Stormlight Top |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, garðaprjóni og klauf í hliðum. Stærð XS/S - XXXL.
DROPS 239-34 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður, hvort fyrir sig. Fyrst eru böndin á öxlum / hlýrar prjónað, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli banda á öxlum / hlýra og bakstykkið / framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síða er bakstykkið og framstykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring, áður en stykkið skiptist fyrir klauf í hliðum. Böndin á öxlum / hlýrar er saumað saman á öxlum. HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 9-9-11-11-13-13 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Paris. Prjónið stroffprjón fram og til baka þannig (fyrsta umferð = rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar band á öxl / hlýri mælist 5-6-7-5-6-7 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu, geymið stykkið. VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á hægra band á öxl / hlýri að aftan og prjónið á sama hátt og hægra band á öxl / hlýri að aftan. Þegar bandið á öxl / hlýri mælist ca 5-6-7-5-6-7 cm og síðasta umferð er prjónuð frá réttu, setjið lykkjur á hringprjón 4. Ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 31-41-37-37-43-43 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar fyrir hálsmáli, síðan eru lykkjur prjónaðar frá hægra bandi á öxl / hlýra eins og áður = 49-59-59-59-69-69 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki hér – héðan er nú stykkið mælt! BAKSTYKKI: Prjónið stroffprjón fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt, 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og stroffprjóni eins og áður. Nú byrjar mynstrið. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1A, prjónið A.1B alls 3-4-4-4-5-5 sinnum, A.1C, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, byrjar útaukning fyrir handveg. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, A.2A, prjónið A.2B alls 4-5-5-5-6-6 sinnum, A.2C, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.2, fitjið upp 4-4-7-7-7-12 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar 2 umferða = 65-75-81-91-101-111 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18-20-21-22 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki. VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 9-9-11-11-13-13 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Paris. Prjónið stroffprjón fram og til baka þannig (fyrsta umferð = rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar band á öxl / hlýri mælist 9-10-11-9-10-11 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu, geymið stykkið. HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á vinstra band á öxl / hlýri að framan og prjónið á sama hátt og vinstra band á öxl / hlýri að framan. Þegar band á öxl / hlýri mælist ca 9-10-11-9-10-11 cm og síðasta umferð er prjónuð frá réttu, setjið lykkjur á hringprjón 4. Ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 31-41-37-37-43-43 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar fyrir hálsmáli, síðan eru lykkjur prjónaðar frá vinstra bandi á öxl / hlýra eins og áður = 49-59-59-59-69-69 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki hér – héðan er nú stykkið mælt! FRAMSTYKKI: Prjónið stroffprjón fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt, 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og stroffprjóni eins og áður. Nú byrjar mynstrið og útaukning fyrir handveg. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 4-5-5-5-6-6 sinnum, A.2C, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.2, fitjið upp 4-4-7-7-7-12 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar 2 umferða = 65-75-81-91-101-111 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18-20-21-22 cm. Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur frá framstykki og bakstykki á sama hringprjón 5 = 130-150-162-182-202-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þar sem stykkin voru sett saman. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: XS/S - M - XXXL: * 2-2-0 lykkjur brugðið, A.3A, prjónið A.3B alls 5-6-10 sinnum, A.3C, 2-2-0 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur í öllum umferðum þar sem ekki er prjónað brugðið yfir allar lykkjur, prjónið 2-2-0 lykkjur hvoru megin við prjónamerki slétt. L - XL - XXL: * A.3A, prjónið A.3B alls 6-7-8 sinnum, A.3C *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 28-29-30-30-31-32 cm frá þar sem stykkið var sett saman eða endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Nú er A.4 prjónað hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið við prjónamerkin í hliðum. Setjið síðustu 65-75-81-91-101-111 lykkjur á þráð og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt og aukið út 8-10-10-12-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 73-85-91-103-113-125 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af frá réttu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti á böndum á öxl / hlýrum. Setjið lykkjur til baka af þræði á hringprjón 4 og prjónið hitt stykkið á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman bönd á öxlum / hlýra. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Denise wrote:
Sweet Summer
19.01.2023 - 13:36Teri wrote:
Crossing the Dunes
18.01.2023 - 17:27Jeanine Zwalve wrote:
Paris pure
18.01.2023 - 07:22Wenche wrote:
Sommerdrømmer
17.01.2023 - 22:16Huerne Françoise wrote:
Quadrillage
17.01.2023 - 18:20