Harbour Highlights Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og 2-lita klukkuprjóni. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 43-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH. Lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu hvort sem prjónað er frá réttu eða röngu, en þegar prjónað er frá röngu er hver mynsturteikning lesin frá vinstri til hægri og frá röngu er mynsturteikning lesin í gagnstæðri röð en þegar lesið er frá réttu. LEIÐBEININGAR: Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða litur er í fyrri umferð sem prjónað var með í lit á kanti í kantlykkju. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (prjónað frá röngu með litnum ljós perlugrár): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (prjónið frá réttu með litnum ljós perlugrár): 1 lykkja slétt, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt. Færið til baka lykkjur að hinni hliðinni á hringprjóninum (án þess að snúa stykkinu), þannig að næsta umferð sé prjónuð frá sömu hlið og þessi umferð. UMFERÐ 3 (prjónað frá réttu með litnum sjávarþoka): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (prjónað frá röngu með litnum ljós perlugrár): 1 lykkja slétt, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, prjónið 1 lykkju slétt. Færið lykkjurnar til baka að hinni hliðinni á hringprjóninum (án þess að snúa stykkinu), þannig að næsta umferð sé prjónuð frá sömu hlið og þessi umferð. UMFERÐ 5 (prjónað frá röngu með litnum sjávarþoka): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 2-5. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): UMFERÐ 1 (prjónað með litnum ljós perlugrár): * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2 (prjónað með litnum sjávarþoka): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina (athugið, síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum ljós perlugrár er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að það myndist uppsláttur). Endurtakið umferð 1 og 2. LASKALÍNA: Aukið út um 4 lykkju í slétta lykkju með prjónamerki, í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar og sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstrið, en það er enginn klukkuprjónsuppsláttur í útaukningu, þess vegna er lykkjan sem prjóna ætti saman með uppslætti í næstu umferð, prjónuð án uppsláttar. Síðan eiga prjónamerkin alltaf að sitja í miðju af 5 lykkjunum. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 1. umferð í A.1. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru á eftir lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir lykkjum) slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 3 næstu lykkju (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru kantar prjónaðir að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 81-85-85-95 (97-99) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum sjávarþoka í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 2-2-2-4 (4-4) umferðir stroff, fellið af fyrir 1 hnappagati í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af 2 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjur sem felldar voru af. Þegar prjónaðar hafa verið alls 5-5-5-7 (7-7) umferðir stroff, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið brugðið yfir næstu 69-73-73-83 (85-87) lykkjur og fækkið jafnframt um 0-0-4-0 (2-4) lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu 6 lykkjur slétt, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 69-73-69-83 (83-83) lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki sem var sett eftir stroffið. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki frá réttu í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 9-11-9-13 (13-13) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-27 (27-27) lykkjur, setjið 1 lykkju í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 9-11-9-13 (13-13) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Byrjið frá röngu með litnum ljós perlugrár og prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umferð (rétta), aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri lykkju með prjónamerki í – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 0-0-2-2 (2-3) sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 7-8 (7-7-8-8) sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 181-201-213-227 (243-259) lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist ca 11-12-13-14 (15-16) cm frá prjónamerki við hálsmál – endið eftir 4. umferð í mynstri. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (= 5. umferð í mynstri): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 26-28-31-33 (35-38) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 51-59-61-63 (71-77) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 26-28-31-33 (35-38) lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 113-125-137-143 (155-167) lykkjur. Byrjið frá réttu með 2. umferð í tveggja lita klukkuprjóni og haldið áfram fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (munið að lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum hafa ekki klukkuprjónsuppslátt í fyrstu umferð). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 1-4-5-2 (6-9) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 2. umferð í tveggja lita klukkuprjóni, prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.1, prjónið A.2 alls 18-20-22-23 (25-27) sinnum, A.3, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, þ.e.a.s. tveggja lita klukkuprjón heldur áfram eins og áður, en í 12. hverri umferð (prjónað frá réttu með litnum ljós perlugrár), aukið út og fækkið lykkjum í mynstri eins og útskýrt er í A.3. Haldið áfram með A.1 til A.3 þar til stykkið mælist ca 9-12-13-15 (17-20) cm frá skiptingu – endið eftir umferð með ör í A.3. Prjónið síðan með litnum sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem allir uppslættir eru prjónaðir slétt saman með lykkjunni sem þeir tilheyra 113-125-137-143 (155-167) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið jafnframt út um 20-26-26-26 (30-30) lykkjur jafnt yfir = 133-151-163-169 (185-197) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-43-45-49 (51-53) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 2,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7 (7-7) lykkjum undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 3.-3.-5.-5. (5.-5.) lykkju undir ermi. Prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – prjónað í hring – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram eftir berustykki og munið eftir að lykkjurnar sem prjónaðar voru upp mitt undir ermi eru ekki með klukkuprjónsuppslætti í fyrstu umferð. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-3 (6-6) cm millibili alls 1-2-2-3 (3-3) sinnum = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 7-10-12-13 (18-22) cm – endið eftir umferð með litnum sjávarþoka og haldið síðan áfram með litinn sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættir eru prjónaðir slétt saman með lykkjunni sem þeir tilheyra = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-2-2 (4-4) lykkjur jafnt yfir = 42-42-46-46 (50-52) lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 9-12-14-15 (20-24) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, notið hringprjón 2,5 og litinn sjávarþoka og prjónið upp ca 61-71-77-85 (93-105) lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni upp þar sem lykkjur voru felldar af í kanti í hálsmáli. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur að framan mælist 1 cm, fellið af fyrir 4-4-4-4 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett ca 1½ til 2 cm frá neðri kanti. Fella á af fyrir efsta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. Þau 3-3-3-3 (4-4) hnappagöt sem eftir eru eiga að vera staðsett jafnt yfir á milli efsta og neðsta hnappagata. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Prjónið áfram þar til kanturinn að framan mælist ca 1½ til 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu efst í hálsmáli í vinstra framstykki þar sem lykkjur voru felldar af í kanti í hálsmáli, notið hringprjón 2,5 og litinn sjávarþoka og prjónið upp jafnmargar lykkjur og á hægra framstykki. Prjónið stroff á sama hátt og í hægri kanti að framan þar til kanturinn að framan mælist ca 1½ til 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Bernadette wrote:
I've knitted the neck and am now placing markers for the yoke. There are 69 stitches on the needle in all. I placed market's at 9, 13, 21 13 and the pattern says there should be 9 stitches left after the last marker, but 9 +13+21+13+9 = 65 not 69, so I'm left with 4 stitches extra at one side. What am I doing wrong here?
13.04.2022 - 12:51DROPS Design answered:
Dear Bernadette, you need to place the marker in the next stitch and not between stitches. This way, you have 69 stitches. Happy knitting!
14.04.2022 - 18:25