DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Swept Away Top

Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað með tvöföldum kanti í hálsmáli og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-11
DROPS Design: Mynstur cl-111
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-400-400-450 g litur 34, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og kaðla.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 24 lykkjur), deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 3.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Að lokum er prjónaður stroffkantur í kringum báða handvegi og tvöfaldur stroffkantur í kringum hálsmál.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 172-188-204-228-252-276 lykkjur á hringprjón 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 86-94-102-114-126-138 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið 1 umferð sléttprjón.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 18-22-26-26-32-38 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 6-6-6-12-12-12 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2 (= 38 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 6-6-6-12-12-12 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 18-22-26-26-32-38 lykkjur sléttprjón, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-4½-5-5-5½ cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 188-204-220-244-268-292 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé oddatala í umferð A.1 til A.3 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa kaðli frá röngu þegar framstykki og bakstykkið er prjónað fram og til baka): Byrjið 3-4-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-4-5-6-7-8 lykkjur á undan næsta prjónamerki (= framstykki), fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður út umferðina (= bakstykki). Prjónið síðan bakstykki og framstykki fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 88-94-100-110-120-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 3-4-4-4-6-6 sinnum og 1 lykkja 5-5-4-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 60-62-64-70-72-76 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir miðju 26 lykkjurnar – sjá ÚRTAKA = 52-54-56-62-64-68 lykkjur.
Í næstu umferð eru felldar af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 8-9-9-12-12-14 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem fækkað er um 0-0-0-1-1-1 lykkju = 8-9-9-11-11-13 lykkjur eftir. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 88-94-100-110-120-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 3-4-4-4-6-6 sinnum og 1 lykkja 5-5-4-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 60-62-64-70-72-76 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 26 lykkjurnar – munið eftir ÚRTAKA = 54-56-58-64-66-70 lykkjur.
Í næstu umferð eru miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 8-9-9-12-12-14 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem fækkað er um 0-0-0-1-1-1 lykkju = 8-9-9-11-11-13 lykkjur eftir. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

KANTUR Á ERMUM:
Byrjið frá réttu í botni á handveg og prjónið upp ca 96 til 116 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Cotton Light – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Prjónið hinn kant á ermi alveg eins.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 88 til 100 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5 með Cotton Light – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsi verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Ina wrote:

Waarom bij de dubbele halsboord 1 recht , 2 averecht. De andere boorden zijn 1 recht, 1 averecht

21.05.2024 - 15:48

country flag Lara wrote:

Guten Tag, ich würde gerne dieses Top als eher winterlichten Pullunder stricken. Dazu habe ich zwei Fragen: 1.) Kann ich die Halsblende auch noch höher stricken und umschlagen? (als hoher Kragen/Rollkragen) 2.) Kann ich das Top insgesamt länger machen? Wie verfahre ich dann mit den Zunahmen, soll ich sie einfach "strecken", d.h. z.B. statt alle 4cm, alle 6cm? Vielen Dank!

21.04.2023 - 22:41

DROPS Design answered:

Liebe Lara, sicher können Sie dieses Top als winterlichten Pullunder stricken, aber leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen bzw umrechnen; gerne kann Ihnen aber Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2023 - 09:32

country flag Talia D'Angiò wrote:

Molto bello. Da fare

04.06.2022 - 16:07

country flag Dori wrote:

Hola.Este patron lo he realizado con agujas rectas,tengo que empezar a cerrar para las sisas a partir de cuando ya estan separados el delantero y la espalda o cerrar tambien 3 puntos a cada lado? Gracias.

06.04.2022 - 00:52

DROPS Design answered:

Hola Dori, supongo que al trabajar las partes por separado has añadido un punto extra a cada lado para la costura. Por lo tanto, tienes que cerrar 4 puntos a cada lado (si no, cierra 3). Cerrar para las sisas se hace tanto en redondo como con agujas rectas, como indica el patrón.

06.04.2022 - 20:14

country flag Kathryn wrote:

Hi, I have just separated for the armholes and working on the back with 100 sts (size L), if I cast off at the beginning of each row I am only casting off 18 sts, where I should only be left with 64 sts. Should I be decreasing at the start and end of each row for the armholes rather than casting off at the beginning only. Thanks so much.

31.01.2022 - 11:08

DROPS Design answered:

Dear Kathryn, you should cast off at the beginning of every row on each side, ie both from RS and from WS: 3 sts at the beg of next 4 rows (= 3 sts 2 times on each side), 2 sts at the beg of next 8 rows (= 2 sts 4 times on each side) and 1 st at the beg of next 8 rows (= 1 st 4 times on each side) = 6+8+4 = 18 sts on each side. Happy knitting!

31.01.2022 - 17:34

country flag Inge Grete Kern wrote:

Jeg vil gerne vide vedr. Sammensygning af skulder hvor de sidste to pinde er ret, og I skriver “sy skuldersømmene indenfor aflukningskanten hvordan det gøres. Mvh.

08.11.2021 - 13:40

DROPS Design answered:

Hej Inge, du finder en video som viser hvordan du kan sy skuldersømmen nederst i opskriften :)

09.11.2021 - 15:34

country flag Luciana Pignatelli wrote:

Nella versione italiana, nella descrizione per il collo doppio c'è scritto che il n. delle maglie deve essere divisibile per 2 ma il punto indicato per le coste (1 maglia diritta, 2 maglie rovescio) è divisibile per 3... Nel davanti, alla fine delle spalle, c'è scritto di lavorare 1 ferro diritto sul diritto e di intrecciare a diritto sul diritto mentre nel dietro è indicato di lavorare 1 ferro diritto sul rovescio e di intrecciare a diritto sul diritto.

30.08.2021 - 01:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Luciana, per le coste sul collo abbiamo segnalato al settore design (c'era un errore nella traduzione inglese) e abbiamo corretto il testo italiano. mentre per quanto riguarda il davanti, abbiamo corretto il testo italiano. Grazie per la segnalazione! Buon lavoro!

30.08.2021 - 11:53

country flag Els wrote:

Bij het opzetten van het genoemde aantal van 252 steken met Drops cotton light op pen 3,5 , krijg ik een veel grotere omvang dan die staat in het patroon (2×58). Kunt u mij laten weten of het aantal van 252 steken wel correct is? Bij voorbaat hartelijk dank. Met vriendelijke groet , Els

13.07.2021 - 19:07

DROPS Design answered:

Dag Els,

Ja, het aantal p te zetten steken zoals aangegeven in het patroon is juist. Heb je een proeflapje gemaakt om te controleren of de stekenverhouding overeenkomt met het patroon? Er worden trouwens vanwege de kabel wel iets meer steken opgezet, omdat de kabels ervoor zorgen dat het werk samentrekt in de breedte.

20.07.2021 - 15:38

country flag IG Kerrn wrote:

Jeg strikker opskriften Swept Away Top, jeg er i tvivl vedr. Mønstret om den første linie som tilsyneladende er glatstrikning hele vejen rundt om den skal gentages (repeteres) for hver 8. Gang?

06.07.2021 - 11:25

DROPS Design answered:

Hej, den første omgang i glatstrik, strikker du kun én gang. Men i diagrammet gentager du alle 8 pinde (hvor 1. og 5.omgang også er glatstrik) :)

06.07.2021 - 15:25

country flag Erica wrote:

Wunderschön und auch die Farbe :-)

08.01.2021 - 10:47