DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Over Dover

Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-17
DROPS Design: Mynstur ai-419
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp, það skiptist fyrir framstykki og bakstykki og er prjónað til loka fram og til baka að loka máli. Kantur í hálsmáli og kantar á ermum er prjónað í hring á hringprjóna í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 182-198-214-232-250-278 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið lykkjum jafnt yfir 18-22-22-24-26-30 lykkjur = 164-176-192-208-224-248 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm. Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi þannig: Prjónið 76-80-86-92-98-108 lykkjur slétt, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið 76-80-86-92-98-108 lykkjur og fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur.
Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 76-80-86-92-98-108 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-3-5-4-5 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með eru lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn):
Setjið lykkjur á þráðinn frá hlið þannig: 5-6-6-6-7-8 lykkjur 2 sinnum og síðan er síðustu 8-8-9-10-9-9 lykkjurnar settar á þráðinn. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið lykkjurnar til baka á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur (til að sleppa við göt í skiptinguni þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúinn saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni). Fellið af í næstu umferð.

HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Jafnframt í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
= 76-80-86-92-98-108 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-3-5-4-5 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm, setjið miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-20-21-22-23-25 lykkjur.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 5-6-6-6-7-8 lykkjur á þráð 2 sinnum og síðan eru síðustu 8-8-9-10-9-9 lykkjurnar settar á þráðinn.
Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur eins og á bakstykki, áður en fellt er af í næstu umferð. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 56-58-60-62-64-66 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 68 til 82 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR ERMI:
Byrjið mitt í handvegi, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 78-82-86-88-92-96 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.11.2022
FRAM- OG BAKSTYKKI:...Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Jackie Robertson wrote:

Pattern Over Dover 235-17\r\nI am struggling to work out how to do the diagonal shoulders, particularly putting stitches on the threads in the side and how I interpret it doesn’t equate to the amount of stitches I have (working on the 3rd size (72 stitches). Please can someone provide a tutorial or explanation for very dense knitter? 🙏🏻

22.02.2023 - 19:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Robertson, there are 21 stitches for each shoulder in size L, you will slip the stitches on a thread at the beginning of the rows starting from armhole: 6 sts 2 times + 9 sts 1 time (= 21 sts), then work all stitches back on needle and work them all then cast off on last row. At the same time, you will cast off for neck 28 sts + 1 st at the beg of each row from neck. This video shows (for another pattern) how to work diagonal shoulder and cast off for neck at the same time, hopefully it can help you. Happy knitting!

23.02.2023 - 13:36

country flag Beth wrote:

I have reached the part of the pattern explaining the DIAGONAL SHOULDERS but I’ve never done anything like this before and have no idea how to “place stitches on each side on a thread” as directed! I have tried to look for a relevant video to help me but cannot seem to find one… Any help much appreciated as I’ve ground to a halt!

21.02.2023 - 19:26

DROPS Design answered:

Hello Beth! Here is the video: How to knit diagonal shoulders. Hope it helps!

22.02.2023 - 00:12

country flag Linda Christensen wrote:

Hej. Jeg strikker i str L, og jeg har lidt spørgsmål til den skrå skulder. Jeg har først sat 6 masker på tråd i hver side, og derefter 9 i hver side. Så har jeg 30 masker tilbage i midten. Er det rigtigt de skal blive på pinden? Der står når alle masker er på tråd? Hvordan kommer jeg videre, når de skal tilbage på pinden?

19.02.2023 - 21:31

DROPS Design answered:

Hej Linda, du sætter 6+6+9 masker på en tråd i hver side. Når du har gjort det skal alle masker tilbage på pinden og så strikker du over alle masker igen :)

28.02.2023 - 15:19

country flag Maggie wrote:

I have a query on the back neck (size S): after casting off the middle 26 sts, do I cast off 1 st at the neck edge only on the next 2 rows, or on every row on each shoulder side until all stitches have gone? Or should this have been done before casting off the shoulders? The diagram doesn’t show the difference between the front and back neck shaping.

08.02.2023 - 23:23

DROPS Design answered:

Hi Maggie, No, you only cast off 1 stitch on each side of the neck. The side stitches are placed on threads little by little for the diagonal shoulders, then cast off as described in the text. Happy knitting!

09.02.2023 - 06:49

country flag Sabina wrote:

Buonasera, prima di tutto mi scuso per le numerose domande, ma questo bellissimo modello proprio non riesco a capirlo. E non mi va di abbandonarlo … “CORPO: Finire il davanti e il dietro in modo separato” Inizio con il dietro (come scritto nel modello) … devo mettere in sospeso le maglie del davanti e lavorare solo sul dietro fino alla lunghezza indicata? Grazie mille Un caro saluto

05.02.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Buonasera Sabina, esatto, prima procede lavorando il dietro e poi il davanti. Buon lavoro!

10.02.2023 - 16:06

country flag Sabina wrote:

Buongiorno, mi sono fermata qui e non capisco come andare avanti. DIETRO: = 86 maglie. Lavorare in piano e intrecciare per gli scalfi all’inizio di ogni ferro come segue: 2 maglie 2 volte, 1 maglie 3 volte a ogni lato = 72 maglie. In particolare non capisco “ 1 maglie 3 volte a ogni lato” Grazie mille, Sabina :-)

04.02.2023 - 11:58

DROPS Design answered:

Buonasera Sabina, in quel punto deve intrecciare 1 maglia all'inizio di ogni ferro a ogni lato per 3 volte, quindi 6 maglie intrecciate in tutto. Buon lavoro!

04.02.2023 - 22:44

country flag Sabina wrote:

“Intrecciare per gli scalfi come segue: 86 maglie diritto, intrecciare 10 maglie, 86 maglie diritto, intrecciare 10maglie” Intreccio come se dovessi chiudere il lavoro? Grazie :-)

30.01.2023 - 00:38

DROPS Design answered:

Buonasera Sabina, è corretto, deve chiudere le maglie. Buon lavoro!

01.02.2023 - 22:48

country flag Pernilla Hansson wrote:

Alla era mönster är verkligen fina. Problemet är -på i princip alla mönster- att beskrivningarna är rejält undermåliga. Emellanåt förstår man verkligen ingenting. Och på just det här mönstret kan man se på antalet kommentarer att beskrivningen brister. Jag har fått gissa och chansa på varje moment när jag kom till hals och axlarna. Västen är inte som den ska vara alls för att jag inte förstår och kan fylla i luckorna som uppenbarligen finns i beskrivningen

11.01.2023 - 19:37

country flag Marie Silverbratt wrote:

Kan jag sticka patent stickning istf slätstickning och hur påverkar det maskantal ? Strl L

07.12.2022 - 22:00

DROPS Design answered:

Hei Marie. Du kan strikke den i patentstrikk, men vi har ikke anledning til å regne ut maskeantallet eller evnt forskjell på garnmengden. Men strikk en prøvelapp i patentstrikk og regn ut hva strikkefastheten du får vil være i forhold til strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 10:56

country flag Lisa Carla Mazure wrote:

I am doing the second size- For the drop shoulders -I knit 6 then placed them on a holder- finished the row and turned- purled 6 and put them on a holder. I repeated this one more time. At that point there were 44 stitches. What does " then place the last 8-8-9-10-9-9 stitches on the thread" is that 8 stitches on each side? I tried that- but then after casting off the neck there is only one stitch left on each side. I went to my LYS but they did not know the answer either. .

19.11.2022 - 00:33

DROPS Design answered:

Dear Lisa, that's correct, you place the last 8 stitches on each side. To get this specific shape for the neck and shoulders, you will cast off twice: first cast off the 26 middle stitches. Then, cast off the last stitch on each side. So 2 stitches remain after placing all stitches on the thread. Happy knitting!

21.11.2022 - 00:11