Charming Clover Top |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað með gatamynstri og bandi á öxl / hlýra. Stærð XS - XXL.
DROPS 239-28 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. STUÐLAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. FASTALYKKJUR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkjju sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. LEIÐBEININGAR: Ef þig langar til að toppurinn hylji aðeins meira að framan, er hægt að hekla brjóstaskálarnar saman með nokkrum fastalykkjum sem skarast fyrir miðju. Staðsetjið brjóstaskálarnar með óskaðri staðsetningu hvar á að hekla lykkjurnar þar sem stykkið á að skarast og heklið fastalykkjur meðfram neðri hlið. Stillið fjölda fastalykkja sem á að hekla miðað við hversu mikið stykkið skarast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Brjóstaskálarnar eru heklaðar fram og til baka hvor fyrir sig, síðan eru þær heklaðar saman í eitt stykki. Fram- og bakstykkið er heklað fram og til baka, síðan eru brjóstaskálarnar saumaðar eða heklaðar niður við fram- og bakstykki. Það er heklað 1 band á öxl / hlýri fyrir hvora brjóstaskál og snúra til að hnýta toppinn með mitt að aftan. BRJÓSTASKÁL: Heklið 14-15-16-20-21-22 loftlykkjur með heklunál 3,5 og DROPS Cotton Light. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í ústkýringu að ofan. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 9-10-11-15-16-17 loftlykkjum (nú er eftir 1 loftlykkja í loftlykkjuröðinni), heklið mynsturteikningu A.1 í síðustu loftlykkjuröðina (toppurinn á brjóstaskálinni). Snúið stykkinu þannig að heklað er meðfram neðri hlið á loftlykkjuröðinni. Heklið 1 stuðul í neðri hlið á hverjum af 11-12-13-17-18-19 stuðlum sem heklaðir voru í annarri hliðinni á loftlykkjuröðinni (síðasti stuðull er heklaður í neðri hlið á 3 loftlykkjum sem koma í stað 1. stuðuls). Það eru 26-28-30-38-40-42 stuðlar og 1 loftlykkja í umferð. Snúið stykkinu. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, en um loftlykkju mitt í A.1 er hekluð mynsturteikning A.1 (4 stuðlar fleiri í umferð). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið svona þar til heklaðar hafa verið alls 5-6-7-8-9-10 umferðir með stuðlum fram og til baka. Það eru 42-48-54-66-72-78 stuðlar og 1 loftlykkju í umferð. Nú er heklað eftir mynsturteikningu A.2 til A.6 þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.2 yfir 3 stuðla, heklið A.3 fram að loftlykkju mitt í A.1 (6-7-8-10-11-12 sinnum), heklið A.4 í loftlykkju, heklið A.5 fram þar til 3 stuðlar eru eftir (6-7-8-10-11-12 sinnum) (mynstrið verður alveg eins hvoru megin við A.4), heklið A.6 yfir 3 stuðla. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið A.6 yfir A.6, heklið A.5 á milli hverra stuðlahópa fram að fyrstu loftlykkju í A.4 (5-6-7-9-10-11 sinnum), heklið A.5 um fyrstu loftlykkju í A.4, heklið A.4 um loftlykkju í miðju á A.4, heklið A.3 um síðustu loftlykkju í A.4, heklið A.3 á milli hverra stuðlahópa (5-6-7-9-10-11 sinnum) og heklið A.2 yfir A.2. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá umferð 1 = 52-58-64-76-82-85 stuðlar. Klippið þráðinn og festið. Heklið 1 brjóstaskál til viðbótar á sama hátt. FRÁGANGUR Á BRJÓSTASKÁLUM: Lesið LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Notið heklunál 3,5 og DROPS Cotton Light. Heklið ca 29-32-36-39-43-47 fastalykkjur meðfram neðri hlið á fyrri brjóstaskálinni, takið fram hina brjóstaskálina og heklið ca 29-32-36-39-43-47 fastalykkjur meðfram neðri hlið á seinni brjóstaskálinni. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 123-136-145-168-190-213 loftlykkjur með heklunál 3,5 og DROPS Cotton Light. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 umferð í mynsturteikningu A.7 til A.10 þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Heklið A.7, heklið til skiptis A.8 og A.9 þar til eftir eru 1-5-5-1-5-1 loftlykkjur, heklið A.9 0-1-1-0-1-0 sinnum og endið með A.10. Það eru 109-121-129-149-169-189 fastalykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Heklið A.10, heklið A.9 þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með A.7. UMFERÐ 3 (ranga): Heklið A.7, heklið A.9 þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með A.10. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 16-17-18-16-17-17 cm eða heklið að óskaðri lengd. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Staðsetjið stykkin með brjóstaskálunum á fram- og bakstykki, setjið þær fyrir miðju meðfram loftlykkjum frá byrjun á fram- og bakstykki. Brjóstaskálarnar eru saumaðar eða heklaðar niður við fram- og bakstykki. Saumið í ystu lykkjubogana eða heklið með keðjulykkjum þannig að saumurinn verði flatur og fallegur við frágang. BAND / HLÝRI: Notið heklunál 3,5 og 2 þræði DROPS Cotton Light. Heklið loftlykkjur þar til bandið á öxl / hlýri mælist ca 110-115 cm langt eða heklið að óskaðri lengd. Heklið alls 3 bönd / hlýra, eitt fyrir hvora brjóstaskál og eitt til að loka fram- og bakstykki að aftan. Brjótið saman eitt bandið / hlýra fyrir miðju, stingið endanum á bandinu / hlýra með lykkjunni í gegn efst á brjóstaskálinni, þræðið síðan bandið / hlýra í gegnum lykkjuna og herðið að þannig að lykkjan lokist í kringum bandið / hlýra. Festið annað band / hlýra á sama hátt í hina brjóstaskálina. Brjótið fram- og bakstykkið saman þannig að skammhliðarnar liggi að hvorri annarri. Þræðið inn endana á síðasta bandinu / hlýra í gegnum hvora hlið efst á fram- og bakstykki, þræðið endana fram og til baka í gegnum hliðarnar þannig að bandið / hlýri myndi kross fyrir miðju. Haldið áfram að þræða þar til endarnir komi út neðst í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Hnýtið endana saman. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Valeria wrote:
Coffee break
21.01.2023 - 11:01Sara Morini wrote:
Marmaid fair
19.01.2023 - 12:55Amber wrote:
Hollis
18.01.2023 - 20:54Sara Silva wrote:
Boho Freedom
18.01.2023 - 14:00Zita wrote:
Summer Fun
17.01.2023 - 22:39