Lace Falls Set |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð húfa og vettlingar úr DROPS Puna eða DROPS Daisy með köðlum.
DROPS 225-40 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 20,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptist á eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 19. og 20. hver lykkja og 20. og 21. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Næsta útaukning er gerð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukninga í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. aukið út allan tímann utan með útauknum lykkjunum. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 124-132 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Puna eða DROPS Daisy. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 14 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 130-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón hringinn í 1-2 cm. Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð (= 13-14 mynstureiningar með 10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 24-25 cm frá uppfitjunarkanti (nú eru eftir ca 8 cm að loka máli, prjónið e.t.v. að óskaðri lengd) – stillið af þannig að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Prjónið nú A.2 yfir hvert A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 39-42 lykkjur í umferð. Fækkið nú lykkjum þannig: Prjónið 1-0 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 20-21 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 0-1 lykkja slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 10-11 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24-25 cm með 8 cm uppábroti neðst niðri. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Puna eða DROPS Daisy. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6½ cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið A.3 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 30-34 lykkjur og fækkið jafnframt um 10-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 42-46 lykkjur. Haldið áfram hringinn með sléttum lykkjum og prjónið A.3 yfir miðju 6 lykkjur á vettlingi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm, setjið eitt prjónamerki í 23.-25. lykkju í umferð (= þumallykkja). Aukið nú út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 lykkjur fyrir þumal = 52-58 lykkjur. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 13-14 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjur settar á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 20-21 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki, þannig að það verða 8-9 lykkjur á milli prjónamerkja í hvorri hlið og A.3 (= 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja neðan á vettlingi og 22-24 lykkjur á milli prjónamerkja á framhlið á vettlingi). Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, annarri hverri umferð 4 sinnum og í hverri umferð 1 sinni = 18-22 lykkjur. Þegar ekki er nægilegt pláss til að prjóna allar lykkjur í kaðli, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónaðar eru 2 og 2 lykkjur slétt saman = 9-11 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26 cm. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur aftan við þumal = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-6 cm (nú er eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Puna eða DROPS Daisy. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6½ cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= á undan 2 lykkjur slétt). Prjónið mynstur þannig: sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið A.3 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 30-34 lykkjur og fækkið jafnframt um 10-12 lykkjur jafnt yfir = 42-46 lykkjur. Haldið áfram hringinn með sléttum lykkjum og prjónið A.3 yfir miðju 6 lykkjur á vettlingi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm, setjið eitt prjónamerki í síðustu lykkju í umferð (= þumallykkja). Aukið nú út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 lykkjur fyrir þumal = 52-58 lykkjur. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 13-14 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjur settar á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 20-21 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki, þannig að það verða 8-9 lykkjur á milli prjónamerkja í hvorri hlið og A.3 (= 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja neðan á vettlingi og 22-24 lykkjur á milli prjónamerkja á framhlið á vettlingi). Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, annarri hverri umferð 4 sinnum og í hverri umferð 1 sinni = 18-22 lykkjur. Þegar ekki er nægilegt pláss til að prjóna allar lykkjur í kaðli, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónaðar eru 2 og 2 lykkjur slétt saman = 9-11 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26 cm. Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Maude Bouchard wrote:
Est-ce que le rang de montage mentionné dans la section sur le bonnet commence au début de l’ouvrage ou est-ce que ça commence au changement d’aiguille?
01.12.2021 - 18:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bouchard, le rang de montage mentionné correspond au rang où vous montez les mailles au tout début du bonnet. Bon tricot!
02.12.2021 - 09:23Patricia Thibert wrote:
Chaleur et élégance
03.08.2021 - 17:22