DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rain Chain

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í klukkuprjóni, opnu garðaprjóni og með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-9
DROPS Design: Mynstur wi-054
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
450-500-550-600-650-750 g litur 14, sægrænn

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-650-700 g litur 45, norðursjór

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, neðan frá og upp. Bakstykkið er 8 cm lengra en framstykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 59-63-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 8 með með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 49-53-55-61-65-71 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Síðan er prjónað eftir A.1. Prjónið A.1 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Nú er prjónuð 1 umferð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Síðan er prjónað A.2 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri og mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki séð frá réttu). Haldið áfram með A.2.

Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 43-47-49-55-59-65 lykkjur. Haldið áfram með A.2. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið síðan eftir A.1. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af miðju 13-13-15-15-17-17 lykkjur og prjónið hvor öxl til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju við hálsmál = 14-16-16-19-20-23 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 43-47-49-55-59-65 lykkjur. Haldið áfram með A.2. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið síðan eftir A.1. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Setjið miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur á þráð og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið frá hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni = 14-16-16-19-20-23 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 30-32-32-34-34-36 lykkjur á sokkaprjón 8 með með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 9. Prjónið A.1 alls 2 sinnum á hæðina, síðan er prjónað sléttprjón.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 5½.-5½.-5.-4.-3½.-3½.cm alls 7-7-7-8-9-9 sinnum 41-43-43-47-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-40-39-37 cm, prjónið A.1. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45-43 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli.
Þegar stykkið mælist ca 52-51-51-49-48-46 cm, fellið af. Það er klauf efst á ermi ca 3 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma niður að stroffi (= 10 cm á framstykki og 18 cm á bakstykki fyrir klauf), saumið í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið efst á hægri öxl við hálsmál á framstykki, prjónið upp (meðtaldar lykkjur af þræði) ca 60 til 72 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 20-20-20-22-22-22 cm. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.10.2022
ERMAR:...Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 9.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting á ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið brugðnu lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (frá röngu)
symbols = uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (frá réttu)
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (111)

country flag Caroline wrote:

Bonjour, j'ai du mal à comprendre les explications du modèle 236-9 lorsqu'on arrive à l'encolure sur le devant. J'ai mis mes 11 m centrales en attente sur un fil. Mais après, on dit de "rabattre pour l'encolure tous les deux rgs: 1 x 2 m et 1 x 1 m = 16 m pour l'épaule". Je viens de mettre mes 11 m en attente et je suis sur l'endroit. Dois-je donc rabattre les mailles (1 x 2 m et 1 x 1 m et encore 1 x 2 m...) sur chaque rg envers, jusqu'à ce qu'il reste 16m?

23.02.2024 - 16:14

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, lorsque les 11 mailles centrales sont mises en attente, vous terminez chaque épaule séparément et, en même temps, vous rabattez pour former l'encolure au début de chaque rang à partir de l'encolure = en début de rang sur l'endroit pour l'épaule droite / en début de rang sur l'envers pour l'épaule gauche: 2 mailles 1 fois et 1 fois 1 maille, Vous aviez 49 mailles en taille L, soit 19 m pour chaque épaule - 3 mailles rabattues pour l'encolure = il reste 16 mailles pour l'épaule. Bon tricot!

23.02.2024 - 17:02

country flag Anneke Roeling wrote:

Hallo Drops Design, Ik ben nu mijn voor- en achterpand opnieuw aan het breien want ik was niet tevreden over mijn kleurstelling ( ik gebruik 2 kleuren van drops Air) En het patentdeel komt niet overeen met de foto’s en werd veel te wijd, steek rekt erg uit. Nu opnieuw aan het breien gebruik ik de Halve Patentsteek , blijft beter in vorm en komt het wel overeen met de foto. Kan het kloppen dat het verkeerd beschreven staat in patroon? Vriendelijke groet, Anneke

10.02.2024 - 23:50

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Het deel in patentsteek is inderdaad vrij rekbaar, maar het klopt wel.

14.02.2024 - 20:23

country flag Lavazais Anne-Sophie wrote:

Bonjour, La largeur totale de la manche en haut pour la taille S fait 37 cm (=37 mailles). Or la hauteur de l'emmanchure jusqu'à l'épaule fait 20 cm, donc au total devant + dos = 40 cm. Comment dois-je faire pour coudre les 37 cm de la manche sur les 40 cm de l'emmanchure et que le résultat soit bien plat ? D'avance merci pour votre réponse

05.02.2024 - 21:47

country flag Aki wrote:

I'm a beginner knitter so this is a pretty ambitious project for me but I'm very determined to survive this pattern. At the start of the instructions for the back piece it says to purl on the wrong side, but if the cast on is on the left needle, wouldn’t this mean I just need to knit on the right side?

29.01.2024 - 00:42

DROPS Design answered:

Dear Aki, what you do is, after casting on, you will purl 1 row. From now on, the side which is towards you when you purled the row will be the wrong side of the piece. This is done so that the cast-on edge looks more neat. Happy knitting!

29.01.2024 - 00:52

country flag Ingrid Høyer wrote:

Beskrivelsen af hvordan man laver ærmekuplen er ikke ok. Jeg formoder at man skal lukke ialt 6 m af under ærmet inden der strikkes frem og tilbage.

20.01.2024 - 12:14

DROPS Design answered:

Hei Ingrid. Nei, det er riktig slik det står i oppskriften. Se på målskissen og evnt ta en titt på den generelle videoen: Hvordan sys ærmekuplen i ærmegabet. mvh DROPS Design

29.01.2024 - 10:42

country flag Antje wrote:

Moin. Wenn ich Rücken- und Vorderteil was die Muster anbetrifft gleich stricke bis zu einer Höhe von 35 cm und gleichzeitig das Rückenteil länger als das Vorderteil ist, dann bedeutet das, dass die Muster nicht auf gleicher Höhe beginnen, oder? Das heißt, das Patent fängt vorne weiter nach oben versetzt an als hinten?

15.01.2024 - 22:05

DROPS Design answered:

Liebe Anja, ja genau, Das Muster wird nicht an beiden Seiten anpassen, wenn man die Seiten zusammen näht, siehe 1. Foto; Viel Spaß beim stricken!

16.01.2024 - 08:35

country flag Laetitia E wrote:

Bonjour, je ne comprends pas les dimensions des manches. Je réalise la taille S et les manches sont plus longues que les autres tailles. Est-ce normal ? Merci

31.12.2023 - 10:24

DROPS Design answered:

Bonjour Laetitia, tout à fait, car les épaules sont plus larges dans les grandes tailles, donc les manches seront plus courtes. Quoi qu'il en soit, vous pouvez ajuster la longueur des manches en vous basant sur un pull similaire dont vous aimez la forme (pensez à bien prendre en compte la largeur du dos/devant dans vos mesures). Bon tricot!

02.01.2024 - 10:56

country flag Jill Christley wrote:

There is still a problem with the sleeve instructions. CO 27 sts. @10cm dec 3 sts = 24sts. INC 2 STS EVERY 9 CM. @12cm inc 2 sts = 26 sts. @21cm inc 2 sts = 28 sts. @ 30cm inc 2 sts = 30 sts. @ 39cm inc 2 sts = 32 sts. Sleeve will never have 37 sts, as there is an even number on the needle. Should I increase until there are 32 sts? Thank you.

31.12.2023 - 08:09

country flag Jill Christley wrote:

There is still a problem with the sleeve instructions. CO 27 sts. @10cm dec 3 sts = 24sts. INC 2 STS EVERY 9 CM. @12cm inc 2 sts = 26 sts. @21cm inc 2 sts = 28 sts. @ 30cm inc 2 sts = 30 sts. @ 39cm inc 2 sts = 32 sts. Sleeve will never have 37 sts, as there is an even number on the needle. Should I increase until there are 32 sts? Thank you.

31.12.2023 - 08:09

country flag Margarita Rafecas wrote:

Hola, en la confeccion de el FRENTE, donde dice como hacer el escote de cuello, no entiendo lo siguiente: 2puntos una vez, un punto una vez. Los puntos se rematan de uno en uno, no?? Y entiendo que en cada vuelta del derecho. Si me podeis ayudar? Muchas gracias

12.12.2023 - 19:40

DROPS Design answered:

Hola Margarita, cierras en filas que comienzan desde el escote; en un hombro esta será una fila por el lado derecho y en el otro una fila por el lado revés. En la primera fila cierras los primeros 2 puntos, trabajas 1 fila normal y en la siguiente fila cierras sólo 1 punto. Los puntos se rematan de uno en uno.

17.12.2023 - 23:49