Day to Knight |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köðlum, áferðamynstri og tvöföldum kanti í handvegi. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 21. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 20. og 21. hverja lykkju slétt saman. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. Síðan eru stykkin sett saman með því að sauma saman axlasauma og hliðarsauma. Að lokum eru kantar í handvegi prjónaðir í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-115-126-137-148-159 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur í hvorri hlið) á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 99-110-121-132-143-154 lykkjur (= 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar með 11 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka 5 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Prjónið nú A.2 yfir hverja mynstureiningu A.1 (kantlykkjur halda áfram eins og áður). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 95-105-115-125-135-145 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15 cm. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur í umferð og fækkið um 1-5-3-7-5-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 94-100-112-118-130-142 lykkjur. Fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja), snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja) = 96-102-114-120-132-144 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af 6-6-9-9-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Í næstu umferð frá réttu er felld af 1 lykkja í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 4 lykkjur í mynstri eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-9-9-7-10 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-3-3-5-5 sinnum (= alls 9-9-12-12-12-15 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 66-72-72-78-84-90 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir miðju 28-28-28-34-34-34 lykkjur og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir þessar lykkjur, fellið af miðju 22-22-22-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu = 22-25-25-25-28-31 lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið, 2 kantlykkjur í garðaprjóni við hálsmál og A.3 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fellið síðan af fyrir handveg, jafnframt er stykkinu skipt upp fyrir hægra og vinstra framstykki og lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli. ÚRTAKA FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af 6-6-9-9-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 4 lykkjur í mynstri eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-9-9-7-10 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-3-3-5-5 sinnum (= alls 9-9-12-12-12-15 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið). V-HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að miðju 2 lykkjum í umferð. Prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af miðju 2 lykkjum í umferð (þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) = 2 lykkjur fleiri, prjónið út umferðina eins og áður. Snúið og prjónið út umferðina - nýjar lykkjur mitt á framstykki eru prjónaðar í garðaprjóni. Nú skiptist stykkið mitt í þessum miðjulykkjum og hvort stykki er prjónað fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið mynstur og úrtöku fyrir handveg eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir á undan V-hálsmáli, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-3-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 8-8-9-8-8-9 sinnum = 12-12-12-15-15-15 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli. Þegar allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-25-25-25-28-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið mynstur og úrtöku fyrir handveg eins og áður yfir fyrstu 8 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina og úrtöku fyrir handveg eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-3-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 8-8-9-8-8-9 sinnum = 12-12-12-15-15-15 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli. Þegar allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-25-25-25-28-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður þar sem fitjuð var upp 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið (= ca 16 cm klauf). TVÖFALDUR KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið mitt undir ermi í hliðarsaumi og prjónið upp frá réttu ca 136 til 162 lykkjur í kringum handveg með hringprjón 3 og DROPS Lima eða DROPS Karisma. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* hringinn í 6 cm. Fellið af – sjá AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. Brjótið niður stroffið í kringum handveg að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í handvegi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Ladder Loop wrote:
Love this, just right for centrally heated homes when an extra layer is needed
03.08.2021 - 19:13