DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Wave Romance Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og öldumynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-4
DROPS Design: Mynstur ks-190
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-200-200-225-250-275 g litur 38, krít

DROPS TALA NR 522: 6-6-7-7-8-8 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með 2 þráðum og sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma með því að auka út á undan/eftir A.1/A.2. Þar sem ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum, þá er mismunandi hvort aukið sé út um 8 eða 4 lykkjur í hverri útaukningsumferð.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð).
1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð frá réttu. Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist gat, prjónið síðan 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. prjónið 5. og 6. lykkju frá kanti slétt saman).
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-10-8½-9-8-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ BOGALAGA UPPFITJUNARKANTI:
Fitjið upp 101-101-105-109-113-117 lykkjur á hringprjóna 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu:
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir 4 umferðir í stroffi er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, setjið hægri prjón framan við stykkið og undir uppfitjunarkantinn, notið hægri prjón og lyftið ystu lykkjunni á vinstra prjóni yfir á hægri prjón, setjið síðan hægri prjóninn aftur til baka undir uppfitjunarkantinn (einungis ysta lykkjan á hægri prjóni liggur nú í kringum uppfitjunarkantinn), setjið þessa lykkju til baka yfir á vinstri prjón og prjónið lykkjuna slétt (passið uppá að lykkjan sé ekki snúin) *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stykkið er núna með smáum bogum meðfram öllum kantinum
Haldið áfram með stroff eins og áður með 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stroffið á eftir bogunum mælist ca 5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 6-6-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 107-107-107-111-115-119 lykkjur.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1-1-2-3-4 lykkjur sléttprjón, A.1 (framstykki), * 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 1 uppsláttur (ermi), A.1, prjónið 3-3-3-5-7-9 lykkjur sléttprjón, A.1 (bakstykki), * 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 1 uppsláttur (ermi), A.1, prjónið 1-1-1-2-3-4 lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (framstykki).
Nú eru 131-131-131-135-139-143 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð frá röngu í sléttprjóni og mynstur eins og útskýrt er að ofan án þess að auka út á ermum, þessir 4 uppslættir sem auknir voru út frá réttu á milli A.1 á hvorri ermi, eru prjónaðir snúnir brugðið, svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA – lestu allan kaflann áður en þú prjónar:
Prjónið nú sléttprjón og mynstur eins og útskýrt er að ofan með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir 25 lykkjur í A.1. Endurtakið síðan A.2 á hæðina.
JAFNFRAMT í 3. umferð í A.1 byrjar útaukning fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir LASKALÍNA með því að auka út um 1 lykkju á undan/eftir A.1/A.2 – sjá útskýringu að ofan.
Ekki er aukið út eins á framstykki/bakstykki og ermum, aukið er út þannig:

FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10-15-19-22-25-30 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-4-3-3-3-1 sinnum:
ERMAR:
Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 21-23-25-29-30-31 sinnum.

Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, eru 279-299-319-351-371-391 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki mitt að framan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar: Prjónið fyrstu 48-51-54-58-62-66 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 49-53-57-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-97-105-113-121 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 49-53-57-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 48-51-54-58-62-66 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 193-205-221-237-257-273 lykkjur. Prjónið fram og til baka eins og áður með A.2, sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – þær 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið, prjónast í sléttprjóni.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 25 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu 3 eða 5 umferðir sléttprjón yfir uppslátt/úrtöku í A.2.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-20-22-24-26-26 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 211-225-243-261-283-299 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-53-57-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-59-65-73-77-79 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4-4-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-12-13-13 sinnum = 43-45-47-49-51-53 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-31-29-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 39-38-36-34-33-31 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, lyftið næst ystu lykkjunni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til búið er að lyfta öllum 4 lykkjunum yfir (= 4 lykkjur færri), lyftið til baka síðustu prjónuðu lykkjunni yfir á hægri prjón
symbols = PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SNÚNAR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til búið er að lyfta öllum 4 lykkjunum yfir (= 4 lykkjur færri)

symbols = setjið 1 lykkju yfir á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Chantale wrote:

Bonjour j aimerais savoir si je peut remplacer le fil demander par l alpaca merci et si oui 1 ou 2 fil en même temps merci

17.05.2024 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Chantale, tout à fait, vous pouvez remplacer Kid-Silk par Alpaca car les 2 laines sont du même groupe de fils, il vous faudra juste utiliser 2 fils aussi, car on tricote avec le fil en double; faites calculer la quantité nécessaire pour votre taille grâce au convertisseur. Bon tricot!

21.05.2024 - 12:05

country flag Inga Marie Eriksen wrote:

Finnes det retting på denne oppskriften ? Når første rette omg. er strikket er det for mange masker igjen... 16 masker forskjell mellom oppskriftens 1. omg ( 119) og det som blir oppgitt som maskeantall (135 m) Hvor skal disse ???

05.05.2024 - 17:57

DROPS Design answered:

Hei Inga. Ingen rettelse på denne oppskriften. Siden du ikke opplyser hvilken str. du strikker, men skriver 135 m etter første pinne, går jeg ut fra at du strikker str. XL. Etter halskanten har du 111 m og 1. pinne på bærestykket fra retten strikkes slik: 6 stolpemasker + 2 m glattstrikk + A.1 (21 m + 4 kast) + 1 kast, 1 rett + 1 kast, 1 rett + 1 kast, 1 rett + 1 kast + A.1 (21 m + 4 kast) + 5 m glattstrikk + A.1 (21 m + 4 kast) + 1 kast, 1 rett + 1 kast, 1 rett + 1 kast, 1 rett + 1 kast + A.1 (21 m + 4 kast) + strikk 2 m glattstrikk + 6 stolpemasker = 135 masker (inkl. kastene). Mvh DROPS Design

06.05.2024 - 12:53

country flag Taina wrote:

Hei! Ohjeessa on mielestäni yksi kohta epäselvä. Olen tehnyt kaarrokkeen mallikerroksen 3. rivin useaan kertaan, sillä luulin, että 1 langankierto, 1 s oikein (toistetaan 3 kertaa) tehdään aina oikealla puolella neuletta. Nyt vihdoinkin tajusin, ettei hihoissa tehdä langankiertoja kummallakaan puolella ensimmäisen kerran jälkeen. Tämä kohta kannattaisi selventää suomeksi, ettei muiden tarvitse pähkäillä sitä kuten minun. Melkein jo luovutin kokonaan.

01.05.2024 - 17:22

country flag Taina Pemberton wrote:

Hi! I printed out the instructions for this pattern in Finnish but read them in English first. I noticed that in English it says to use needle sizes 5 mm and 3.5 mm but in Finnish it says 5 mm and 4 mm. Which is it, please?

16.04.2024 - 15:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pemberton, English pattern is here wrong, you need needle size 5 mm and 4 mm, thanks for noticing. Happy knitting!

16.04.2024 - 15:55

country flag Hélène wrote:

Bonjour Je ne comprends pas dans l'empiècement "mais sans augmenter dans les manches" est ce que ça veut dire que les 4 jetés des manches sont "lâchés" ou doit on les tricoter torse? Merci beaucoup Hélène

18.03.2024 - 19:07

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, au rang suivant sur l'envers, tricotez toutes les mailles comme avant, continuez A.1 et tricotez les mailles jersey à l'envers mais n'augmentez pas encore une fois comme au rang précédent. Les jetés des manches se tricotent torse pour éviter les trous, comme les jetés de A.1. Bon tricot!

19.03.2024 - 11:40

country flag Janne wrote:

Skal det økes på ermene 1 kast/1 rettx3+1 kast på alle rette pinner videre? Eller bare på den første pinnen etter vrangbord?

26.12.2023 - 08:05

DROPS Design answered:

Hej Janne, du øger kun på første pind i A.1, så du har nok masker til at strikke diagram A.2 over 25 masker :)

02.01.2024 - 10:26

country flag Lindberg wrote:

Hej! När jag är på tredje varvet A1 ska jag börja öka till raglan före och efter A1. Samtidigt står det i beskrivningen att jag ska fortsätta mönstret som ovan när jag stickar A1-varven. Betyder det att jag ska fortsätta ökningen * 1 omslag, 1 rätmaska *, sticka *-* totalt 3 gånger också varje varv på rätsidan medan jag stickar A1? Men inte öka för ärm mer gånger?

29.10.2023 - 15:27

country flag Martine wrote:

Je ne comprends pas du tout les augmentations. Sur le modèle il est écrit d'augmenter avant/après A1/A2 et aussi avant et après les manches. Or je compte sur un rang 12 augmentations, soit 2 pour le devant, 2 pour la manche droite, 4 pour le dos, 2 pour la manche gauche et 2 pour le côté gauche. Or vous dites que l'on augmente parfois 8 ou parfois seulement 4 . Pouvez-vous m'expliquer s'il vous plaît ? Merci par avance.

17.09.2023 - 13:26

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, au 1er rang de A.1 vous allez augmenter 4 mailles dans chaque A.1 (en plus des augmentations des raglans), mais ensuite, vous augmenterez seulement pour le raglan, quand A.1 est terminé, vous répétez A.2. Vous augmentez ensuite avant/après A.2 tous les 2 rangs puis tous les 4 rangs, mais à un rythme différent selon votre taille, autrement dit vous augmenterez par ex tous les 2 rangs 8 mailles (dos, devants et manches), puis alternativement tous les 2 rangs 4 mailles (manches seulement quand on doit augmenter tous les 4 rangs pour le dos et les devants mais toujours tous les 2 rangs pour les manches). Bon tricot!

18.09.2023 - 15:43

country flag Inger Marie Toft wrote:

Hvordan skal 3. omgang forstå'e. ?? Efter mønster A 1, skal der så strikkes glat til man når om til sidste A1 inden forkant. ?? Altså kun glatstrikning imellem de to mønstre .??

21.08.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Hei Inger Marie Du strikker A.1 4 ganger pr rad (2 foran og 2 bak). Første gang du strikker A.1 økes det 4 masker på hver erme, disse maskene strikkes vrang fra vrangen (=glattstrikk). På neste rad fra retten (3.rad / A.1) starter økningene til raglan og det strikkes glattstrikk i begynnelsen av raden (etter de 6 kantmaskene), over 1. erme, på bakstykket, over 2. erme og på slutten av raden (før de 6 kantmaskene). mvh DROPS Design

28.08.2023 - 10:27

country flag Tim wrote:

Bij de pas staat: recht OMSLAG, recht OMSLAG, OMSLAG en dat 2x. Dat maakt 6x OMSLAG. En je moet er 4 gedraaid breien om geen gaatje te krijgen. Welke 4 moet je gedraaid breien? Het zijn er 6 niet 4.

14.08.2023 - 22:25

DROPS Design answered:

Dag Tim,

Tussen de sterretjes staat: 1 omslag en 1 recht. Dat wat tussen de sterretjes staat herhaal je nog 2 keer, dus dan heb je 3 omslagen in totaal. Dan staat er nog 1 omslag. Hetzelfde is het geval bij de andere mouw, daar heb je ook 4 omslagen.

16.08.2023 - 19:31