DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
DROPS Super Sale

White Birch

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með klukkuprjónslykkjum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-17
DROPS Design: Mynstur w-831
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-400-400 g litur 16, hvítur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: Lengd 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 1 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Aukið út hvoru megin við miðjulykkju þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið miðjulykkju eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 4 lykkjur garðaprjón.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig (á við um stærð XXL og XXXL):
Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur garðaprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Toppurinn er prjónaður í hring á hringprjón upp að handveg. Lykkjur eru felldar af í hvorri hlið fyrir handveg og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.
Það er gert lítið op í hnakka á bakstykki. Að lokkum er prjónaður kantur í hálsmáli fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 100-116-132-148-164-180 lykkjur á hringprjón 5,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið fyrstu lykkju í A.1 (= miðjulykkja í hlið á stykki), prjónið 4 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 41-49-57-65-73-81 lykkjur (byrjið og endið með klukkuprjónslykkju), prjónið 4 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið út með 2-2-2½-2½-2½-3 cm millibili alls 7 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið = 128-144-160-176-192-208 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir 17 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. miðjulykkja + 8 lykkjur hvoru megin við hana – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Þegar stykkið mælist ca 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af miðju 9 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg, passið uppá að fækka lykkjum í umferð þar sem uppslátturinn og lyfta lykkjan er prjónað saman – fækkið lykkjum sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 55-63-71-79-87-95 lykkjur í umferð. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar, það á að fækka lykkjum fyrir handveg, jafnframt skiptist stykkið fyrir op mitt að aftan. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu.
Haldið áfram með mynstur eins og áður og prjónið GARÐAPRJÓN yfir 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna í umferð (þetta er klukkuprjónslykkja). Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð alls 0-0-0-0-5-7 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 8-10-14-17-16-16 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, skiptist bakstykkið þannig að það myndist op mitt að aftan. Prjónið þannig – frá réttu: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, fellið af þessa lykkju. Setjið lykkjur sem voru prjónaðar á þráð, prjónið nú áfram yfir síðustu lykkjurnar á prjóni (= hægri öxl að aftan).

HÆGRI ÖXL:
Prjónið mynstur eins og áður, en 2 ystu lykkjur við miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg. Þegar úrtöku fyrir handveg er lokið eru 19-21-21-22-22-24 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Setjið fyrstu 11-12-12-13-13-14 lykkjur við miðju að aftan á þráð fyrir hálsmáli = 8-9-9-9-9-10 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm.

VINSTRI ÖXL:
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur eins og áður, en 2 ystu lykkjurnar við miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg. Þegar úrtöku fyrir handveg er lokið eru 19-21-21-22-22-24 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Setjið fyrstu 11-12-12-13-13-14 lykkjur við miðju að aftan á þráð fyrir hálsmáli = 8-9-9-9-9-10 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm.

FRAMSTYKKI:
= 55-63-71-79-87-95 lykkjur í umferð. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, haldið áfram með mynstur eins og áður, nú er prjónað garðaprjón yfir 4 ystu lykkjur í hvorri hlið. Lykkjum er fækkað fyrir handveg eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, setjið miðju 15-17-17-19-19-21 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 8-9-9-9-9-10 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið upp ca 67-75 lykkjur á hringprjón 5,5 með Paris (meðtaldar lykkjur af þráðum, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3).
Prjónið A.1 með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að aftan, passið uppá að A.1 passi yfir lykkjur frá fram- og bakstykki. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1½ cm fellið af fyrir hnappagati í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það á að myndast gat. Haldið áfram með A.1 og garðaprjón þar til stykkið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið eina tölu í kant í hálsmáli.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = Frá réttu: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman.
Frá röngu: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman.
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Inge Knudsen wrote:

Kan jeg forlænge denne top, som desværre er blevet for kort? Hvis ja, hvordan?

09.05.2023 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Inge, du kan altid følge længden på en af de større størrelser. Hvis du ikke vil trevle op, kan du strikke en fin kant ved at samle masker op i nederste kant og strikke nedad.

09.05.2023 - 15:08

country flag Sylvia Karlsson wrote:

Hej! Enligt mönstret så ska man sticka aviga maskor på rätsidan och räta på avigsidan, så långt är jag med men sedan enligt diagrammet ska man från rätsidan: sticka omslaget och den lyfta maska räta tillsammans från avigsidan aviga maskor men var är omslaget på den aviga sidan

24.08.2022 - 17:58

DROPS Design answered:

Hei Sylvia. Om du ser på diagram A.1 og ikonet med firkant med sirkel inni seg, så skal det , fra retten, lage et kast + løft neste maske løs av pinnen som om den skulle strikkes vrang. Det lages et kast annenhver omgang / rad. På neste omgang (som er fremdeles fra retten) strikkes slik: Strikk kastet og den løse masken rett sammen. Om det strikkes frem og tilbake blir denne raden fra vrangen og det strikkes da slik: Strikk kastet og den løse masken vrang sammen. mvh DROPS Design

29.08.2022 - 09:26

country flag Martine wrote:

Bonjour, je n'arrive pas à visualiser le dos de ce modèle, serait-il possible d'avoir une image ? Avec mes remerciements. Martine

09.07.2022 - 07:24

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, je suis désolée, nous n'avons pas de photos du dos, vous avez tout simplement une ouverture boutonnée au milieu dos pour pouvoir passer la tête. Divisez le dos en 2 partie (en rabattant la maille centrale), et montez 2 mailles côté milieu dos au 1er rang de l'épaule droite, puis vous mettrez en attente les mailles qui seront reprises ensuite pour le col. Tricotez l'épaule gauche de la même façon mais en vis à vis, la bordure de l'un des devants sera ensuite placée sous celle de l'autre à la fin. Bon tricot!

11.07.2022 - 08:51

country flag Sabrina Orlandi wrote:

Buonasera, non ho capito questo passaggio: e finire ogni spalla in modo separato. Poi intrecciare le maglie su ogni ferro dal collo come segue: intrecciare 2 maglie 1 volta e 1 maglia 2 volte . Devo procedere anche per il davanti con i passaggi delle spalle dx e sx. intrecciare 2 maglie significa lavorare 2 insieme e poi intrecciarle grazie Sabrina

24.06.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Buonasera Sabrina, da quando mette in sospeso le maglie per il collo, deve lavorare le spalle in modo separato, intrecciando le maglie a partire dal collo come indicato. Per intrecciare le maglie, deve lavorare 2 maglie a diritto e poi accavallare la prima maglia lavorata sulla 2°. Buon lavoro!

26.06.2022 - 21:13

country flag Helle wrote:

Hej! Jeg har nu forsøgt adskillige gange, at få mønstret til at gå op med det antal masker, der står opført i opskriften. Det passer fint på den første halvdel af omgangen, men går galt på anden halvdel, hvor antal masker ikke passer med det der står i opskriften. Hvor kan det gå galt?

16.06.2022 - 22:12

country flag Christelle R wrote:

Super !!! Merci beaucoup. Cdlt

29.04.2022 - 15:57

country flag Christelle R wrote:

Bonjour. Encore un joli modèle que je fais en taille S. Cependant je bloque dès le 2ème rang !!?? Dois je comprendre : *1 jeté 1m glissée (soit 1ere m A1)4m envers 1m anglaise A1 au dessus des 41m suivantes 1m anglaise 4m envers* ? J'ai essayé dans tous les sens et je ne tombe pas juste en fin de rang. Pouvez vous me détailler ce rang plus précisément svp ?Merci de votre aide. Cdlt

29.04.2022 - 09:03

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, tricotez ainsi: *1ère maille de A.1 (= maille en côtes anglaises), 4 m envers, répétez 5 fois les 8 m de A.1 (= 40 m), tricotez la 1ère m de A.1 (ainsi les côtes sont symétriques), 4 m env* soit: 1+4+40+1+4=50 - répétez de *-* encore 1 fois = 50 x2=100 m. Vous avez ainsi 1 m en côtes anglaises de chaque côté du top et 4 m envers de part et d'autre de cette maille - et A.1 entre ces 2 fois 4 m envers. Bon tricot!

29.04.2022 - 13:08

country flag Françoise GALLAND wrote:

Bonjour, je viens de réaliser ce modèle en couleur bordeaux. J\'aime bien vos explications, vos vidéos. Merci. En revanche, je ne sais pas comment faire pour terminer avec la pose du bouton ? est-ce que les 2 côtés se chevauchent ?? auriez-vous une photo ? Merci encore ! Bonne année 2022 !\r\nFrançoise

07.01.2022 - 10:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Galland, merci, et tous nos voeux également! Le bouton doit être cousu face à la boutonnière ouverte en fin de rang sur le col, essayez le top si besoin pour placer le bouton au bon endroit, face à la boutonnière (faites-vous aider ce sera plus simple), le col va se chevaucher à ce niveau-là. Bonne continuation!

07.01.2022 - 16:02

country flag Emilie wrote:

Escapade dans les champs

15.01.2021 - 13:51

country flag Linda wrote:

Summer'78

07.01.2021 - 16:34