DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 847.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13079.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Walk with Nature

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-46
DROPS Design: Mynstur st-007
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 05, grábjörn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 12, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 847.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13079.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál – sjá ÚRTAKA-2):
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 184 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-196-216-236-256-280 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 152-164-180-196-212-232 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 76-82-90-98-106-116 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fella á af fyrir handveg.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-3-4-4-5-6 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-76-82-90-96-104 lykkjur sléttprjón, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg (3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið 70-76-82-90-96-104 lykkjur sléttprjón. Bakstykki og framstykki er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 70-76-82-90-96-104 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið -sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA-2:
Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 1-3-4-5-6-8 sinnum. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 2-0-0-1-1-0 sinnum = 62-64-66-68-70-72 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 22-22-22-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkju við háls – munið eftir ÚRTAKA-2 = 18-19-20-20-21-22 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 70-76-82-90-96-104 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA-2:
Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 1-3-4-5-6-8 sinnum. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 2-0-0-1-1-0 sinnum = 62-64-66-68-70-72 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur við háls – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 3 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-48-48-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-8-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 38-40-42-44-44-46 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 9-8-10-10-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 8-9-10-11-13-14 sinnum = 54-58-62-66-70-74 lykkjur.
Þegar ermin mælist 46-46-45-44-43-41 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3-3-4-4-5-6 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 48-52-54-58-60-62 lykkjur.
Prjónið síðan ermakúpu þannig: Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkja 4-4-5-5-6-7 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-55-56 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 55-55-56-56-56-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 76 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar kanturinn mælist 7-7-7-8-8-8 cm, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = ca 95 til 110 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til kanturinn í hálsmáli mælist 10-10-10-11-11-11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = prjónið frá röngu: sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Pradel Christine wrote:

J’ai un pb avec les manches. Je fais taille M. 6cm côtes puis 8cm jersey avant de commencer à augmenter 9 froid tous les 4,5cm = 50cm !! Or je dois commencer l’arrondi en allers/retours à 46 cm ! Confirmez vous que je ne dois tricoter que 4cm de jersey après les cotes au lieu de 8 ? Sinon qu’elle est votre correction ? Merci beaucoup pour votre réponse. Est-ce que la suite des explications vous paraît correcte ? Encore merci. Bonne journée. Christine

15.03.2024 - 15:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pradel, il faut en fait continuer en jersey jusqu'à ce que la manche mesure 8 cm (en taille M) - soit 6 cm de côtes + 2 cm jersey - merci pour votre retour, la correction a été faite. Bon tricot!

15.03.2024 - 16:07

country flag Trish wrote:

Can this be knitted without the kid silk just the soft tweed only thanks

18.12.2023 - 17:11

DROPS Design answered:

Dear Trish, you should replace Kid-Silk with any other yarn group A to keep correct tension. Use the yarn converter to see alternatives as well as new amount of yarn. Happy knitting!

19.12.2023 - 07:43

country flag Pirkko Tolvanen wrote:

Olen neulonut elämäni aikana melko paljon mutta yhä vain askarruttaa yksi juttu.\r\nKun neulon tasona, niin vasemman puolen (neule oikein päin itseeni) reunasilmukka jää aina löysemmälle kuin oikean puolen.\r\nKun reunasta otetaan silmukoita esim. hihaa varten, niin eron huomaa selvästi.\r\nMikä neuvoksi?\r\nKiitoksin Pirkko

03.10.2023 - 10:56

DROPS Design answered:

Hei, tämä tapahtuu usein, kun neulotaan työn nurjan puolen kerroksen ensimmäisiä silmukoita. Voit kiristää lankaa hieman tavallista enemmän aina kun neulot vasemman puolen ensimmäisen silmukan. Kokeile myös neuloa reunoissa 1 reunasilmukka ainaoikeaa.

23.10.2023 - 17:52

country flag France Langlois wrote:

Bonjour, Lorsqu'on rabat les mailles restantes pour l'épaule, combien reste t'il de mailles pour la grandeur M. Le patron ne fournit pas cette information.

06.03.2023 - 01:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Langlois, il reste 19 mailles pour l'épaule (cf DOS: ... Au rang suivant sur l'endroit, diminuer 2 mailles côté encolure – ne pas oublier DIMINUTIONS-2 = 18-19-20-20-21-22 mailles pour l'épaule.. Bon tricot!

06.03.2023 - 10:38

country flag France Langlois wrote:

Bonjour, Diminutions pour les manches (A2 et A3)au début de chaque rang seulement ou à la fin aussi (autrement dit sur le même rang)? De plus, entre quelle maille doit-on faire un jeté sur l'envers après ces diminutions? Merci de votre aide.

03.03.2023 - 16:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Langlois, les diminutions de A.2 et A.3 sont pour les emmanchures (elle ne sont pas faites pour les manches). Sur l'endroit, lisez les diagrammes de droite à gauche et sur l'envers, de gauche à droite, autrement dit, le jeté de A.2 se fait après 1 m env de A.2 et le jeté de A.3 se fait avant la m envers de A.3. Bon tricot!

06.03.2023 - 08:49

country flag Sylviane Eusebe wrote:

J'ai adoré faire ce pull pour ma maman et la laine super agréable mais une fois lavé je trouve que le bas c'est détendu comment faire pour éviter cela merci de votre réponse

18.02.2023 - 08:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eusebe, retrouvez toutes les consignes d'entretien de Soft Tweed sur son nuancier et encore plus d'astuces ici - votre magasin pourra également vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

20.02.2023 - 09:21

country flag Sylviane Eusebe wrote:

Bonjour je suis sur le devant avec au départ 26 mailles il faut diminuer 2 mailles côté encolure et 3 fois diminution 2 côté épaule ce qui fait au total 8 mailles et je dois au final me retrouver avec 20 mailles et donc là impossible merci de votre aide

21.11.2022 - 17:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eusebe, si vous avez 26 mailles après avoir mis en attente les mailles pour l'encolure, vous allez diminuer 2 mailles 3 fois au total soit 6 mailles au total; 26-6= il reste 20 mailles. Bon tricot!

22.11.2022 - 10:27

country flag Pia wrote:

Kan man udskiftes til garn Puna og følge opskriften med samme pind? Kom til at skrive forkert forrige sendt spørgsmål

14.10.2022 - 09:32

country flag Pia wrote:

Kan man udskiftes til garnet Puna og bruge samme pind iflg denne opskrift?

14.10.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Hei Pia. Du kan bytte DROPS Soft-Tweed med DROPS Puna i denne oppskriften. Begge kvalitetene tilhører samme garngruppe (B), men DROPS Puna har en litt kortere løpelengde, så du trenger litt mer garn. Bruk vår garnkalkulator til å finne ut hvor mye i den størrelsen du vil strikke. Og husk å dobbeltsjekke at du får samme strikkefasthet med 1 tråd Puna + 1 tråd Kid-Silk som er oppgitt i oppskriften . mvh DROP Design

24.10.2022 - 09:45

country flag Kerstin wrote:

Hej Drops Design! Jag har precis stickat färdigt den här fina tröjan, men till min stora förvåning har jag kvar nästan 150 gram Soft Tweed och 35 gram Kid Silk. Alltså 3 hela nystan. Virkade Winter Sunshine for en tid sedan och fick även då en massa hela nystan över. Måste tillägga att tröjorna passar mej. Hur kommer det sig att det har blivit så här tokigt? Känns ju bättre att handla "på stan" då kan jag lämna tillbaka nystan. Vänligen Kerstin W

11.05.2022 - 10:37