DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 847.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blue Shore

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-52
DROPS Design: Mynstur st-013
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 11, vatnsblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 847.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út mitt undir ermi þannig – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-216-228-248-272-300 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-20-20-24-28 lykkjur jafnt yfir = 180-196-208-228-248-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota það þegar stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið næstu umferð þannig – byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 86-94-100-110-120-132 lykkjur, fellið af næstu 4 lykkjur, prjónið síðustu 86-94-100-110-120-132 lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 86-94-100-110-120-132 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-51 cm setjið miðju 42-44-44-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir fyrstu 22-25-28-32-36-41 lykkjur (fram að þræði), snúið, prjónið fyrstu 2 lykkjur brugðið saman og prjónið brugðið út umferðina. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir síðustu 22-25-28-32-36-41 lykkjur í umferð, snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, í lok umferðar eru síðustu 2 lykkjur prjónaðar brugðið saman. Setjið til baka allar lykkjur á prjóninn og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og prjónið upp 2 lykkjur í hvorri hlið (á milli lykkja fyrir hálsmáli og lykkjur fyrir öxl) að hálsi = 88-96-102-112-122-134 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 10-10-12-14-12-12 lykkjur jafn yfir = 98-106-114-126-134-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff þannig – frá réttu: 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff svona í 7-7-8-8-9-9 cm. Fellið af. Stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón, þegar stykkið mælist 7 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið út með 8-5½-5-4-4-3 cm millibili alls 6-8-8-10-9-11 sinnum = 68-72-76-80-82-86 lykkjur. Þegar ermin mælist 48-47-46-45-43-41 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 49-48-47-46-44-42 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1 cm efst á ermi.
Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, skiljið eftir ca 23-24-25-26-27-28 cm fyrir hálsmáli.
Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-52

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Kath wrote:

What does this mean? "Sew sleeve cap to armhole. Then sew vent at the top of sleeve to bottom of armhole - see chart." The chart does not explain how to "sew a vent". Please provide an explanation or a link to a demonstration.

19.02.2024 - 19:35

DROPS Design answered:

Hi Kath, The sleeve cap is sewn to the main body of the armhole, leaving a gap at the bottom. This is the "vent", which is then sewn together. The sketch showing how this is done is at the bottom of the pattern, under the size chart. Here is a link to a video on how to sew the sleeve to the armhole : https://www.garnstudio.com/video.php?id=1685&lang=en Happy knitting!

20.02.2024 - 07:06

country flag Kathy wrote:

How do I pick up live stitches? Where is there a diagram? I don't know how to do the following: "knit 1 row from right side and pick up 2 stitches in each side (between stitches for neck and stitches for shoulder) towards the neck = 88-96-102-112-122-134 stitches."

19.02.2024 - 19:22

DROPS Design answered:

Dear Kathy, this video shows how to pick up stitches, you will have here to pick up stitches in the stitches along the 2 rows worked between the stitches unworked for neck and stitches worked for shoulders. Happy knitting!

20.02.2024 - 07:55

country flag Andrea wrote:

Benötige Hilfe! Bitte, um Löcher zu vermeiden muss es doch eine gute Lösung geben. 28 M sind jeweils außen, 44 in der Mitte. Nachdem die beiden Schulterbereiche (sind in Fakt nur 2 R.), gearbeitet sind, nehmen ich alle M wieder auf und soll da wo ich grad zwei M zus. gestrickt habe neue M auffassen. Problem:zusätzlich zu der dicken Stelle vom zus. stricken der 2 M pro Seite ist da ein neuer Faden.

29.01.2024 - 19:17

country flag Karolin wrote:

Ich würde mir wünschen das die Fotos so gemacht sind das man die Modelle wirklich gut sehen kann. Leider gibt es bei vielen Modellen nur Fotos die die Teile nur teilweise zeigen, und das oft merfach, also dann 4 Fotos und auf keinem sieht man das Modell komplett. Schade

04.11.2023 - 22:03

country flag Francesca wrote:

Che taglia porta la modella?

25.08.2023 - 13:24

DROPS Design answered:

Buongjorno Feancesca, solitamente la modella indossa la taglia M. Buon lavoro!

25.08.2023 - 15:32

country flag Sandra wrote:

Liebes Drops-Team, ich habe ein Problem am U Boot Ausschnitt. Es bilden sich Löcher wenn ich die verkürzten Reihen stricke und die 2 Maschen zusammenstricke. Wie kann ich das verhindern. Zum anderen muss ich alle stillgelegten Maschen wieder auf die Rundnadel aufnehmen. Dann befindet sich der Faden mitten in der Rundstricknadel. Muss ich dann ebenfalls den Faden abschneiden,?

27.10.2022 - 22:56

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, also ja diese Reihen für die Schulter werden separat gestrickt, dh nach 2 Reihen über die 1. Seite schneiden Sie den Faden ab, und stricken Sie die 2. Schulter. Nach 2 Reihe über die 2. Schulter stricken Sie alle Maschen (und fassen Sie neuen Maschen dazwischen). Viel Spaß beim stricken!

28.10.2022 - 10:18

country flag Sandra wrote:

Ich den Faden abtrennen und von vorne beginnen?

27.10.2022 - 22:50

country flag Maria Sciascia Cesana wrote:

Buongiorno, sto lavorando il davanti e sono arrivata a 44 cm. Ho lavorato le prime 22 m e ho messo in sospeso 42 m. per il collo , ecc. \r\nDa quando scrivete\" riportare tutte le maglie sul ferro e lavorare 1 ferro a diritto e riprendere 2 m da ogni lato ecc.\" non capisco cosa devo fare esattamente.\r\nPotete per favore spiegarmi meglio il procedimento? Grazie mille.

16.09.2022 - 15:23

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, deve rimettere sul ferro anche le maglie in sospeso. Buon lavoro!

27.09.2022 - 22:27

country flag Marie-Josee Boesten wrote:

Hi, I do not understand why you recommend needles 4.5 and 5.5 here, while on the yarn itself it says needles 4. I have used Soft Tweed before and with 4 it works well, but I feel with 5.5 the tension is way too loose, And in other patterns with Soft Tweed the recommendation is size 4 (and even 3) . I would really appreciate your advice. thank you very much

05.06.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Dear Marie-Josee, this sweater has a looser texture than the usual texture with Soft Tweed. So the gauge has to be a bit looser than usual. However, if you obtain the gauge in this pattern (18 sts in 10 cm) with your usual needle, you can use that without problems. The important thing is that the gauge matches, and not the needle size. Happy knitting!

06.06.2022 - 13:30

country flag Heather wrote:

Where are the instructions for how to do the “sleeve cap”?

02.04.2022 - 23:58

DROPS Design answered:

Hi Heather, The split you work at the end of the instructions for the sleeve, is the sleeve cap. Happy knitting!

04.04.2022 - 07:06