DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

White Trail

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-6
DROPS Design: Mynstur vs-085
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 01, hvítur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca. 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Síðan er fram- og bakstykkið prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna, upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Að lokum er prjónaður i-cord kantur aftan í hnakka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 112-124-136-148-164-180 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 106-118-130-142-158-174 lykkjur og fækkið jafnframt um 18-24-26-28-32-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið 3 lykkjur garðaprjón = 94-100-110-120-132-144 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Nú er prjónað sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Klippið þráðinn. Geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki, en ekki klippa þráðinn frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón = 188-200-220-240-264-288 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með GARÐAPRJÓN yfir garðaprjón – sjá útskýringu að ofan (= 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 6 lykkjur, prjónið mynstur þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt. Setjið eitt prjónamerki hér (eftir þessa lykkju). Þetta er núna byrjun á umferð.
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 92-98-108-118-130-142 lykkjur, A.1 yfir næstu 2 lykkjur (= yfir miðju 2 lykkjur af 6 lykkjur í garðaprjóni), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-98-108-118-130-142 lykkjur, prjónið A.1 yfir síðustu 2 lykkjur (= yfir miðju 2 lykkjur af 6 lykkjum í garðaprjóni).
Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú eru lykkjur felldar af fyrir handvegi í hvorri hlið þannig: Byrjið 2-2-5-7-11-15 lykkjur fyrir byrjun á umferð, fellið af næstu 2-2-8-12-20-28 lykkjur fyrir handveg, prjónið þar til 0-0-3-5-9-13 lykkjur eru eftir á undan næsta A.1, fellið af næstu 2-2-8-12-20-28 lykkjur fyrir handveg, prjónið út umferðina = 92-98-102-108-112-116 lykkjur bæði á framstykki og bakstykki.

FRAMSTYKKI:
= 92-98-102-108-112-116 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm (ca 3 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg í hvorri hlið), prjónið fyrstu umferð í A.2 yfir miðju 10 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 45-48-50-53-55-57 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= 46-49-51-54-56-58 lykkjur fyrir hægra framstykki/öxl), prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 45-48-50-53-55-57 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 46-49-51-54-56-58 lykkjur fyrir vinstra framstykki/öxl).

VINSTRA FRAMSTYKKI/ÖXL:
Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttprjón þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri fyrir v-hálsmáli), prjónið A.3 yfir síðustu 11 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með A.3 við v-hálsmál, 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 10-10-11-11-12-12 sinnum og í 4. hverri umferð 7 sinnum = 29-32-33-36-37-39 lykkjur fyrir öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm.
Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl (mynstrið heldur áfram eins og áður yfir 11 lykkjur við hálsmál) þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Snúið, prjónið þar til 6-6-7-7-8-8 lykkjur eru eftir í umferð.
UMFERÐ 3: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 4: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 5: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 6: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 7: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 8: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 9: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 10: Prjónið fyrstu 3 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (í frágangi eru lykkjurnar settar við kant í hálsmáli í bakstykki), fellið af þær lykkjur sem eftir eru á öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI/ÖXL:
Prjónið mynstur þannig frá réttu þannig: A.4 yfir fyrstu 11 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri fyrir v-hálsmál), prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með A.4 við v-hálsmál, sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg.
Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 10-10-11-11-12-12 sinnum og í 4. hverri umferð 7 sinnum = 29-32-33-36-37-39 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm.
Nú eru snúningar prjónaðir yfir öxl (mynstrið heldur áfram eins og áður yfir 11 lykkjur við hálsmál) þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til eftir eru 6-6-7-7-8-8 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 4: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 5: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 6: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 7: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 8: Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka.
UMFERÐ 9: Prjónið fyrstu 3 lykkjur áður en þær eru settar á þráð, fellið af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum.

BAKSTYKKI:
= 92-98-102-108-112-116 Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 26-29-30-33-34-36 lykkjur fyrir öxl. Haldi áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir á öxlum þannig:
Hægri öxl:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Snúið, prjónið þar til 6-6-7-7-8-8 lykkjur eru eftir í umferð.
UMFERÐ 3: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 4: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 5: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 6: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 7: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 8: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 9: Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka.
Þegar stutta umferðir hafa verið prjónaðir til loka eru allar lykkjur felldar af með brugðnum lykkjum frá röngu.
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

Vinstri öxl:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til eftir eru 6-6-7-7-8-8 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 4: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 5: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 6: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina.
UMFERÐ 7: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.
UMFERÐ 8: Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka.
Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðir til loka eru allar lykkjur felldar af með sléttum lykkjum frá réttu.
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 64-68-72-72-76-76 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-16-14-16-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið mynstur þannig: A.1 yfir fyrstu 2 lykkjur, sléttar lykkjur þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar ermin mælist 8-8-8-8-6-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 12-13-14-15-16-17 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 51-50-49-48-46-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Prjónið sléttprjón frá miðju í A.1 þar til ermin mælist ca 52-51-51-51-51-51 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermin á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – byrjið yst á öxl og saumið lykkjur eina og eina inn að hálsmáli þar til 3 lykkjur eru eftir á framstykki (það eru 3 lykkjur fleiri á framstykki en á bakstykki).
Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 42 til 46 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði) upp að næsta axlasaum á bakstykki. Klippið þráðinn, það á núna að prjóna i-cord í þessar lykkjur þannig:
Setjið 3 lykkjur af þræði í kanti á hægra framstykki á prjón 3. Prjónið i-cord frá réttu þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu lykkju snúna slétt saman með fyrstu/næstu lykkju sem prjónuð var upp á bakstykki. Færið til baka 3 lykkjur frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón (í þeirri röð sem þær eru í). Haldið svona áfram meðfram öllum kantinum í hálsmáli á bakstykki þar til ekki fleiri lykkjur eru eftir til að prjóna í. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.
Saumið ystu 3 lykkjur saman við 3 lykkjur af þræði á vinstra framstykki. Klippið þræðina og festið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.06.2022
FRAM- OG BAKSTYKKI:...Nú eru lykkjur felldar af fyrir handvegi í hvorri hlið þannig: Byrjið 2-2-5-7-11-15 lykkjur fyrir byrjun á umferð, fellið af næstu 2-2-8-12-20-28 lykkjur fyrir handveg,

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu – það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Guylaine Rondeau wrote:

Pour ce modèle y a t il des tutoriels, car j aimerais comprendre comment coudre la manche le long du bas de l emmanchure: Coudre a contre A et b Contre B merci Et comment faire la pointe du V au devant.. merci

14.04.2024 - 02:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rondeau, tout à fait, vous pouvez retrouver tous nos tutoriels vidéos et leçons en haut de page, dans les onglets à droite des Explications. Pour la couture des manches, cette vidéo devrait pouvoir vous aider. Bon assemblage!

15.04.2024 - 07:45

country flag Besnier wrote:

Je vais faire le modèle 230-6 avec drops belle en taille s je voulais savoir 450 g coloris 01,blanc correspond à combien de pelotes de laines.

17.03.2024 - 19:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Besnier, les pelotes DROPS Belle se présentent en 50 g - cf nuancier; il vous faudra ainsi 450/50 = 9 pelotes en taille S. Bon tricot!

18.03.2024 - 09:32

country flag Mari wrote:

Utrolig fin genser! Hvilken størrelse bruker modellen?

26.08.2023 - 11:16

DROPS Design answered:

Hei Mari, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. Finner du din størrelse får du samme fasongen som modellen har i bildet. God fornøyelse!

28.08.2023 - 06:49

country flag Valborg Hillberg wrote:

Hur vet jag hur långt jag ska sticka på ärmen, ärmkullen

31.07.2023 - 14:23

DROPS Design answered:

Hej Valborg Det beror på vilken storlek du stickar: När ärmen mäter 51-50-49-48-46-44 cm, stickas ärmkullen fram och tillbaka på rundsticka till färdigt mått. Sticka slätstickning från mitt i A.1 till ärmen mäter ca 52-51-51-51-51-51 cm (= färdigt mått). Maska av.

07.08.2023 - 11:45

country flag Hanan Salah wrote:

Je ne comprend pas cette partie ENCOLURE DOS: En commençant sur l'endroit, à l'une des coutures d'épaule, relever pour l'encolure dos environ 42 à 46 mailles (y compris les mailles en attente) jusqu'à la couture de l'épaule suivante.

13.02.2023 - 22:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salah, pour l'encolure dos, vous avez mis en attente les 38-40 ou 42 m centrales, pour l'encolure dos, on va rabattre avec la technique du I-cord, pour cela, on a besoin de relever les mailles le long de l'encolure dos: en commençant à la couture de l'épaule gauche (sur l'endroit) relever les mailles, tricotez les mailles en attente et relevez les mailles jusqu'à la couture de l'épaule droite, et rabattez maintenant les mailles à partir des 3 mailles du devant droit. Bon tricot!

14.02.2023 - 13:54

country flag Hanan Salah wrote:

ENCOLURE DOS: En commençant sur l'endroit, à l'une des coutures d'épaule, relever pour l'encolure dos environ 42 à 46 mailles (y compris les mailles en attente) jusqu'à la couture de l'épaule suivante.

13.02.2023 - 22:18

country flag Hanan Salah wrote:

Bonjour madame puis-je travailler les 2 manches au même temps ensemble sur aiguilles circulaires 3 et 4 ?

26.01.2023 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salah, si vous en avez l'habitude, alors oui, sinon, préférez réaliser l'une manche après l'autre, ce sera plus simple. Bon tricot!

26.01.2023 - 15:51

country flag Hanan Salah wrote:

Bonjour madame par rapport aux rangs raccourcis les mailles non tricotées resteront sur l’aiguille à chaque fois sur chaque ligne et ensuite je les tricote toutes ensembles ? Je ne comprends pas bien vraiment ( je ne suis pas française je suis égyptienne un peux de soucis avec la langue française ) merci bien

24.01.2023 - 14:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salah, tout à fait, lorsque vous tricotez les rangs raccourcis en tricotant jusqu'à ce qu'il reste par ex. 6-6-7-7-8-8 mailles, ces mailles ne sont pas tricotées, la fois suivante, tricotez 3 ou 4 mailles en moins (cf taille). Lorsque toutes les mailles seront mises en attente sur un fil, reprenez toutes les mailles en attente et rabattez-les toutes en une seule fois. Bon tricot!

24.01.2023 - 16:40

country flag Hanan Salah wrote:

Bonjour madame, je ne comprends pas bien cette partie ( les diminutions ) Continuer ainsi et diminuer pour l'encolure V : 10-10-11-11-12-12 fois tous les 2 rangs et 7 fois tous les 4 rangs = 29-32-33-36-37-39 mailles pour l'épaule.

21.01.2023 - 20:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salah, tricotez comme indiqué, soit pour l'épaule/devant gauche (vu sur l'endroit): 1 m point mousse, jersey et A.3 sur les 11 dernières mailles. Et vous diminuez avant A.3 (= comme la 1ère fois) d'abord tous les 2 rangs (tous les rangs sur l'endroit) puis tous les 4 rangs (tous les 2 rangs sur l'endroit) - suivez le nombre de fois indiqué pour votre taille. Bon tricot!

23.01.2023 - 09:20

country flag Hanan Salah Eldin wrote:

Bonjour je ne comprends pas bien comment faire les emmanchures ( DOS & DEVANT: ... en commençant 2-2-5-7-11-15 mailles avant le début du tour, rabattre les 2-2-8-12-20-28 mailles suivantes pour l'emmanchure)quand rabattre après ou avant le début du tour ? Merci

18.01.2023 - 21:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salah Eldin, le tour de division se commence 2-2-5-7-11-15 mailles avant la fin du tour (tricotez le tour précédent jusqu'à ce qu'il reste ces 2-2-5-7-11-15 mailles avant le tour suivant, puis rabattez les 2-2-8-12-20-28 mailles suivantes pour l'emmanchure, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 0-0-3-5-9-13 mailles avant le A.1 suivant de l'autre côté du pull et rabattez les 2-2-8-12-20-28 mailles suivantes, vous devez avoir 92-98-102-108-112-116 mailles pour le dos et le devant. Autrement dit, vous rabattez les mailles de A.1 + des mailles avant/après en fonction de la taille, raison pour laquelle on commence avant le début du tour. Bon tricot!

19.01.2023 - 10:18