Warm Orange |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köntum í stroffprjóni, klauf í hliðum og með vösum. Stærð XS - XXL.
DROPS 228-17 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninná eftir að. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 167 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 157 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig (= 8 lykkjur fleiri í umferð): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8½-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem klaufin byrjar. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. Bakstykkið er 2 cm lengra en framstykkin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. VASI (fyrri hluti): Fitjið upp 28 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm, fellið kantlykkjurnar af = 26 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið annan vasa á sama hátt. Leggið vasana til hliðar og prjónið kant í hálsmáli. Seinni hluti af báðum vösunum er prjónaður eftir að peysan hefur verið prjónuð til loka og frágangur er gerður í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-119-123-131-135 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkja snúin brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2. Þegar stroffið mælist 3 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkja brugðið (séð frá réttu) til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 136-141-146-151-161-166 lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 6 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 161-167-173-179-191-197 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar er út 9-19-25-31-31-33 lykkjur jafnt yfir – ÚTAUKNING-2 = 170-186-198-210-222-230 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki innan við kant að mitt að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Hoppið yfir fyrstu 32-34-36-38-41-44 lykkjur, setið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og ermi), hoppið yfir næstu 24-28-30-32-32-30 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), hoppið yfir næstu 54-58-62-66-72-78 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli bakstykkis og erma), hoppið yfir næstu 24-28-30-32-32-30 lykkjur, setið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis. Nú eru eftir 32-34-36-38-41-44 lykkjur í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 14-16-18-19-21-24 sinnum = 282-314-342-362-390-422 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13-13-15-16-18-20 cm frá prjónamerki við kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 46-50-54-57-62-68 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 54-62-68-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 82-90-98-104-114-126 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 54-62-68-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 46-50-54-57-62-68 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-242-262-286 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 23-24-24-26-26-26 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 13-17-19-22-25-31 lykkjur, setjið 26 næstu lykkjur á þráð (seinni hluti á vasanum er prjónaður hér síðar), prjónið 26 lykkjur af þræði frá öðrum vasanum (passið uppá að prjóna áfram frá réttu á vasanum), prjónið þar til eftir eru 39-43-45-48-51-57 lykkjur í umferð, setjið næstu 26 lykkjur á þráð (seinni hluti á vasanum er prjónaður hér síðar), prjónið 26 lykkjur af þræði frá öðrum vasanum (passið uppá að prjóna áfram frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 13-17-19-22-25-31 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 30-32-32-33-33-33 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki þannig: Setjið ystu 51-55-59-63-68-74 lykkjur í hvorri hlið á sinn hvorn þráðinn (= framstykki). Nú eru 92-100-108-116-126-138 lykkjur eftir fyrir bakstykki. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: Prjónið nú sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 32-34-34-35-35-35 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-22-23-24-26-26 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 110-122-131-140-152-164 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka 51-55-59-63-68-74 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 32-34-34-35-35-35 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-10-12-14-15-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 59-65-71-77-83-89 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff alveg eins og á bakstykki, en nú eru prjónaðar 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. ERMI: Setjið 54-62-68-72-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 64-72-78-84-88-92 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona með 4½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 7-10-12-14-15-16 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-40-38-38-36-34 cm. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 13-14-15-16-17-18 lykkjur jafnt yfir = 63-66-69-72-75-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 44-45-43-43-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI (seinni hluti): Setjið 26 lykkjur af þræði á hægra framstykki á prjón 4,5. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 28 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12 cm, fellið laust af. Prjónið vasann á vinstra framstykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið bæði stykkin á vösum innan við 1 kantlykkju meðfram öllum hliðum. Festið síðan vasana að innanverðu á peysunni með nokkrum smáum sporum í hvort horn neðst. Vasinn nær niður ca að miðju á stroffi neðst á peysunni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Martine wrote:
Hallo waar vind ik een maten tabel , ik heb een Belgische maat 38 . Is dat dan een small???
24.05.2023 - 16:44DROPS Design answered:
Dag Martine,
Het handigst is om een bestaand kledingstuk dat goed zit erbij te pakken en dan vergelijken met de afmetingen in de maattekening onderaan het patroon. Op kledingmaat.nl kun je ook veel informatie vinden over maatvoering.
24.05.2023 - 21:11Stéphanie wrote:
Juste après les deux rangs d'augmentations du col cela donne : -5 points mousse, (1 maille torse à l'endroit, 2 maille envers), (1 maille torse à l'endroit, 1 maille à l'envers), etc... c'est bien ça ?
01.06.2022 - 18:35DROPS Design answered:
Bonjour Stéphanie, vous augmentez les mailles envers seulement, d'abord 1 fois sur 2 (= 5 m point mousse *1 m torse à l'end, 1 m env, 1 m torse à l'end, 2 m env*, et.c...) puis dans toutes les sections 1 m envers restantes, vous aurez donc après la 2ème augmentation: *1 m torse à l'end, 2 m env* entre les mailles de bordure des devants. Bon tricot!
02.06.2022 - 09:03Joëlle wrote:
Bonjour, Comment tricoter les augmentations du col à l’envers ? Doit-on les tricoter torses ? Merci
24.03.2022 - 09:01DROPS Design answered:
Bonjour Joëlle, les augmentations du col se tricotent à l'envers, vu sur l'endroit - tricotez les jetés torse à l'endroit au rang suivant sur l'envers; vous augmentez ainsi le nombre de mailles envers des côtes (vu sur l'endroit). Bon tricot!
24.03.2022 - 09:08Viera wrote:
Tento model sa mi veľmi páči. Priadza s ktorej je u pletený prekrásna.
03.08.2021 - 21:02