Autumn Medley Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í klukkuprjóni, með vösum, v-hálsmáli og tvöföldum kanti að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN prjónað fram og til baka: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2. KLUKKUPRJÓN prjónað í hring (á við um ermar): UMFERÐ 1: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjurnar eru taldar, þá er uppslátturinn ekki talinn sem sér lykkja. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 klukkuprjóns lykkju eins og áður, lyftið yfir næstu lykkju og uppslættinum sem tilheyrir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (uppslátturinn sem tilheyrir til sléttu lykkjunnar) slétt saman og steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 3 lykkjur (uppslátturinn sem tilheyrir þeim) slétt saman, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju slétt þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 3 lykkjur. Aukið er út til skiptis í fyrstu og síðustu sléttu lykkjuna í umferð. Fyrsta útaukning er gerð í fyrstu sléttu lykkjuna, önnur útaukning er gerð í síðustu sléttu lykkjuna o.s.frv. Það er aukið út um 2 lykkjur í hvert skipti sem aukið er út. HNAPPAGAT: Hnappagöt eru prjónuð með byrjun frá réttu, þannig: Prjónið yfir fyrstu 6 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 6 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 6 lykkjur (síðasta umferðin er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn. Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 6 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkjuna frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan. Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist: S: 4, 13, 21, 29 og 37 cm. M: 4, 13, 22, 30 og 38 cm. L: 5, 13, 22, 31 og 39 cm. XL: 4, 13, 22, 31 og 39 cm. XXL: 4, 13, 22, 31 og 39 cm. XXXL: 4, 13, 22, 31 og 39 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Vasar eru prjónaðir fram og til baka, sem saumaðir eru saman í lokin. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykkjum og prjónaður er tvöfaldur kantur að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 217-229-244-271-289-313 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 145-153-163-181-193-209 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA! Þegar stykkið mælist 23 cm, prjónið vasa þannig: VASAR: Nú er prjónaður vasi á hvoru framstykki, í næstu umferð frá réttu þannig: Vasinn er prjónaður tvöfaldur og saumaður saman í hlið í lokin. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 5-5-7-8-10-12 lykkjur klukkuprjón og setjið síðan á hjálparprjón/þráð, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 23-25-25-27-27-27 lykkjur og aukið út um 7-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 30-33-33-35-35-35 lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir 30-33-33-35-35-35 lykkjur og fitjið upp 1 lykkju í lok 2 næstu umferða = 32-35-35-37-37-37 lykkjur fyrir vasa. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar vasinn mælist 36 cm frá þar sem lykkjur voru settar á hjálparprjón/þráð, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 7-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið síðustu 2 lykkjur slétt saman = 23-25-25-27-27-27 lykkjur. Prjónið klukkuprjón yfir næstu 87-91-97-109-117-129 lykkjur frá fram- og bakstykki og setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, prjónið vasann alveg eins yfir næstu 23-25-25-27-27-27 lykkjur. Þegar vasinn hefur verið prjónaður til loka, prjónið klukkuprjón yfir næstu 5-5-7-8-10-12 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Setjið til baka allar lykkjur á prjóninn án þess að prjóna lykkjurnar. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Setjið 1 prjónamerki 37-39-41-45-49-53 lykkjur inn frá hvorri hlið (framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau þegar stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 38-39-40-40-40-40 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT þegar lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli er fellt af fyrir handveg og hvort stykki er síðan prjónað hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 38-39-40-40-40-40 cm, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki fyrir v-hálsmáli – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 14. hverri umferð alls 5-5-6-6-7-7 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður að fyrra prjónamerkinu (hægra framstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, fellið af 1 lykkju fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir næstu 69-73-79-89-93-101 lykkjur (bakstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, fellið af 1 lykkju fyrir handvegi og prjónið eins og áður yfir síðustu lykkjur (vinstra framstykki). Nú er hvort stykki prjónað til loka hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Í fyrstu umferð frá röngu er prjónað eins og áður og fitjuð er upp 1 ný lykkja í lok umferðar. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir úrtöku fyrir hálsmáli. Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 28-30-30-34-36-40 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem hann tilheyrir). HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð eins og áður frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er fitjuð upp 1 lykkja í lok umferðar. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir úrtöku fyrir hálsmáli. Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 28-30-30-34-36-40 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem hann tilheyrir). BAKSTYKKI: = 69-73-79-89-93-101 lykkjur. Fitjið upp 1 nýja lykkjur í lok 2 næstu umferða = 71-75-81-91-95-103 lykkjur. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 11-11-17-19-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (30-32-32-36-38-42 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í byrjun á næstu umferð frá hálsi eru felldar af 2 lykkjur fyrir hálsmáli = 28-30-30-34-36-40 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem hann tilheyrir). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 54-54-57-60-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 20-20-18-16-14-12 cm, aukið út um 2 lykkjur í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í klukkuprjóni. Í fyrstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar. Aukið svona út í 10. hverri umferð alls 7-8-9-9-9-9 sinnum = 50-52-56-58-60-62 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir) þegar ermin mælist 47-46-45-43-42-40 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handveg. Saumið hliðarsauma á vösum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp, þess vegna eru lykkjur prjónaður upp meðfram hægra framstykki með endanum á þræði (svo að síðar sé hægt að prjóna áfram með dokkunni) þannig: Skiljið eftir ca 110-130 cm þráð í endanum, notið endann á þræðinum, byrjið neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram öllu framstykkinu upp að öxl, innan við 1 kantlykkju með hringprjón 5 og 1 þræði í hvorri tegund. Fitjið upp 12 lykkjur á prjóninn neðst á framstykki (þ.e.a.s. frá röngu). Prjónið kant að framan yfir 12 kantlykkjur að framan og prjónið kant að framan saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram kanti á framstykki þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 12 kantlykkjur að framan. Endurtakið umferð 1 og 2 og prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, þar til allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan. Nú er prjónað yfir 12 kantlykkjur að framan þannig: UMFERÐ 1: * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir 12 lykkjurnar. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og röngu í 6-6-7-7-9-9 cm. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman og fellt er af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Byrjið efst við öxl á vinstra framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram öllu framstykkinu, innan við 1 kantlykkju með hringprjón 5 og 1 þræði í hvorri tegund og fitjið upp 12 lykkjur í lok umferðar. Prjónið kant að framan yfir 12 lykkjur og prjónið kant að framan saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram kanti á framstykki þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan. Nú er prjónað yfir 12 kantlykkjur að framan þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* yfir 12 lykkjur. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og röngu í 6-6-7-7-9-9 cm. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar saman og fellt er af þannig: Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, fellið af lykkjuna. FRÁGANGUR: Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við kant í hálsmáli á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Hazard Michèle wrote:
Je ne comprends pas le rang envers après les côtes, il est sensé diminuer le nombre de maille. Mais moi je n'ai pas de diminution. Pouvez vous m'aider merci Michèle
25.09.2023 - 13:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Hazard, vous allez bien diminuer le nombre de mailles car vous tricotez 2 m ens à l'end, mais les jetés ne comptent pas pour des mailles car ils appartiennent à la maille que l'on va glisser (1 jeté + 1 m glissée = 1 maille). Bon tricot!
25.09.2023 - 15:34Nicole Lejeune wrote:
Je ne comprends pas l’explication pour les bordures Vous relevez les mailles avec l’aiguille circulaire Avec quelles aiguilles montez vous les 12 mailles Pourquoi relevez vous les mailles une fois en commençant par en bas une fois par en haut ? Merci pour l’information. Nicole
31.12.2022 - 18:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lejeune, les mailles sont relevées avec l'aiguille circulaire 5 - nous avons 2 vidéos pour ces bordures: une pour la bordure sans boutonnière (ici) et une pour la bordure avec boutonnière (ici), vous pourrez sans doute ainsi mieux visualiser comment on procède. Bon tricot!
02.01.2023 - 13:54Lejeune wrote:
Apparemment il n’y a pas de diminutions pour les emmanchures dans le dos. \r\nIl y a au contraire une augmentation de 69 mailles on passe à 71 mailles \r\nEst- ce exact ? Merci pour la réponse. Nicole
29.11.2022 - 17:28DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, c'est exact, comme on continue les devants et le dos séparément en allers et retours, on a besoin d'1 maille lisière pour les coutures, donc on monte 1 maille côté emmanchure à chacun des devants et 2 mailles pour le dos (= 1 m de chaque côté). Bon tricot!
30.11.2022 - 08:58CECILE SERVAIS wrote:
Bonjour, Je souhaiterais vraiment confectionner ce modèle. J'ai un gros souci, je ne tricote pas avec des aiguilles circulaires. De plus, je n'arrive pas à convertir ce modèle avec : le dos, les deux devants et les manches... C'est bien dommage car il me plait terriblement. Merci pour votre réponse. Cécile
24.10.2022 - 12:24DROPS Design answered:
Bonjour Mme Servais, vous pouvez tricoter le dos et les deux devants sur une seule aiguille si vous préférez, ça vous fera beaucoup de mailles sur la même aiguille mais si vous êtes ainsi plus à l'aise, vous aurez moins d'ajustements à faire. Pour les manches, il suffit de monter 2 mailles en plus (pour les lisières) et de tricoter les côtes en rangs du coup. Retrouvez des astuces pour adapter un modèle sur aiguilles droites ici. Bon tricot!
24.10.2022 - 16:21Riviere wrote:
Bonjour, je n ai pas vu de modèle qui utilise la laine soft tweed sans kid silk. Peut-on les tricoter sans cet ajout. Car je trouve kid silk jolie mais elle s accroche beaucoup aux vêtements. Merci
27.09.2022 - 13:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Riviere, découvrez parmi modèles tricotés en Soft Tweed ceux tricotés avec juste Soft Tweed (tension de 16 à 21 m - sans "+") - vous pouvez également utiliser Soft Tweed pour tous les modèles tricotés avec un fil du groupe de fils B - utilisez le convertisseur pour obtenir la nouvelle quantité correspondante en Soft Tweed - Ou vous pouvez aussi remplacer Kid-Silk par une autre laine du groupe A (notre convertisseur vous donnera quelques alternatives et les quantités correspondantes). Bon tricot!
27.09.2022 - 13:36Margaretha wrote:
Vanilla autum
07.08.2022 - 11:50Aleksandra wrote:
Sweet caramel
06.08.2022 - 20:32Iya wrote:
Grandma's Cozy
06.08.2022 - 06:46Eva wrote:
Warmer Herbstspaziergang
05.08.2022 - 11:45