Grandma’s Hugs |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi með ferningum úr DROPS Air.
DROPS 229-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. LITIR FERNINGUR (A.1 til A.3): UPPFITJUN OG UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: bleikur sandur UMFERÐ 3: blush UMFERÐ 4: hveiti UMFERÐ 5: beige UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: bleikur sandur UMFERÐ 8: natur LITIR KANTUR (A.4 til A.6): UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: hveiti UMFERÐ 3: beige UMFERÐ 4: natur UMFERÐ 5: bleikur sandur UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: blush UMFERÐ 8: bleikur sandur UMFERÐ 9: natur LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkju í umferð með lit sem er í umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á síðustu lykkjunni, skiptið yfir í næsta lit og heklið síðasta uppsláttinn og dragið þráðinn í gegn með nýja litnum, heklið síðan áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af 6 ferningum sem saumaðir eru saman með 2 ferninga á breiddina og 3 ferninga á hæðina. Heklið síðan kant í kringum allt teppið. EINN FERNINGUR: Sjá LITIR FERNINGUR í útskýringu að ofan. Byrjið með heklunál 5 og litinn natur í DROPS Air. Heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Sjá LITASKIPTI og heklið mynsturteikningu A.1 (hringur). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið þannig: Heklið A.2 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.3 alls 4 sinnum í hringinn. Heklið A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. Heklið alls 6 ferninga. FRÁGANGUR: Leggið ferningana flata með 2 ferninga á breiddina og 3 ferninga á lengdina – sjá A.7. ATH: Passið að ferningurinn sem merktur er með stjörnu liggi þannig að lok umferðar snúi út að ytri kanti. Stjarnan merkir byrjun á kanti. Saumið ferningana saman kant í kant þannig að saumurinn verði flatur. Klippið þræðina og festið. KANTUR: Sjá LITIR KANTUR í útskýringu að ofan. Byrjið í lykkju í A.2 á ferningi sem er merktur með stjörnu í A.7. Heklið A.4 í þessa lykkju, heklið A.5 alls 3 sinnum, heklið A.6 í hornið á teppinu, heklið A.5 fram að næsta horni á teppi – ATH: Í hvern saum á milli 2 ferninga er hekluð 1 loftlykkja, 2 stuðlar um hornbogann á öðrum ferningnum, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um hornbogann á hinum ferningnum. Haldið svona áfram í kringum allt teppið. Þegar A.4 til A.6 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Ali Altink wrote:
Wat een prachtige deken.
11.03.2022 - 21:20Annie wrote:
Le crochet est tendance
22.02.2022 - 09:06Charlaine wrote:
70' Remembers
02.02.2022 - 13:44Heini wrote:
Summer Hug
17.01.2022 - 21:35