DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5325.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lovely Camellia Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Nepal og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð 3 til 14 ára.

DROPS Children 40-12
DROPS Design: Mynstur ne-030-bn
Garnflokkur C + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-350-400-450-500 g litur 8912, blush
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-75-75-75-100-100 g litur 04, bleikvínrauður

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með garðaprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5325.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, á hringprjóna frá miðju að framan, upp að handvegi. Hér skiptist stykkið og bakstykkið og framstykkin eru prjónuð til loka hvert fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar meðfram handvegi og ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli/kantur að framan í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 77-81-87-91-97-101 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Nepal og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan garðaprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju = 76-80-86-90-96-100 lykkjur.

Prjónið þar til stykkið mælist 30-33-36-39-41-43 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið nú af lykkjur fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 15-16-17-18-19-20 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 2 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 42-44-48-50-54-56 lykkjur (= bakstykki, fellið af næstu 2 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 15-16-17-18-19-20 lykkjur í umferð (= framstykki). Héðan er nú framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 15-16-17-18-19-20 lykkjur. Prjónið garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 44-48-52-56-59-62 cm (14-15-16-17-18-19 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 15-16-17-18-19-20 lykkjur. Prjónið garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 44-48-52-56-59-62 cm (14-15-16-17-18-19 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

BAKSTYKKI:
= 42-44-48-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 42-46-50-54-57-60 cm. Fellið af miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við háls = 15-16-17-18-19-20 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 44-48-52-56-59-62 cm (14-15-16-17-18-19 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður.
Prjónið upp 36-40-42-44-46-50 lykkjur meðfram opi fyrir ermar á hringprjón 7 með 1 þræði Nepal og 1 þræði Kid-Silk, þ.e.a.s. prjónið upp 18-20-21-22-23-25 lykkjur frá botni á handvegi og upp að axlasaumi og prjónið upp 18-20-21-22-23-25 lykkjur frá axlasaumi og niður að botni á handvegi og í hinni hliðinni undir ermi. Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið slétt saman. Fækkið lykkjum með 5-5-5-5-5½-5 cm millibili, alls 5-6-7-7-7-9 sinnum = 26-28-28-30-32-32 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 27-31-35-38-41-46 cm (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskuðu máli, nú eru eftir 5-5-5-6-6-6 cm). Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stoffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Ermin mælist alls 32-36-40-44-47-52 cm. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR-2:
Saumið sauma undir ermi í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað þegar helmingur af lykkjunum í kanti að framan / kanti í hálsmáli eru taldar. Kantar að framan eru prjónaðir upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykkjum og í hálsi á bakstykki.
Byrjið neðst í hægra framstykki frá réttu – prjónið upp ca 76-82-89-95-101-106 lykkjur meðfram öllum kantinum að framan upp að prjónamerki í hnakka, á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund – látið prjónamerkið sitja hér. Haldið áfram að prjóna upp ca 77-83-90-96-102-107 lykkjur meðfram öllum kantinum að framan niður að kanti á vinstra framstykki, alls á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 2 + 1 = ca 153-165-179-191-203-213 lykkjur. Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of slakt með of margar lykkjur, en það á heldur ekki að draga kantana að framan saman vegna of fáum lykkjum.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, munið eftir AFFELLING.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Lieve wrote:

Lovely Camellia Jacket Ik heb gebreid zoals patroon en het is veel te groot. Ik heb 17 steken op 10 cm. Dan moet ik toch kleinere naalden nemen niet?

12.08.2023 - 21:22

DROPS Design answered:

Dag Lieve,

Als je 17 steken op 10 cm in de hoogte hebt, dan wordt het kledingstuk inderdaad te groot en zou je kleinere naalden moeten gebruiken. Maak altijd eerst een proeflapje en pas de naalddikte aan totdat je de juiste stekenverhouding hebt. De stekenverhouding in de breedte is het belangrijkst, omdat je in de hoogte kunt stoppen op het juiste aantal centimeters zoals aangegeven in het patroon.

14.08.2023 - 13:59

country flag Ann De Troyer wrote:

Ik heb dit model gebreid voor mijn dochter van 9 jaar. Maar eigenlijk wil ik dit ook breien voor mezelf (Dames Maat 36). Ik vind geen enkel model met ribbelsteek in de bestaande patronen en vroeg mij af of je de gegevens van het patroon kan aanpassen naar een model voor een volwassen maat. Alvast bedankt voor uw antwoord.

08.09.2022 - 14:45

DROPS Design answered:

Dag Ann,

Het is voor ons helaas niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Je zou kunnen kijken naar een maattekening van een damesvest en daar het aantal op te zetten steken, meerderingen, minderingen, etc. aanpassen op basis van je stekenverhouding.

09.09.2022 - 12:39

country flag Margit wrote:

Hallo Die Jacke ist so schön ich hab sie für 2 meiner Enkelinnen gestrickt. Beide sind begeistert. Danke für die schönen Ideen.

05.07.2022 - 14:14

country flag Mariana Manefeldt wrote:

Good day Thx for the answer. Another question, when you knit the sleeves, pattern stated knit 3cm and decrease 1 stitch at the beginning and end of row, and then every 5cm. Do you measure 5cm from the 3cm already kniitted before you decrease again? Regards Mariana

16.06.2022 - 05:26

DROPS Design answered:

Hi Mariana, you measure 5 cm from the 3 cm already knitted, I mean from the previous decrease. You can put a marker to mark your decrease and then make another decrease 5 cm later. Happy knitting!

16.06.2022 - 09:00

country flag MARIANA+ wrote:

GOOD DAY, PLEASE TELL ME HOW DO YOU KNIT THE EDGE STITCH, I AM SO CONFUSE, DO YOU KNIT IT IN THE BEGINNING AND END OF EACH ROW?\r\nREGARDS\r\nMARIANA

15.06.2022 - 11:27

DROPS Design answered:

Dear Mariana, the edge stitches are worked in garter stitch (see video) when working ribbing edge, then all stitches will be worked in garter stitch, ie including edge stitches. Happy knitting!

15.06.2022 - 15:37

country flag Birgit Lingner wrote:

Hallo, werde die Jacke bald annageln und freue mich! Ist es auch möglich die Jacke mit Knöpfen und dementsprechend Knopflöchern zu arbeiten? Oder wären Knebelnöpfe mit Schleifen hier passender? Liebe Grüße und Danke im Voraus

25.04.2022 - 14:07

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lingner, wahrscheinlich können Sie dazu Knopflöcher arbeiten - je nach der Größe und je nach gewünschten Knopflöchern können Sie dann sie so organisieren. Sie können sich von einem ähnlichen Modell mit Knöpfe inspirieren lassen. Viel Spaß beim stricken!

26.04.2022 - 09:19

country flag Sarah Harvey wrote:

Can the sleeves be knit in the round?

30.03.2022 - 10:24

DROPS Design answered:

Dear Sarah, sure you can, but most of the time, knitters rather knit than purl, so that sleeves are worked here in rows - should you choose to work them in the round, don't forget to adjust garter stitch in the round (see video. Happy knitting!

30.03.2022 - 11:12

country flag Nancy wrote:

In making “One edge stitch in garter stitch”… that means a knit stitch, right?

04.03.2022 - 18:44

DROPS Design answered:

Dear Nancy, yes, when working in garter stitch you always knit, so this means that you always knit the edge stitch. Happy knitting!

06.03.2022 - 13:01

country flag Anne W wrote:

The pattern: Lovely Camellia Jacket: the instructions list, Body, Left Front, Right Front, Sleeve and Back. What??!! Aren\'t the body and back the same thing? How are there so many pieces to be formed? This makes no sense at all.

16.01.2022 - 00:42

DROPS Design answered:

Dear Anne, you work from the bottom up. You work everything together when working the body, up to the armholes. Then, you finish working both fronts, the sleeves, and the back. These parts are not referring to the whole back, but the part from the armholes up to the neck. Happy knitting!

16.01.2022 - 21:03

country flag Marian Rask wrote:

Kan man bruge drops sky til denne opskrift ?

13.01.2022 - 07:42

DROPS Design answered:

Hej Marian, ja det kan du, men da skal du bruge 2 tråde DROPS Sky :)

13.01.2022 - 11:31