DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Meet the Captain

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í röndum, tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð 2 - 12 ára.

DROPS Children 47-5
DROPS Design: Mynstur u-107-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-200-250-250-300-350 g litur 65, gallabuxnablár
100-100-100-100-150-150 g litur 85, ljós beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Auki út um 1 lykkju á undan/á eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Merkiþræðir sitja á milli þessa 2 lykkja.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

RENDUR:
Prjónað er með litnum gallabuxnablár þar til stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm, mælt eftir stroff í hálsmáli. Prjónið rendur þannig: * 6 umferðir með litnum ljós beige (ca 2 cm), 9 umferðir með litnum gallabuxnablár (ca 3 cm) *, prjónið frá *-*.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-80-88-88-88-88 lykkjur með DROPS Karisma í litnum gallabuxnablár yfir stuttan hringprjón 3,5 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 3,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan, jafnframt sem aukið er út jafnt yfir. ATH: Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja slétt og merkiþræðir merkja laskalínu. (Byrjun á umferð er á milli bakstykkis og hægri ermi).
Prjónið 2 lykkjur slétt, setjið 1. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14 lykkjur (hægri ermi), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 2. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið 22-22-26-26-26-26 lykkjur og aukið út 4-4-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING (= 26-26-32-32-32-34 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 3. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14 lykkjur (vinstri ermi), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 4. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið 22-22-26-26-26-26 lykkjur og aukið út 4-4-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 26-26-32-32-32-34 lykkjur fyrir bakstykki) = 88-88-100-100-100-104 lykkjur.

Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. Jafnframt eru prjónaðar rendur, lestu því 2 næstu kafla áður en þú prjónar áfram!

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 9-9-9-8-8-7 sinnum = 160-160-172-164-164-160 lykkjur.
Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annarri hverri umferð sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-12-14-16-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-6-6-7-8-9 sinnum á ermum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

RENDUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm, mælt eftir kanti í hálsmáli, prjónið RENDUR – lesið útskýringu að ofan.

Á eftir síðustu útaukningu eru 220-232-244-248-260-268 lykkjur í umferð (66-70-76-78-82-86 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki og 44-46-46-46-48-48 lykkjur á milli merkiþráða á ermum).
Haldið áfram í sléttprjón og röndum án útaukninga þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm, mælt eftir stroff mitt að framan.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 1 lykkju eins og áður, setjið næstu 44-46-46-46-48-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 66-70-76-78-82-86 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 44-46-46-46-48-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður út umferðina (= 66-70-76-78-82-86 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-156-168-176-184-192 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum þar til prjónaðar hafa verið alls 4-5-5-6-7-7 rendur með litnum ljós beige. Afgangur af stykki er prjónað í litnum gallabuxnablár. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24-27-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-204-212-220 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 44-46-46-46-48-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-54-56-58-58 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráð og prjónið sléttprjón og rendur hringinn eins og áður.
Þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-4-5-6-9 cm millibili alls 6-6-5-5-5-4 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Þegar það eru jafn margar rendur og á fram- og bakstykki er afgangur af ermi prjónað í litnum gallabuxnablár. Prjónið þar til ermin mælist 15-20-23-26-30-35 cm frá skiptingu. Það eru ca 4 cm eftir að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 19-24-27-30-34-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Julie Sarauw wrote:

Jeg kan ikke få antal masker til ærmerne til at stemme ifølge opskriften… strikker str 122/128 så 14 masker + 7 omgange med udtagning til ærmer, giver da kun (14+14+2)= 30 masker pr ærme og ikke 46 masker som der står i opskriften? Mvh Julie

09.12.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

Hei Julie. På hvert erme har du 14 masker + 1 maske i hver raglanlinje = 16 masker, (16 masker mellom merketråd nr. 1 og nr. 2 og mellom merketråd nr. 3 og nr. 4). Så økes det til raglan ved hver raglanlinje på hver 2. omgang totalt 8 ganger = 8 + 16 + 8 masker = 32 masker. Så skal det kun økes til raglan på hver 4. omgang på ermene 7 ganger = 7 + 32 + 7 = 46 masker, som det står i oppskriften. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 10:48

country flag Agnes Jansen wrote:

In een keer zie ik mijn fout!!. Die 26 steken zijn de 22 +4!. Dus die 2x 26 s een herinnering van het vorige!!

21.10.2023 - 14:39

country flag Agnes Jansen wrote:

Ben bij de pas. Ik moet voor 98/104 88 steken hebben. Maar als ik de steken op de pas tel, voor de raglan, kom ik aan 132 steken?

21.10.2023 - 14:10

DROPS Design answered:

Dag Agnes,

Als het goed is heb je 80 steken opgezet en bij het plaatsen van de markeerdraden om de raglanlijnen aan te geven meerder je in totaal 8 steken, namelijk 4 steken verdeeld over de 22 steken van het voorpand en 4 steken verdeeld over het achterpand.

26.10.2023 - 20:16

country flag Janine wrote:

Hallo, Ich habe gerade begonnen die Passe (Größe 98) zu stricken und stolpere. Fehlt da nicht der linke Ärmel mit 14 MA? Auch rechnerisch komme ich bei 2+14+2+(22+4)+2+2+(22+4) nicht auf 88. Oder wo liegt mein Denkfehler?

29.09.2023 - 09:51

DROPS Design answered:

Liebe Janine, sieht so aus, daß der linke Ärmel fehlt in deutsch, Sie sollen ja genau nach der 3. Markierung die 14 M vom Ärmel zählen. Danke für den Hinweis, es wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

02.10.2023 - 08:29

country flag Anne wrote:

Bonjour Je ne comprends pas la partie des augmentations du reglan pendant 10 tours (1fois sur 2 pour les manches) : pourquoi 4 mailles alors qu’on a toujours augmenter 1maille avant les marqueurs + 2 mailles après =donc 3 mailles

24.09.2023 - 22:56

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, on doit toujours augmenter 1 maille avant ou après chaque marqueur - cf RAGLAN; Lorsque vous avez 160-160-172-164-164-160 mailles sur l'aiguille (vous avez déjà augmenté 9-9-9-8-8-7 fois 8 mailles au total tous les 2 tours) vous allez maintenant augmenter à un rythme différent sur le dos/le devant (tous les 2 tours comme avant) et sur les manches (tous les 4 tours désormais), autrement dit, vous allez augmenter alternativement 4 mailles (dos et devant seulement) et 8 mailles (dos, devant et manches comme avant). Bon tricot!

25.09.2023 - 10:51

country flag Anette wrote:

Samma som My Baudou. Önskar beskrivningen på svenska om möjligt.

05.09.2023 - 15:42

DROPS Design answered:

Hei Anette. Da velger du Svensk i nedtrekksmenyen :) mvh DROPS Design

11.09.2023 - 15:03

country flag My Baudou wrote:

Jag vill ha mönstret Meet the Captain på svenska. När jag ställer in svenska är det det i början, men övergår till norska vid instruktionerna. Det blir för svårt för mig.

02.09.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Hej My, tack för info - nu ligger mönstret där på svenska :)

08.09.2023 - 15:39

country flag Susi wrote:

Stimmt, da fehlen wichtige Angaben zu Größe und Verbrauch, etc.

27.08.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Liebe Susi, danke für den Hinweis, das wird gleich verfügbar sein :)

28.08.2023 - 16:41

country flag Elke wrote:

Liebes Drops-Team, in dieser Anleitung fehlt die Größenangabe incl Garnverbrauch, oder ist es so gedacht, daß man eine andere Anleitung bzgl Größe verwendet?? Liebe Grüße Elke

25.08.2023 - 16:20

DROPS Design answered:

Liebe Elke, danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird korrigiert so bald wie möglich :) Viel Spaß beim stricken!

28.08.2023 - 16:40