Caramel Bubbles |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og litlum köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-50 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.2 og A.4. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 61 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 10,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10-8½-9-9½-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------ PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður hár kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 49-53-55-57-59-61 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 4-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 39 lykkjur), 4-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 14-14-14-13-13-13 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið nú út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-5-6-6-8-9 sinnum. Stykkið mælist nú ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 57-63-67-69-75-79 lykkjur í umferð. Í lok 2 næstu umferða eru fitjaðar upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 61-67-71-77-83-91 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 10-13-15-18-21-25 lykkjur sléttprjón, A.1, 10-13-15-18-21-25 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm (= 27-28-29-30-31-32 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið). Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 67-73-77-85-91-99 lykkjur. Í næstu umferð (= frá röngu) er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 14-15-16-16-16-17 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið þannig – frá miðju að framan: A.2 (= 7-7-7-5-5-5 lykkjur), 6-7-8-10-10-11 lykkjur sléttprjón, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið svona og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 29-30-31-33-33-34 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 (= 17 lykkjur), 6-7-8-10-10-11 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 14-14-14-13-13-13 cm. Aukið nú út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1: Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-5-6-6-8-9 sinnum. Stykkið mælist nú ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 33-35-37-39-41-43 lykkjur í umferð. Nú eru fitjaðar upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar að hlið = 35-37-39-43-45-49 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3, 12-14-16-20-22-26 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm (= 27-28-29-30-31-32 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið). Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-48-50-54 lykkjur. Í næstu umferð (ranga) er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 14-15-16-16-16-17 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið þannig – frá hlið: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6-7-8-10-10-11 lykkjur sléttprjón, endið með A.4 (= 7-7-7-5-5-5 lykkjur. Prjónið svona og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 29-30-31-33-33-34 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6-7-8-10-10-11 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 17 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 14-14-14-13-13-13 cm. Aukið nú út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1: Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-5-6-6-8-9 sinnum. Stykkið mælist nú ca 20-21-22-23-24-25 cm og það eru 33-35-37-39-41-43 lykkjur í umferð. Nú eru fitjaðar upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar að hlið = 35-37-39-43-45-49 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 12-14-16-20-22-26 lykkjur sléttprjón, A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm (= 27-28-29-30-31-32 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið). Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-48-50-54 lykkjur. Í næstu umferð (ranga) er prjónað stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Fitjið upp 30-32-34-36-38-40 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Snow. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3! Aukið svona út með 9-8½-8-8-7½-7 cm millibili alls 5 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-45-44-43-42-38 cm, felli af 3 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið nú ermakúpu fram og til baka. ATH! Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 53-52-52-52-52-49 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-53-53-53-53-50 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Vegna mynsturs þá verður að mynda hálsmál á bakstykki. Byrjið frá réttu og saumið 1 lykkju frá öxl á framstykki við 1 lykkju frá bakstykki, það koma til með að verða eftir ca 16-16-16-20-20-20 cm mitt á bakstykki fyrir hálsmáli. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í, innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í vinstra framstykki. HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 63 til 73 lykkjur hringprjón 7 með í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1) Fyrsta umferð (= frá röngu) er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 10 cm, eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Anna wrote:
Ich habe ein Problem, die Diagramme A2 und A4 mit dem Bild in Einklang zu bringen. A2 und A4 bilden einen ziemlich rechtwinkeligen Halsausschnitt. Auf dem Bild ist er allerdings schön geschwungen. Z.B werden bereits vor dem Beginn der inneren "Rauten"( zur vorderen Mitte) in mindestens zwei Reihen Patentmaschen gestrickt. In A2 und A4 beginnen Patentmaschen und "Rauten" gleichzeitig und somit fehlt die Rundung des Halsausschnitts. Könnten die Diagramme unvollständig sein?
14.11.2022 - 10:48DROPS Design answered:
Liebe Anna, beim A.2 und A.4 werden die Maschen für den Hals am Ende einer Reihe angeschlagen, dann die Maschen für das Patent muster stricken Sie bei der 2. gestrickte Reihe (= 3. gezeichnete Reihe in A.4), dh die rechte Nadel in die 1. Reihe einstechen und in diese Masche 1 Masche rechts stricken - wenn man der HOHER KRAGEN am Ende strickt, wird der Halsblende/ausschnitt rund. Viel Spaß beim stricken!
14.11.2022 - 11:22Heather wrote:
How do you do the yarn over between 2 stitches of row 3 of A1? At the end of the row I keep on getting more stitches than I cast on for the pattern (I cast on 53 and I keep on getting 60 stitches on my needle)
27.02.2022 - 22:10DROPS Design answered:
Dear Heather, work the middle sts in A.1 as follows: P2, K2 tog x 4 (4 sts decreased), (YO, K1)x7 times, YO (= 8 yarn overs), K2 tog x 4 (4 sts decreased), P2 - this way you should keep constant number of sts = 8 sts decreased compensated with the 8 yarn overs. Happy knitting!
28.02.2022 - 10:39Marja Stoelwinder wrote:
Wanneer komt het online?
14.09.2021 - 17:01DOYEN Marie-Line wrote:
Modèle superbe, vite fait avec cette grosse laine. les petites torsades rendent trop bien !!
03.08.2021 - 22:54