DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 847.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Warm My Heart

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, klauf í hliðum og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 228-18
DROPS Design: Mynstur st-009
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 18, gulrótarkaka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 847.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja brugðna einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 150 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 15.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 15. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig (= 8 lykkjur fleiri í umferð):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem klaufin byrjar. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-108-112-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkja brugðið (séð frá réttu) til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 125-130-135-140-150-155 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 150-156-162-168-180-186 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 8 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 10-20-26-32-32-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 160-176-188-200-212-220 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Hoppið yfir fyrstu 27-29-31-33-36-39 lur (= ½ bakstykki), setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli bakstykkis og ermar), hoppið yfir næstu 24-28-30-32-32-30 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 54-58-62-66-72-78 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og ermi), hoppið yfir næstu 24-28-30-32-32-30 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis). Nú eru eftir 27-29-31-33-36-39 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki).
Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 14-16-18-19-21-24 sinnum = 272-304-332-352-380-412 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13-13-15-16-18-20 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 41-45-49-52-57-63 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 54-62-68-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 82-90-98-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 54-62-68-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 41-45-49-52-57-63 lykkjur (= ½ bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-216-232-252-276 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 22-25-25-26-26-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 36-44-46-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 220-244-262-280-304-328 lykkjur. Nú skiptist stykkið þannig að það verða jafn margar lykkjur á bakstykki og framstykki = 110-122-131-140-152-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Stykkið mælist ca 51-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið stroff á sama hátt og á framstykki þar til stroffið mælist 14 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Stykkið mælist ca 61-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 54-62-68-72-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 64-72-78-84-88-92 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona með 4½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 7-10-12-14-15-16 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-40-38-38-36-34 cm.
Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 13-14-15-16-17-18 lykkjur jafnt yfir = 63-66-69-72-75-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 44-45-43-43-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = bakstykkið er 10 cm lengra en framstykkið, þ.e.a.s. framstykkið er 51-54-56-58-60-62 cm (með 4 cm stroff) og bakstykkið er 61-63-65-67-69-71 cm (með 14 cm stroff).
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Warm My Heart

heathercatherine

Warm My Heart

Joe5, France

Warm My Heart

Irina V E, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Ute Jäger wrote:

Das Rückteil ist gleich hoch wie das Vorderteil? Keine verkürzten Reihen? Sitzt der Pullover dann gut?

09.01.2024 - 15:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jäger, ja genau, bei diesem Pullover gibt es keine Erhöhung, er sitzt ganz gut, genauso wie bei den Fotos. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2024 - 08:52

country flag WEHRLEN Françoise wrote:

Pouvez vous m'exprimer ce que veux dire "augmenter dans une section 1 maille envers sur deux" et "augmenter 1 maille dans les dernières sections 1 maille envers"? Merci

27.12.2023 - 20:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wehrlen, les côtes se tricotent au début (1 m torse à l'end, 1 m env), vous devez d'abord augmenter pour avoir des côtes (1 m torse à l'end, 1 m env, 1 m torse à l'end, 2 m env), puis terminer par (1 m torse à l'end, 2 m env). Autrement dit, augmentez les mailles envers, d'abord 1 fois sur 2 puis dans les dernières sections 1 m envers restantes. Bon tricot!

02.01.2024 - 09:05

country flag Nori wrote:

I can figure out the instructions on Warm My Heart pattern regarding the neck. “Increase every second purl 1 to purl 2”? How do you do it?

22.03.2023 - 21:19

DROPS Design answered:

Dear Nori, you have a rib, knit twisted 1 / purl 1, and then ever other purl stitch (every 4th stitch on the round) you purl into the back and the fron leg of the stitch. I hope this helps. Happy Knitting!

23.03.2023 - 00:17

country flag Antonia wrote:

In questo modello , è possibile costruire un'alzata sul dietro del collo? Se è possibile , come farla?

22.02.2023 - 16:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Antonia, per un aiuto così personalizzato, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

25.02.2023 - 13:58

country flag Heather wrote:

Thank you for the previous help! I'm at the point where I increase the body before dividing for the ribbing. When I increase stitches evenly, I'm starting with 216 and increasing to 262 (46 stitches). Do I divide 216 by 46 and work an increase after every 4th stitch and then every 5th stitch? Or do I divide 262 by 46 and increase after every 5th then 6th stitch? Or am I completely off track? Sorry for any confusion and thank you in advance for your help!

07.02.2023 - 20:04

DROPS Design answered:

Hi Heather, Yes, you divide 216 by 46 as you say = 4.69. This means you increase approx. after after each 4th and 5th stitch. Happy knitting!

08.02.2023 - 06:51

country flag Gerd BRODÉN wrote:

Det stämmer ju inte riktigt men jag hittade svaret i mönstret. Hade läst för dåligt. Diagram symbols = bakstycket är 10 cm längre än framstycket, dvs framstycket är 51-54-56-58-60-62 cm (med 4 cm resår) och bakstycket är 61-63-65-67-69-71 cm (med 14 cm resår).

17.01.2023 - 09:18

country flag Gerd Brodén wrote:

Stämmer det att resåren på bakstycket ska skickas 14cm, 10cm längre än framstycket? Det syns inte på ritningen.

13.01.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Hei Gerd. Vrangborden på bakstykket er 2 cm lengre enn forstykket, og om du ser på målskissen er det en * (sort stjerne) som er tegnet inn på målet til genseren. Der forklarigen er: * = bakstycket är 2 cm längre än framstyckena. Dvs, bakstycket är 66-68-70-72-74-76 cm (9 cm resår nederst) och framstyckena är 64-66-68-70-72-74 cm (7 cm resår nederst). mvh DROPS Design

16.01.2023 - 11:18

country flag Pia wrote:

Tak for svaret😊og tak for det hele💚

06.01.2023 - 14:37

country flag Pia wrote:

Hej. Hvis jeg følger opskriften som beskriver, hvordan man tager ud i vrang m, kommer der et hul. Skal man ikke tage ud i vrang m, som jeres intro video, vises nederst i forlængelse af opskriften?

05.01.2023 - 18:50

DROPS Design answered:

Hei Pia. Øk 1 maske ved å lage 1 kast om pinnen etter annenhvert vrangparti. På neste omgang strikkes kastet VRIDD VRANG, slik at det ikke blir hull (men det vil alltid bli et bittelite hull). mvh DROPS Design

06.01.2023 - 14:06

country flag Heather wrote:

Please help! I am working on size medium and am certain that my stitch count is accurate. I have gone to put the stitch markers in but am left with 4 stitches extra at the end every time. I noticed that someone else had the same issue, but I don't understand the answer. How do you place the markers inside the stitches? Any guidance you can provide would be greatly appreciated! Thank you very very much.

02.12.2022 - 02:56

DROPS Design answered:

Hi heather, You count 29 stitches and insert the first marker in the 30th stitch, count 28 more stitches and insert the next marker in the 59th stitch, count 58 more stitches and insert the next marker in 118th stitch, count 28 more stitches and insert the last marker in the 147th stitch. This leaves you with 29 stitches after the last marker = 176 stitches in total. So always insert the markers in the next stitch after counting (not between the stitches). Happy knitting!

02.12.2022 - 08:13