DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Southern Migration

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-13
DROPS Design: Mynstur me-248
Garnflokkur B + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
17 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með mynstri A.1 og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-204-222-240-264-285 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem fækkað er um 22-22-24-26-30-31 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 170-182-198-214-234-254 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 85-91-99-107-117-127 lykkjur og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið síðan þannig: * Prjónið 5-8-3-7-3-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 72-72-90-90-108-108 lykkjur, prjónið 3 fyrstu lykkjur af A.1 og prjónið 5-8-3-7-3-8 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé 1. eða 7. umferð í A.1 (þar sem lykkjufjöldinn er breytilegur í mynstri A.1).
Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi þannig: Fellið af 2-3-6-8-11-15 lykkjur, prjónið 81-85-87-91-95-97 lykkjur eins og áður, fellið af 4-6-12-16-22-30 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 81-85-87-91-95-97 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 2-3-6-8-11-15 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið síðan bakstykki og framstykki fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 81-85-87-91-95-97 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 72-72-72-72-90-90 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1 og prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón.
Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 75-79-81-85-89-91 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 25-26-27-28-30-30 lykkjur slétt, fellið af 25-27-27-29-29-31 lykkjur, prjónið 25-26-27-28-30-30 lykkjur. Prjónið síðan hvor öxl til loka hvora fyrir sig.

VINSTRI ÖXL (bakstykki):
= 25-26-27-28-30-30 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið eins og áður út umferðina = 24-25-26-27-29-29 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

HÆGRI ÖXL (bakstykki):
= 25-26-27-28-30-30 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar þannig: Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur sléttprjón = 24-25-26-27-29-29 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

FRAMSTYKKI:
= 81-85-87-91-95-97 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 72-72-72-72-90-90 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1 og prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón.
Þegar stykkið mælist ca 42-48-45-47-48-50 cm, prjónið sléttprjón yfir miðju 4 mynstureiningar af A.4, (hér er lykkjum fækkað síðar fyrir hálsmáli).
Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 26-27-28-29-31-31 lykkjur eins og áður, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 19-21-21-23-23-25 lykkjur slétt og setjið þær á þráð, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, prjónið 26-27-28-29-31-31 lykkjur eins og áður. Axlirnar eru nú prjónaðar til loka hvor fyrir sig.

HÆGRI ÖXL (framstykki):
= 29-30-31-32-34-34 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 27-28-29-30-32-32 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 24-25-26-27-29-29 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRI ÖXL (framstykki):
= 29-30-31-32-34-34 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 27-28-29-30-32-32 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 24-25-26-27-29-29 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Fitjið upp 48-48-51-54-54-57 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-7-10-8-9 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-48 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-9-9-7-8-6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-46-45-43-41 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og ermakúpan er prjónuð fram og til baka. Fellið af þegar ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana þannig að saumurinn verði flatur og fallegur.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 4 og 1 þráði í hvorri tegund. Byrjið frá réttu við aðra öxlina, prjónið upp ca 81-84-87-90-93-99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð mitt að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja, farðu áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = löng lykkja. Stingið prjóninum í gegnum stikkið á milli úrtöku 2 umferðum að neðan. Sækið þráðinn og dragið þráðinn með til baka að réttu á stykki. Passið uppá að þráðurinn sé nægilega langur þannig að hann herði ekki á stykkinu.
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Fabienne wrote:

Ce pull est magnifique ! Serait-il possible de le faire en col marteau ? Ce serait top

26.07.2023 - 15:51

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, probablement, retrouvez tous nos pulls avec manche marteau ici, l'un d'eux pourra peut-être vous inspirer. Bon tricot!

28.07.2023 - 07:58

country flag Maria Helena Matias wrote:

Quando começamos a trabalhar as costas, ou a frente, separadamente ,a receita manda fazer, no lado do avesso, algumas malhas em ponto meia , no inicio e no fim da carreira. A receita não explica no entanto como tecer essas malhas, no lado do direito. Tricota-se tal como se apresentam, em ponto liga?? Ou em ponto meia? Ficarei muito agradecida se me puderem esclarecer esta dúvida.

18.02.2023 - 17:37

DROPS Design answered:

Bom dia, O ponto meia ou jersey tricota-se da seguinte maneira: Meia pelo direito da peça e liga pelo avesso da peça. Se tricotar em redondo, tricota-se sempre em meia. Bons tricôs!

27.03.2023 - 09:33

country flag Christiane wrote:

Als ik na het boord de beschrijving voor het breien van het lijf volg, heb ik maar 99 van de 198 gebreid. Of wordt met brei van *-* 1 keer " herhaal 1 keer bedoeld?

27.12.2022 - 15:20

DROPS Design answered:

Dag Christiane,

Wat tussen de sterretjes staat brei je inderdaad nog een keer.

27.12.2022 - 20:48

country flag Maud Öhman wrote:

Butterfly sky

06.08.2022 - 18:48

country flag Danielle Dubois wrote:

Neiges éternelles

05.08.2022 - 09:09