Misty Moon |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og köntum í áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-15 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 15 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 3,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ATH: Lykkjum er ekki fækkað/fjölgað yfir kanta að framan. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið laust upp 131-131-131-143-143-143 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka í 9 cm – endið eftir brugðna umferð frá röngu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 15-15-15-18-18-18 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-4-2-4-4-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING (= framstykki), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur (þessar 10 lykkjur verða laskalína og A.2 á að passa fallega yfir lykkjur frá kanti í hálsmáli), prjónið 11 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið 29-29-29-35-35-35 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 8-8-4-8-8-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið 11 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið 15-15-15-18-18-18 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-4-2-4-4-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 105-105-113-117-117-125 lykkjur í umferð. Prjónið eina umferð brugðið frá röngu (kantar að framan í eru prjónaðir í garðaprjóni). Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.2 í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá rétu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 25-28-30-34-37-40 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 305-329-353-389-413-445 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 50-54-57-62-67-73 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 89-97-103-113-123-135 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 50-54-57-62-67-73 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 201-217-233-253-277-301 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 53-57-61-66-72-78 inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 95-103-111-121-133-1445 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 57-63-66-72-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, byrjið á 2. umferð í A.1, prjónið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð – stillið af að mynstrið byrji og endi með fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 57-63-66-72-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, byrjið á 2. umferð í A.1, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð – stillið af að mynstrið byrji og endi með fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-9-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 103-112-121-133-145-157 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, byrjið á 2. umferð í A.1, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð – stillið af að mynstrið byrji og endi með fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-68-76-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-15-16-17 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-31-29-28-26 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-7-8-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.1 hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Loes Weber wrote:
The patron is complete with schedule
07.10.2021 - 11:52Loes Weber wrote:
Bij patroon DROPS 228-15 lees ik "Zie telpatronen A.1 en A.2.". Die telpatronen kan ik niet vinden en ze komen niet in beeld bij het afdrukken van het patroon.
05.10.2021 - 18:12DROPS Design answered:
Dag Loes,
Als het goed is komen ze nu wel in beeld. We hebben de laatste tijd wat problemen op de site gehad met het laden van afbeeldingen. Een poosje wachten en dan de pagina herladen met de functietoets F5 kan helpen.
07.10.2021 - 10:30Janne wrote:
Hvorfor kommer diagrammet ikke med når jeg udskriver opskriften på 228-15
05.10.2021 - 10:33DROPS Design answered:
Hej Janne. Det ska komma med när du printar oppskriften, välj "Skriv ud" - Opskrift så ska de komma med. Mvh DROPS Design
05.10.2021 - 13:57Jutta wrote:
Der Kragen ist wunderschön. Nicht so nah am Hals.
06.08.2021 - 12:16