DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cloud Catcher

Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, kúlum og sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-32
DROPS Design: Mynstur cm-143
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 09, ísblár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umferð sem byrjar með stuðlum, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Í hverri umferð sem byrjar með fastalykkjum, er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Þegar gatamynstrið er heklað (þ.e.a.s. stuðlar og loftlykkjur) er heklað þannig:
Þegar umferðin byrjar með 1 stuðli, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Þegar umferðin byrjar með 1 loftlykkju, er síðasta stuðli skipt út frá fyrri umferð með 3 loftlykkjum þannig:
Heklið 3 loftlykkjur (kemur í stað síðasta stuðul), 1 loftlykkja (fyrsta loftlykkja í mynstri), hoppið yfir síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju (þetta er gert til að umferðin færist ekki til).

GATAMYNSTUR:
Mynstrið er heklað þegar mynsturteikningin gengur ekki jafnt upp yfir laskalínu og undir ermi þannig:
UMFERÐ 1: Heklið * 1 stuðul um næstu loftlykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-*.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull um næstu loftlykkju *, heklið frá *-*.
Stillið af hvaða umferð er byrjað á miðað við mynstur í mynsturteikningu.

ÚTAUKNING:
Aukið út í lykkju mitt undir ermi þannig:
Stillið af að síðasta umferðin sé umferð þar sem lykkjan mitt undir ermi er hekluð sem 1 loftlykkja. Um þessa loftlykkju er heklaður 1 stuðull, 1 loftlykkja og 1 stuðull um sömu loftlykkju (= 1 loftlykkjubogi fleiri). Aukið svona út í hvorri hlið (= alls 2 loftlykkjubogar fleiri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Heklið 2 fyrstu / síðustu stuðla í umferð saman þannig:
Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, hoppið yfir 1 stuðul (þ.e.a.s. það er ekki hekluð nein loftlykkja), 1 stuðull um næstu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull og 1 loftlykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið og ermar halda áfram í hring hvert fyrir sig.

BERUSTYKKI:
Heklið 84-86-90-98-100-104 loftlykkjur - sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur þannig:
Umferðin byrjar í skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis.
Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju og aukið út um 0-14-10-18-16-28 stuðla jafnt yfir = 84-100-100-116-116-132 lykkjur.
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.1, * A.2 alls 4-5-5-6-6-7 sinnum, A.3, A.4, A.5 *, A.6, heklið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7.
Haldið svona áfram með mynstrið.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar mynstrið hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 208-228-228-248-248-268 lykkjur í síðustu umferð (kúlurnar eru taldar sem 1 lykkja).
Stykkið mælist ca 13 cm.

STÆRÐ S-M-L-XL:
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.1a um loftlykkjubogann á milli 2 fyrstu kúlna, * A.2a alls 5-6-6-7 sinnum á breiddina, A.3a, A.8a, A.4a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, A.9a, A.5a, A.10a *, A.6a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7a.
Heklið fyrstu 5-5-8-9 umerðir í mynstri á hæðina. Í næstu umferð (þ.e.a.s. 6.-6.-9.-10. umferð í mynstri) er kúlunum skipt út í laskalínu (þ.e.a.s. 2 fyrstu kúlurnar í A.1a og mitt í A.4a og A.6a) með stuðlum (þ.e.a.s. 1 kúla = 1 stuðull) = 256-276-300-328 lykkjur.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.1a um loftlykkjubogann á milli 2 fyrstu kúlna, * A.2a alls 7-8 sinnum á breiddina, A.3a, A.8a, A.4a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, A.9a, A.5a, A.10a *, A.6a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7a.
Haldið svona áfram með mynstur.
Í hvert skipti sem A.1a, A.4a, A.6a og A.7a er endurtekið á hæðina, heklið 1 mynstureiningu fleiri af A.2a og A.8a á breiddina á framstykki/bakstykki og 1 mynstureiningu fleiri af A.9a og A.10a á breiddina á hvorri ermi (þ.e.a.s. aukið út um 80 lykkjur í 1 endurtekningu á hæðina).
Heklið A.1a til A.7a alls 2-2 sinnum á hæðina = 328-348 lykkjur.
Heklið fyrstu 2-4 umferðir af mynstri 1 sinni til viðbótar á hæðina. Í næstu umferð (þ.e.a.s. 3.-5. umferð í mynstri) er kúlunum skipt út í laskalínu (þ.e.a.s. 2 fyrstu kúlurnar í A.1a og mitt í A.4a og A.6a) með stuðlum (þ.e.a.s. 1 kúla = 1 stuðull) = 352-388 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Stykkið mælist ca 20-20-23-24-28-30 cm.
Heklið mynstur eins og áður, en yfir A.1a, A.4a, A.6a og A.7a er heklað GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið HEKLLEIÐBEININGAR = 252-272-296-324-348-384 lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur. Þ.e.a.s. heklið gatamynstur þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp og gatamynstur og kúlur eftir mynsturteikningu eins og áður yfir lykkjur á bakstykki/framstykki og ermum.
Þegar stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm klippið þráðinn frá.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Byrjið á að telja frá miðjulykkju á bakstykki (þ.e.a.s. mitt á milli 2 laskalína), teljið 37-40-43-47-51-57 lykkjur að þeim stað sem var byrjun á umferð (þ.e.a.s. teljið aftur á bak), næsta umferð byrjar í / um næstu lykkju.
Heklið 1 fastalykkju í /um næstu lykkju, 3 loftlykkjur og heklið mynstur eins og áður yfir næstu 74-80-86-94-102-114 lykkjur (bakstykki), hoppið yfir næstu 51-55-61-67-71-77 lykkjur fyrir ermi og heklið 10 loftlykkjur undir ermi, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 75-81-87-95-103-115 lykkjur (framstykki), hoppið yfir síðustu 51-55-61-67-71-77 lykkjur fyrir ermi (ásamt fyrstu 0-1-1-3-3-3 lykkjum sem hoppað var yfir) og heklið 11-10-10-10-10-10 loftlykkjur undir ermi og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 170-182-194-210-226-250 lykkjur.
Í næstu umferð er mynstur heklað eins og áður. Gatamynstur er heklað yfir lykkjur sem voru heklaðar undir ermum og yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri sem er búið að byrja á. Heklaðu e.t.v. blómakúlur yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í mynstri undir ermi, ef þig langar til.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 4-4-4-3-2½-2½ cm millibili alls 3-4-4-5-6-6 sinnum = 182-198-210-230-250-274 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, útauknar lykkjur eru heklaðar í gatamynstri eins og þær lykkjur sem eftir eru og ganga ekki jafnt upp í mynsturteikningu.
Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-21-21 cm, heklið blómakúlur sem nú þegar hefur verið byrjað á, heklið síðan stykkið í gatamynstri.
Þegar fram- og bakstykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið.
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju af 10 loftlykkjum sem voru heklaðar undir ermi, 3 loftlykkjur, heklið gatamynstur yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynsturteikningu, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir lykkjur mitt ofan á ermi og heklið gatamynstur yfir síðustu lykkjur í umferð sem ekki ganga jafnt upp í mynsturteikningu, endið umferð með 1 loftlykkju/stuðul aukalega þannig að gatamynstrið gangi jafnt upp hringinn = 62-66-72-78-82-88 lykkjur. Heklaðu e.t.v. blómakúlur yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermi, ef þú vilt.
Kúlur sem ekki ganga jafnt upp í heila blómakúlu er skipt út fyrir 1 stuðul.
Haldið svona áfram hringinn. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi í byrjun á næstu umferð – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona til skiptis í byrjun og í lok umferðar með 4-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 7-9-11-14-15-16 sinnum = 48-48-50-50-52-56 lykkjur.
Þegar ermin mælist 31-30-29-27-26-24 cm frá skiptingu, heklið blómakúlur sem nú þegar hefur verið byrjað á til loka, heklið síðan stykkið í gatamynstri.
Þegar ermin mælist 40-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu, heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið.
Ermin mælist ca 41-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál með því að hekla 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkjuna fyrir neðan

symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = loftlykkja
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig á að hekla í lykkjuna á fyrri umferð
symbols = Kúla: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í / um næsta stuðul / loftlykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 7 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = Kúla: * Heklið 3 loftlykkjur, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í / um næsta stuðul / loftlykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 6 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = keðjulykkja í 3. Loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjubogann
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Sabine wrote:

Modell cloud Catcher: die Passe geht bereits i.d. ersten Runde nicht auf. Rapport a1 bis a6 nach Anleitung gehäkelt, 1x wiederholt, dann a7. Die Runde ist dann erst zur Hälfte gehäkelt. Es heißt „1x wiederholen „. Wo ist mein Fehler? Rapport a4 beschreibt eine Doppel-Noppe…. . Aber die entsteht doch nur jeweils am Raglanärmel Ärmel….? Ich bin verzweifelt. Danke für Ihre Antwort, Grüße Sabine

07.05.2024 - 10:55

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, die Runde beginnt mit A.1, dann häkelt man (A.2 x 4 bis 7 Mal, siehe Größe, A.3, A.4, A.5), dann A.6 und von (bis) noch einmal häkeln (= A.2 x 4 bis 7 Mal, A.3, A.4, A.5) und die Runde wird dann mit A.7 enden. Viel Spaß beim Häkeln!

07.05.2024 - 13:21

country flag Dorthe wrote:

En fråga varför har ni inte beskrivet underarm bare att där skal 1 stm i Börje hörn i stmgruppen men vad med dom 2 lm imellan?????

13.03.2024 - 17:32

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, er de ikke tegnet ind i diagrammet? Forstår ikke rigtig hvor du er i opskriften... Skriv også gerne hvilken størrelse og mere nøjagtig hvor du er.

19.03.2024 - 11:33

country flag Marleen wrote:

Bestaat er een diagram dat dit stukje tekst verduidelijkt, Als de toer begint met 1 losse, vervang dan het laatste stokje op de vorige toer met 3 lossen als volgt: Haak 3 lossen (vervangt het laatste stokje), 1 losse (eerste losse in het patroon), sla het laatste stokje over en eindig de toer met 1 halve vaste in de 3e losse, haak 1 vaste om de eerste losse (dit wordt gedaan om te voorkomen dat de toer verschuift). Dankjewel

12.03.2024 - 22:40

country flag Marleen wrote:

Goede avond, hoe zorg ik dat de naad in de toeren van het lijfje recht loopt? Ik lijk door het kantpatroon telkens een steek verder te verspringen. Maw hoe start ik de nieuwe rij indien deze start met een losse. Ik begrijp de uitleg niet. Mvg Marleen

12.03.2024 - 21:17

country flag Isabina wrote:

No entiendo como se hace esto en horizontal: Cada vez que se repite A.1a, A.4a, A.6a y A.7a en vertical, trabajar 1 repetición más de A.2a y A.8a en horizontal en el delantero/espalda y 1 repetición más de A.9a y A.10a en horizontal en cada manga (es decir, aumentar 80 puntos en una repetición en vertical). Gracias.

18.02.2024 - 19:25

DROPS Design answered:

Hola Isabina, en vertical = repetición de todas las filas del diagrama. En horizontal = en la fila. En el caso indicado, quiere decir que tendrás espacio en la fila para trabajar 1 repetición más de A.2a y A.8a tanto en el delantero como en la espalda y 1 repetición más de A.9a y A.10a en cada manga. Si tienes que trabajar varias repeticiones del diagrama trabajas hasta el último punto y, después, comienzas nuevamente en el primer punto en la misma fila del diagrama.

18.02.2024 - 22:46

country flag Ria Uyterlinden wrote:

In de derde toer staat A8a maar dat komt niet uit. Want er zijn tussen A3 en A4 van toer 2 niet genoeg stokjes over. Wat doe ik fout?

12.02.2024 - 11:27

country flag Sandra wrote:

Habrá un video de cómo tejer y construir el raglán para este patrón?. No me queda claro lo de las motas en el raglán. Gracias

01.06.2023 - 01:14

DROPS Design answered:

Hola Sandra, no tenemos un vídeo específico para el raglán de este patrón. Para la primera mota en A.1, trabajas 3 cadenetas y 5 puntos altos sin hacer la última lazada, terminando pasando el hilo por todos los bucles. En las otras motas, trabajas 6 puntos altos sin terminar y después pasas el hilo por todos los bucles en el ganchillo.

04.06.2023 - 19:28

country flag Hanne Muurmand wrote:

Hej igen og tak for svar på cloud catcher. Min hæklefasthed i højden passer, men efter arbejdet måler 20 cm står der i opskriften: fortsæt med mønster som før men over raglanlinjerne hækles hulmønster(altså 1 stm om næste lm, 1 lm, spring 1 stm over) til arbejdet måler 24 cm. Der tages ikke ud på de 4 cm, hvilket gør at arbejdet ligesom buler ud ved raglanlinjerne!! Det ser ikke pænt ud, så for første gang er jeg ved at opgive en af jeres opskrifter......

22.04.2023 - 16:32

DROPS Design answered:

Hej Hanne, men du bør være klar med de 24 cm nu. Du skal måle helt oppefra skulderens øverste kant og så lige ned... :)

25.04.2023 - 14:48

country flag Hanne Muurmand wrote:

Hej, jeg hækler str M og kan ikke få flg til at passe: hækl de første 5 omgange af mønsteret i højden. På næste omgang erstattes boblerne i raglanlinjen til stm? Hækles 2 lm mellem stm i raglanlinjen? og kun på denne omgang? Kan ikke få det til at give 276 m? På billedet er der bobler på blusen i raglanlinjen helt ind under armen og her i opskriften stopper boblerne allerede når arbejdet er omkring 18 cm? Det ser ikke rigtigt ud. Håber I kan hjælpe.

06.04.2023 - 14:24

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Husk å sjekke at du får den oppgitte heklefastheten i høyden. Når arbeidet måler ca 13 cm hekler du 6 omganger av diagrammene som er forklart i oppskriften, men på den 6. omgang hekler du staver istedenfor bobler. Nå skal arbeidet måle ca 20 cm (og bobler er det hele raglanlinjen, bortsett fra den siste omgangen som er under ermet og ikke vises). mvh DROPS Design

17.04.2023 - 09:36

country flag Lone Sommer wrote:

Hvad betyder A. 1A i opskriften? Der mangler forklaringer på de tal. A.2a -A.3a, A.4a- A.8a-A.9a-A.10a? Mvh. Lone

25.03.2023 - 15:04