 13-14-15-17-18-20 sinnum.
Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 5 lykkjur eftir á prjóni fyrir hlýra á öxl. Prjónið hlýrann á sama hátt og á vinstra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hlýrana á öxl við bakstykkið yst í hvora hlið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.05.2021
Mynsturteikning A.2 hefur verið leiðrétti í stærð: XS-S-M og L-XL-XXL

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Heart on Fire

@SarahPoundsKnits

Heart on Fire

Solveig, Norway

Heart on Fire

Esperanza NA, Spain

Heart on Fire

Marianna, Italy

Heart on Fire

Mari, Spain

Heart on Fire

Ali, France

Heart on Fire

villahaukkasuo, Montenegro

Heart on Fire

Melanie, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (96)

country flag Manon wrote:

Bij linker / rechter voorpand armsgat moet om de andere naald verminderd worden. Moet deze mindering aan het begin of aan einde van de naald plaatsvinden?

13.07.2022 - 12:41

DROPS Design answered:

Dag Manon,

Dat maakt niet uit, als je het maar steeds op dezelfde manier doet, dus steeds of aan het eind of aan het begin van de naald.

17.07.2022 - 12:23

country flag Deb wrote:

Bonjour, Je suis en train de réaliser ce top en taille S. Je suis à 5 cm, au moment de faire les augmentations. Je ne comprends pas à partir de quand il faut ajouter un motif a1. Les mailles d'augmentation doivent e tricoter en jersey et à 23 cm ajouter un motif ? Merci pour votre aide

18.06.2022 - 15:38

DROPS Design answered:

Bonjour Deb, à 5 cm vous augmentez 2 m de chaque côté - cf AUGMENTATIONS (côtés top): = autrement dit, vous les tricotez d'abord en jersey jusqu'à ce que vous ayez suffisamment de mailles pour les tricoter en point fantaisie A.1. - vous augmentez 4 fois tous les 5 cm (dernière augmentation à 20 cm). À 24 cm (en S - sinon 23 en XS), ajustez pour que le tour suivant soit un tour impair car vous allez préparer les emmanchures, et risquez autrement d'être décalée quand vous continuerez chaque partie séparément (le point ajouré doit être sur l'endroit). Bon tricot!

20.06.2022 - 07:47

country flag Michèle wrote:

Bonjour Ce modèle est un petit bijou. Quel plaisir de le tricoter. Merci pour vos explications détaillées. A chaque modèle je regarde toutes les petites vidéos jointes et je découvre toujours une nouvelle technique : par exemple tricoter deux mailles envers torses. Je me régale

02.06.2022 - 09:25

country flag Gina Tricarico wrote:

Non riesco a capire dove lavorare le maglie legaccio. Dal disegno non si evince. Come ho già scritto, non sto lavorando con i ferri circolari

01.06.2022 - 16:48

DROPS Design answered:

Buonasera Gina, in quel punto deve lavorare a maglia legaccio sulle 4-5-6-8-10-13 maglie a ogni lato di entrambi i segnapunti. Buon lavoro!

01.06.2022 - 21:25

country flag Gina Tricarico wrote:

Lavorare 2 coste a MAGLIA LEGACCIO – leggere la spiegazione sopra, sulle 8-10-12-16-20-26 maglie centrali a ogni lato (cioè lavorare 4-5-6-8-10-13 maglie a maglia legaccio a ogni lato di entrambi i segnapunti – lavorare le altre maglie come prima. Io sto lavorando con i ferri lineari

01.06.2022 - 12:17

DROPS Design answered:

Buongiorno Gina, potrebbe spiegarci meglio il suo problema? Buon lavoro!

01.06.2022 - 15:28

country flag Florence wrote:

Bonjour! Je suis à l'étape de tricotter le dos séparément. Je dois continuer le point de fantaisie, mais je n'arrive pas à savoir où j'en suis dans les diagrammes (A1, A3, A4) et ce tout en faisant les diminutions. Possible de m'aider? Je fais la taille S et je suis présentement à 92 mailles. Merci d'avance!

31.05.2022 - 05:41

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, le point ajouré doit se faire sur l'endroit, pas sur l'envers; regardez bien où se trouvent vos jours des rangs précédents et ajustez pour toujours avoir 9 rangs jersey entre chaque rang ajouré et toujours le même nombre de mailles entre chaque motif ajouré pour qu'ils soient bien alignés - utilisez des marqueurs si besoin pour mieux vous repérer. Bon tricot!

31.05.2022 - 08:40

country flag Leonie wrote:

Hello, I'm having a hard time understanding how to work the charts. In the instructions for the body it goes through A1, A2,A3, and A4, it then says to repeat this until you have 5cm. My confusion is once you start the next repetition, do you begin at the beginning of the charts or were you left off previously?

23.05.2022 - 20:31

DROPS Design answered:

Hi Leonie, You start all the diagrams from the bottom, working right to left, staying on the first row until you have completed the round (even though you work a diagram (A.1 for example) more than once. On the next round you work row 2 in all diagrams . Happy knitting!

24.05.2022 - 06:57

country flag Kim wrote:

Thank you

13.05.2022 - 01:50

country flag Christine wrote:

Is there a written pattern. I have a brain injury and can't figure out the charts

08.05.2022 - 10:21

DROPS Design answered:

Dear Christine, our patterns are only available as published, with both written instructions and graphs. To better understand knitting charts, we recommend reading the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19 Happy knitting!

08.05.2022 - 19:39

country flag Fey wrote:

Hallo! I make this pattern in straight needles. How do I increase? In the front piece I make 1 yo after 2 sts at the beginning of the row and 1 yo before the last 2 sts at the end of the row? I do the same for the back piece? Please help. Thank you!

11.04.2022 - 08:41

DROPS Design answered:

Dear Fey, when you work in the round with straight needles, don't forget to add an edge stitch on each side for the seam. You can increase as you are explaining: 1 YO after 2 sts at the beginning of the row and 1 YO before the last 2 sts at the end of the row. You can work this way for the back as well. Happy knitting!

11.04.2022 - 22:36