Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu |
|
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt | |
= þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Cotswolds Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með laskalínu og gatamynstri, ofan frá og niður. Stærð 0 – 2 ára.
DROPS Baby 43-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu nákvæmlega eftir kant í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 4½-4½ 5-5½-6 cm millibili. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Á framstykki og bakstykki eru útaukningarnar teiknaðar inn í mynsturteikningu. Á ermum er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt. Í næstu umferð er uppsláttur prjónaður í útaukningu snúinn slétt, svo ekki myndist gat! Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 10-12-14-16-17 sinnum. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað fram og til baka hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-93-93-111-111 lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3. BERUSTYKKI: Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Í fyrstu umferð frá réttu eru sett 4 prjónamerki í stykkið, aukið út og prjónið mynstur þannig: Framstykki: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 er prjónað 0-0-0-1-1 sinni, A.3. Ermi: Setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi). Bakstykki: A.4, A.2 er prjónað 3-3-3-4-4 sinnum, A.3. Ermi: Setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Framstykki: A.4, A.2 er prjónað 0-0-0-1-1 sinni, A.5 og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA á ermi - lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 er prjónað 1-1-1-2-2 sinnum, A.3, prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermar eins og áður fram til og með 2. prjónamerki, A.4, A.2 er prjónað 5-5-5-6-6 sinnum, A.3, prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermi eins og áður fram til og með 4. prjónamerki, A.4, A.2 er prjónað 1-1-1-2-2 sinnum, A.5 og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið mynstrið á hæðina. Í hvert skipti sem A.3 og A.4 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.2 á hvoru framstykki og 2 mynstureiningar fleiri á bakstykki. Þegar A.3 og A.4 hefur verið endurtekið alls 2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, hefur útaukning verið gerð til loka á framstykkjum og á bakstykki, haldið einungis áfram með útaukningu á ermum eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með mynstur á bakstykki eins og áður, nema án útaukningar. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 189-197-229-255-259 lykkjur í umferð. Nú er mynstrið prjónað þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 7 lykkjur, A.2 er prjónað 3-3-4-5-5 sinnum, 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 9-9-11-12-12 sinnum, 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 3-3-4-5-5 sinnum, A.5 og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 5. umferð í A.2 er prjónuð á bakstykki, prjónið slétt yfir fyrstu lykkju í fyrstu mynstureiningu, síðasta lykkjan í síðustu mynstureiningu er prjónuð yfir fyrstu lykkju á ermi. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 25-25-31-37-37 lykkjur mynstur eins og áður, setjið næstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 54-54-66-72-72 lykkjur mynstur eins og áður, setjið næstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 24-24-30-36-36 lykkjur mynstur eins og áður og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 127-127-151-169-169 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1, prjónið A.2 þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.5 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 9-12-13-15-17 cm frá skiptingu, aukið út um 20-20-22-26-26 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 147-147-173-195-195 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff og kant að framan í garðaprjóni í 3 cm. Fellið af. Peysan mælist alls ca 24-28-30-33-36 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-45-49-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-47-51-55-57 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-2-2½ cm millibili alls 3-5-6-7-8 sinnum = 37-37-39-41-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-12-15-16-22 cm frá skiptingu aukið út um 5 lykkjur jafnt yfir = 42-42-44-46-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm. Ermin mælist ca 13-15-18-19-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (74)
Ginette wrote:
Je fais la taille 6/9mois
05.07.2023 - 13:11DROPS Design answered:
Bonjour Ginette, donc vous avez 93 mailles que vous tricotez ainsi: 6 m point mousse, 7 m de A.1, et 5 m de A.3 (18 m pour le devant gauche), puis 1 m end avec 1 marqueur (1 m raglan), puis 12 m end (+ 4 = 16 m pour la manche gauche), 1 m end avec 1 marqueur (1 m raglan), puis 6 m de A.4, 3 x les 6 m de A.2 et les 5 m de A.3 (6+18+5=29 m pour le dos) puis 1 m end avec 1 marqueur (1 m raglan), puis 12 m end (+ 4 m = 16 m pour la manche droite), 1 m end avec 1 marqueur (1 m raglan), et enfin les 6 m de A.4, les 6 m de A.5 et 6 m point mousse (= 17 m pour le devant droit) soit: 18 +1+12+1+29+1+12+1+18=93 m (sans les augmentations). Bon tricot!
05.07.2023 - 13:42Ginette wrote:
J ai tricoté le 1° rang de l empiècement il me rest e 8 m avant les 6 m de bordure je ne comprends pas où est mon erreur, j ai bien mis une m pour les marqueurs . Serait ce pour les manches quand vous écrivez 12m Jersey en augmentant 4 m doit on en avoir 16m au total ou 12m? Merci d avance pour votre réponse
05.07.2023 - 10:56DROPS Design answered:
Bonjour Ginette, quelle taille vous faites?
05.07.2023 - 13:04Anna Larsen wrote:
Rikke har ret! Der er et eller andet galt med mønsteret, maskeantal passer ikke, selv om man udelader udtagningerne. Jeg har selv fiflet noget, så det nogenlunde ligner. Pas navnlig på, at de små snoninger, der ligger lige op til forkanter, bibeholdes med samme pindeantal imellem!
01.07.2023 - 18:36Anna wrote:
Måske samme problem som Rikke? Når man skal strikke A3 og A4 uden udtagninger, vil det så sige, at man på 1. og 5. række udelader det sidste omslag i A3 og det første i A4? Og i række 3 og 7 de 2 sidste omslag i A3 og de 2 første i A4?
23.06.2023 - 13:19DROPS Design answered:
Hej Anna, ja da hopper du bare over de yderste omslag som er markeret sort i diagrammerne :)
29.06.2023 - 14:20Rikke wrote:
Hej! Jeg strikker str 1/3 mrd. og er færdig med A3 og A4 i højden x 2, og skal nu kun tage ud på ærmerne. Hvordan skal jeg fortsætte mønsteret på forstykkerne og rygstykket? Maskeantallet går ikke op med kun at strikke A1 og A2 x 3 på venstre forstykke og A2 x 3 og A5 på højre. Jeg har aktuelt 24 (+6 kant) masker på begge forstykker, og eftersom A1 er på 7 masker, kommer det ikke til at gå op. Det går heller ikke op at fortsætte med A3 og A4 uden udtagninger pga mønsteret.
18.06.2023 - 13:50Katarzyna Majdan wrote:
Wykonuje rozmiar 6/9 m Pozdrawiam
08.05.2023 - 15:00DROPS Design answered:
Witaj Kasiu, dalej przerabiasz tył i przody ściegiem ażurowym, ale nie dodajesz już oczek na reglany tyłu/przodów. W tym momencie powinnaś mieć 40 oczek na rękawach. Zostają Ci jeszcze 2 rzędy na prawej stronie robótki z dodawaniem oczek, ale tylko na rękawy (reglany rękawów). Pozdrawiamy!
08.05.2023 - 16:12Katarzyna Majdan wrote:
Witam serdecznie obecnie jestem w części Karczek :Gdy schematy A.3 i A.4 zostaną przerobione 2-2-3-3-3 razy na wysokość, dodawanie oczek na przodach i tyle jest zakończone; dalej dodawać oczka tylko na rękawach. Dalej przerabiać przody i tył ściegiem ażurowym, ale bez dodawania oczek. I utknęłam nie do końca rozumiem jak powinnam przerabiać i chciała bym wiedzieć ile jest w obecny momencie oczek na rękawach
07.05.2023 - 12:55DROPS Design answered:
Witaj Kasiu, napisz który rozmiar wykonujesz.
08.05.2023 - 10:58Annette Enk wrote:
Liegt mein Fehler vielleicht in Reihe 3? Muss nur eine Zunahme, die ja in der Rückreihe verschränkt abgestrickt wird, weggelassen werden?
30.03.2023 - 17:05DROPS Design answered:
Liebe Frau Enk, es sind beim Rumpfteil keine Zunahmen mehr gestrickt, so stricken Sie glattrechts alle Extra Maschen im Diagram, die nicht zum Lochmuster gehören, beachten Sie nur, daß im A.3/A.4 genauso viele Umschläge und Abnahmen sind, so nehmen Sie nicht mehr zu. Viel Spaß beim stricken!
11.04.2023 - 09:49Annette Enk wrote:
Ich muss noch 3 Raglanzunahmen an den Ärmeln machen. Bei Rumpf- u. Vorderteilen habe ich die Zumahmen wie beschrieben weggelassen und bin jetzt in Reihe 5 beim Vorderteil. Wie endet die Reihe? Ich muss ja immer soviele Abnahmen wie Zunahmen arbeiten, damit die Maschenzahl gleich bleibt. Geht bei mir nicht auf. Wo ist mein Fehler?
30.03.2023 - 16:58DROPS Design answered:
Liebe Frau Enk, über Vorderteile strickt man jetzt nur A.2 + A.1 nach den Blenden-Maschen (linkes Vorderteil) und A.5 vor den Blenden-Maschen (rechtes Vorderteil). Viel Spaß beim stricken!
11.04.2023 - 09:47Tonya wrote:
I am enjoying the challenging pattern. Working a 6/9 month size. I have finished the increases on the yoke and I am working the pattern. I am working round 5, but I don’t understand, “when you work round 5 in A.2 on the back piece (and here’s what I don’t understand->) knit the first stitch in the first repeat…. “
29.03.2023 - 21:22DROPS Design answered:
Dear Tonya, it means that, when working round 5 of A.2 for the first time in that round, in the first repeat you start working: knit1, yarn over, knit 1, yarn over and then the decrease. Afterwards, the last stitch of the last repeat of A.2 is worked over the first stitch of the sleeve (A.5). Remember that the last stitch of each repeat of A.2 is the first stitch of the first repeat, except for the last repeat. Happy knitting!
02.04.2023 - 16:40