Chill Chaser |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi, laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-36 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 160 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 148 lykkjum sem eftir er með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 6,2. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út, er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju - í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu með því að prjóna A.1 yfir hverja lykkju með prjónamerki í eins og útskýrt er í uppskrift. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum hafa verið auknar út alls 16 lykkjur. A.1 er endurtekið á hæðina eins og útskýrt er í uppskrift. Aukið síðan út með því að prjóna A.2 yfir hverja lykkju með prjónamerki í eins og útskýrt er í uppskrift. Þegar A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum hafa verið auknar út alls 8 lykkjur. A.2 er endurtekið á hæðina eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-6-7-7 cm, fellt er af fyrir næsta hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist 19-19-21-21-22-22 cm (þessi 2 hnappagöt eiga að liggja á hvoru öðru þegar kanturinn í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur), fellt er af fyrir næsta hnappagati þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður að byrjun á stroffi. Síðan skiptist stykkið í hvorri hlið fyrir klauf og prjónað er stroff á framstykki og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið aðeins laust upp 160-166-172-184-190-196 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með DROPS Alpaca eða DROPS BabyMerino. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 25-25-27-27-29-29 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 136-140-144-156-160-164 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman tvöfalt og við frágang þá verður kanturinn í hálsmáli ca 12-12-13-13-14-14 cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Hvert prjónamerki er sett í lykkju – þessi prjónamerki verða að hafa annan lit en prjónamerki sem er á eftir kanti í hálsmáli til að aðgreina þau. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 28-29-30-31-32-33 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 44-46-48-50-52-54 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 28-29-30-31-32-33 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið er út við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum með því að prjóna A.1 yfir hverja lykkju með prjónamerki í (miðjulykkja í A.1 á að passa við lykkju með prjónamerki í – byrjið A.1 einni lykkju á undan lykkju með prjónamerki í). Aukið svona út með því að endurtaka A.1 alls 13-14-16-18-20-21 sinnum á hæðin = 344-364-400-444-480-500 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum með því að prjóna A.2 yfir hverja lykkju með prjónamerki í (miðjulykkja í A.2 á að passa við lykkju með prjónamerki í – byrjið A.2 þriðju lykkju á undan lykkju með prjónamerki í). Aukið svona út með því að endurtaka A.2 alls 2-3-3-2-2-3 sinnum á hæðina = 360-388-424-460-496-524 lykkjur. Í næstu umferð eru auknar út 4-4-0-4-0-0 lykkjur – útaukninin skiptist þannig að aukið er út um 1 lykkju við hverja laskalínu í stærðum sem aukið er út = 364-392-424-464-496-524 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga og með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 60-64-68-74-80-86 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-74-82-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 108-116-124-136-148-160 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 68-74-82-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 60-64-68-74-80-86 lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 244-260-280-304-332-364 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 64-68-73-79-86-92 lykkjur inn frá hvorri hlið = 116-124-134-146-160-172 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 18-18-18-17-17-17 cm frá skiptingu – endið eftir umferð frá röngu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli – ATH: Stykkið verður ca 3 cm lengra en þetta mál þegar það er mátað – sjá teikningu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd áður en stykkinu er skipt fyrir klauf. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 64-68-73-79-86-92 lykkjur. Nú á að auka út lykkjur til að stroffið sem prjónað á, dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 15-17-15-18-20-23 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 79-85-88-97-106-115 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff frá hlið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl og niður – mælt flatt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 64-68-73-79-86-92 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 15-17-15-18-20-23 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 79-85-88-97-106-115 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff frá miðju að framan þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! BAKSTYKKI: = 116-124-134-146-160-172 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-30-32-35-39-42 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 145-154-166-181-199-214 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 68-74-82-90-94-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-11-15-18-19-19 sinnum = 58-60-62-64-68-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-35-34-33-31-30 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-12-13-14-13-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 72-72-75-78-81-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 45-43-42-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki – passið uppá að 2 fyrstu hnappagötin sem voru prjónuð liggi ofan á hvoru öðru. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að kanturinn í hálsmáli dragist ekki saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Manon wrote:
Bonjour! Très difficile pour moi de suivre le raglan même et après avoir vu vos vidéos à ce sujet…Surtout qu’il y a deux diminutions au 3eRg de A1. Je suis encore bloquée!! En suivant A1, je constate que les trous du raglan vont tous vers la droite quand je suis sur l’endroit et le col vers moi. Et ce, même si je fais la 2e diminutions de A1 en torse comme indiqué. Vous n’auriez pas une aide/vidéo pour ce modèle spécifique? Merci!
04.02.2023 - 21:45DROPS Design answered:
Bonjour Manon, veillez bien à ce que la maille avec le marqueur soit toujours la même maille dans A.1, autrement dit la 2ème maille au 1er rang, la 5ème maille au 2ème rang et la 4ème maille au 3ème rang; ainsi, les augmentations vont se répartir joliment de part et d'autre de cette maille avec le marqueur, et vous diminuez ensuite 1 m de chaque côté de cette maille; la fois suivante quand vous tricotez A.1 de nouveau, la maille avec le marqueur doit de nouveau être celle du milieu pour que chaque A.1 soit bien aligné les uns au-dessus des autres. Bon tricot!
06.02.2023 - 09:34Manon wrote:
Grandeur Larg Raglan, Empiècement?? J’ai 144m avant de commencer l’empiècement, mais je n’arrive pas à 400 mailles à la fin de A1 car je dois le faire 16 fois. À la 11e fois de A1, j’ai 406m. J’ai 4 marqueurs auxquels il y aura 6 augmentations à chaque marqueur (donc ça devrait donner 24m) et 2 diminutions selon A1.(donc 22m à la fin du A1) à la 1re fois de 16/A1 à faire. Je n’arrive pas à 400m à la 16e fois du A1. Je ne comprends pas
20.01.2023 - 04:02DROPS Design answered:
Bonjour Manon, vous tricotez A.1 à chaque raglan (dans chaque A.1, vous allez augmenter 4 mailles: 6 mailles au 1er rang - 2 mailles diminuées au 3ème rang), soit 4 mailles x 4 raglans = 16 mailles augmentées à chaque fois que vous tricotez A.1 en hauteur, vous répétez 16 fois A.1 en hauteur soit 16 x 16 = 256 augmentations + les 144 m du départ = 400 mailles. Bon tricot!
20.01.2023 - 08:34Gro Svennar Westlie wrote:
Unødvendig innviklet forklaring på raglan: A1: øke 6 masker på første rett-pinne, så felle 2 masker på neste rett-pinne( =4masker økt) istedenfor å øke en masker på hver side av merket på HVER rett-pinne (= 4 masker økt i løpet av de samme to rett-pinnene ) som vanlig raglan,
07.09.2022 - 15:47Inger Knoph wrote:
Savner forklaring på diagram A1 og A2. Regner med at jeg skal øke på hver side sv merkemasken.
01.05.2022 - 22:43DROPS Design answered:
Hej Inger, diagramteksten ligger nederst i opskriften lige ovenfor måleskitsen :)
02.05.2022 - 13:50Aukje wrote:
Bij het begin van de pas klopt het aantal steken niet. Voor maat L: 144 op de naald . Verdelen in 30+16+48+16+30 = 140. Dus hou ik 4 steken over…..
05.10.2021 - 11:04DROPS Design answered:
Dag Aukje,
Heb je de markeerdraden in de steken gevoegd en niet tussen de steken? Mogelijk dat dit het verschil van 4 steken veroorzaakt.
07.10.2021 - 10:44Tina wrote:
Sød men mangler lommer
17.08.2021 - 10:37