Around Town |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur sléttprjón (1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman/brugðið saman eftir mynstri, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð / 2 lykkjur snúnar brugðið saman eftir mynstri (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til stroffið hefur verið prjónað til loka, síðan er stykkið sett saman. Fram- og bakstykki er prjónað í hring upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig til loka máls. Axlasaumarnir eru saumaðir saman. Síðan eru lykkjur teknar upp meðfram handvegi og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 110-118-126-138-150-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm – endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið framstykkið. FRAMSTYKKI. Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stroffið mælist 7 cm – endið eftir umferð frá röngu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Tengið stykkin saman þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá framstykki og fækkið jafnframt um 26-28-30-32-34-36 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá bakstykki og fækkið jafnframt um 26-28-30-32-34-36 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur í umferð (84-90-96-106-116-126 lykkjur á framstykki og 84-90-96-106-116-126 lykkjur á bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn á fram- og bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-13-13-13-15-15 cm, prjónið A.2 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 168-180-192-213-231-252 lykkjur. Í síðustu umferð í A.2 er aukið út til 0-4-0-3-1-4 lykkjur jafnt yfir = 168-184-192-216-232-256 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 22-22-22-23-25-25 cm frá uppfitjunarkanti á framstykki/bakstykki. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón að réttu máli. Nú er A.3 prjónað í hring á fram- og bakstykki. A.3 er endurtekið alls 2-2-3-3-3-4 sinnum á hæðina. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 27-27-30-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón að réttu máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur. Nú er sett 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan, að auki er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – þetta er gert þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (mitt að aftan). Nú eru 42-45-48-53-58-63 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið A.4 þannig: Teljið út frá tákni merktu sem miðja í mynsturteikningu og prjónamerki mitt að framan hvar mynstrið á að byrja í hliðinni, prjónið A.4 eins langt og hægt er að prjónamerki í hlið (prjónamerki mitt að framan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4), síðan byrjar A.4 upp á nýtt alveg eins og í byrjun á umferð og A.4 er prjónað eins langt og hægt er fram að prjónamerki í byrjun á umferð (prjónamerki mitt að fatan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4). Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-2-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-2-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 78-86-86-94-102-110 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með A.4 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í síðustu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 80-88-88-96-104-112 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. A.1 er endurtekið á hæðina að loka máli. Fækkið síðan lykkjum fyrir öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. ÖXL - SKÁHALLANDI: Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 4-4-4-5-5-6 lykkjur 4 sinnum og síðan síðustu 10-12-12-12-14-14 lykkjur við hálsmál. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum eru lykkjurnar settar til baka á prjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið snúið brugðið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 24-28-28-28-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1, haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir öxl og prjónið að auki ystu 3 lykkjur við hálsmál í sléttprjóni. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 52-54-56-58-60-62 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: = 78-86-86-94-102-110 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur á sama hátt og á bakstykki. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið miðju 20-24-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1, en ystu 3 lykkjur við hálsmál er prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. ÖXL - SKÁHALLANDI: Jafnframt þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 4-4-4-5-5-6 lykkjur á þráð 4 sinnum og síðan síðustu 10-12-12-12-14-14 lykkjur við hálsmál. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu eins og á bakstykki, áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMI: Notið hringprjón 5 og DROPS Alaska eða DROPS Big Merino, prjónið upp frá réttu 32-34-36-37-39-41 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl og 32-34-36-37-39-41 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni = 64-68-72-74-78-82 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin á að mælast frá þessu prjónamerki og prjónamerkið er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja. Byrjið frá röngu og prjónið A.5 þannig: Teljið út frá tákni merktu sem miðja í mynsturteikningu og prjónamerki á ermi hver mynstrið á að byrja og prjónið A.5 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 2-1-3-4-4-5 cm frá þar sem prjónamerkið var sett, setjið stykkið saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur hringinn (tákn fyrir miðju í mynsturteikningu á að halda áfram að passa með prjónamerki mitt á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi). Þegar ermin mælist 5-4-6-7-7-8 cm frá þar sem prjónamerkið var sett mitt á ermi, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 8-9-10-11-12-13 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.1 hringinn. Prjónið þar til ermin mælist 39-38-39-38-36-35 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-12-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 49-48-49-48-46-45 cm frá prjónamerki mitt á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 80-96-96-104-112-112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið stroff hringinn (4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið – stillið byrjun á stroffi þannig að það koma 4 lykkjur brugðið eða 4 lykkjur slétt mitt að framan). Setjið 1 prjónamerki í umferð þegar stroffið mælist 4 cm, prjónamerkið er notað til að mæla frá. Prjónið síðan 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-11-11-11 cm frá prjónamerki, skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4-4-4-5-5-5 cm. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (47)
Antonella wrote:
Gentilissimi, grazie per i vostri modelli e per le istruzioni sempre molto accurate e precise, e a tutti i tutorial che consentono di imparare tantissimo!!!! La mia è una segnalazione: DECREASE TIP-1 (applies to neck) - questo capoverso è rimasto in inglese. grazie mille)! Antonella
28.09.2023 - 16:34DROPS Design answered:
Buonasera Antonella, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
29.09.2023 - 23:57Antonella wrote:
Gentilissimi, grazie per i vostri modelli e per le istruzioni sempre molto accurate e precise, e a tutti i tutorial che consentono di imparare tantissimo!!!! La mia è una segnalazione: DECREASE TIP-1 (applies to neck) - questo capoverso è rimasto in inglese. grazie mille)! Antonella
28.09.2023 - 15:59DROPS Design answered:
Buonasera Antonella, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
29.09.2023 - 23:58Nayfher wrote:
Estoy intentando entender la parte de los hombros diagonales y no lo consigo, algún vídeo donde lo pueden explicar mejor
18.09.2023 - 16:03DROPS Design answered:
Hola Nayfher, puedes ver los siguientes videos: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1722&lang=es, https://www.garnstudio.com/video.php?id=1723&lang=es, y https://www.garnstudio.com/video.php?id=1724&lang=es
24.09.2023 - 22:46Anna Krafft wrote:
Hallo! Kann es sein, dass bei dem Ärmel das Muster A.1 vergessen wurde? Laut dem Foto ist der Ärmel als erstes mit A.1, dann mit A.5 und schließlich nochmal mit A.1 gestrickt worden, bevor das Bündchen kommt. In der Anleitung wird aber nach der Aufnahme der Ärmelmaschen direkt mit A.5 gestrickt. Wie weit muss hier denn nun A.1 gestrickt werden, bis ich mit A.5 anfangen muss?
09.09.2023 - 10:57DROPS Design answered:
Liebe Frau Krafft, die Ärmel beginnt mit A.5; die Reihe A.1 oben am Ärmel sind sicher das Muster von den Schultern. Viel Spaß beim stricken!
11.09.2023 - 09:03Anna Krafft wrote:
Hallo! Ich finde den Teil für die Schulterabnahme schwer zu verstehen. Ich starte mit 88 M und habe wie in der Anleitung beschrieben 2x16M + 2x12M für die Schultern und 28M für den Hals. Durch einen Kommentar kam ich darauf, dass es 32M (28M+4M für die beiden schrägen Abnahmen zur Schulter hin) für den Hals sein müssen, was durch die Anleitung nicht klar wird. Ich hatte mich gewundert, dass ich nur auf 84 und nicht wie geplant auf 88M komme.
24.08.2023 - 19:35DROPS Design answered:
Liebe Frau Kraft, am Anfang jeder Reihe vom Armloch legen Sie so still: 4 Maschen 4 Mal dann die letzen 12 Maschen (= 28 Maschen für jede Schulter) und gleichzeitig ketten Sie für den Hals ab: die mittleren 28 Maschen (dann wird jede Schulter separat gestrickt) + 1 Masche 2 Mal (32 Maschen für Halsausschnitt), so haben Sie: 28 Maschen (Schulter) + 32 Maschen (Halsausschnitt) + 28 Maschen (Schulter) = 88 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
25.08.2023 - 08:39Edyta wrote:
Jaki najlepiej wybrać ścieg strukturalny na próbkę? Z góry dziękuję.
04.08.2023 - 18:07DROPS Design answered:
Witaj Edyto, chyba najprostszy będzie A.4. Pozdrawiamy!
04.08.2023 - 19:21Edyta wrote:
Dziękuję. A ta włóczka Włóczka - MERINO EXTRA FINE - DROPS 50g ? A także ile bym jej potrzebowała
26.07.2023 - 20:49DROPS Design answered:
Witaj Edyto, aby wykonać ten sweter (zaprojektowany na grupę włóczek C) musiałabyś włóczkę DROPS Merino Extra Fine, która należy do Grupy włóczek B, z czymś połączyć np. z DROPS Kid-Silk. Sweter będzie bardziej puszysty, jak to będzie wyglądać zobacz TUTAJ. Ale Kid -Silk może podgryzać wrażliwych. Za to używając samej Merino Extra Fine, cały wzór (miary i obliczenia) trzeba będzie mocno zmodyfikować . Big Merino wydaje mi się optymalnym wyborem w twoim przypadku. Ale wybór należy do Ciebie :)
27.07.2023 - 08:42Edyta wrote:
Dzień dobry. Chciała bym zrobić sobie taki sweterek, tylko żeby włóczka była miła w dotyku, żeby mnie "nie gryzła" bo jestem uczulona. Jaką włóczkę by Pani mi poleciła? Proszę o pomoc i poradę. Pozdrawiam serdecznie Edyta
26.07.2023 - 18:04DROPS Design answered:
Witaj Edyto, polecam DROPS Big Merino, czyli drugą sugerowaną włóczkę we wzorze. Merynos nie gryzie, ale lubi się rozciągać, szczególnie gdy przerabia się go luźno. Przed pracą koniecznie zrób próbkę i wypierz. Jeśli po wysuszeniu będzie za duża (za mało oczek na 10 cm w stosunku do próbki podanej na górze wzoru), wybierz cieńsze druty. Powodzenia!
26.07.2023 - 19:39Ruthsy wrote:
Hello I have 15 yarn balls of drops Alaska so I only can make size S, but I always make size M in drops patterns which usually have the dimensions of the horizontal lower part as this one in small, so my question is, if I wanted it as the one that the model wears, which size should I make? Thank you very much.
22.07.2023 - 19:05DROPS Design answered:
Dear Ruthsy, the smallest size is XS, not S size. The model usually wears an M size in our photos. This specific sweater is a wide garment, meant to not be too tight. We always recommend not checking the sizes indicated but rather choose which sweater size you want to work according to the measurements in the schematic of the garment. Happy knitting!
23.07.2023 - 19:36Maria Grazia Melchionda wrote:
Buongiorno! grazie per i vostri bellissimi pattern e tutte le istruzioni allegate! vi chiedo: poiché io non lavoro in tondo, è possibile adattare questo pattern a una lavorazione in piano? come posso fare? grazie mille! maria grazia
11.07.2023 - 11:10DROPS Design answered:
Buongiorno Maria Grazia, si deve riadattare il motivo alla lavorazione in piano. Per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
16.07.2023 - 13:35