DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Running Circles Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 - 12 ára.

DROPS Children 47-7
DROPS Design: Mynstur u-108-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-400-450 g litur 68, ljós himinblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 627: 5-5-6-6-6-6 st.

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynstur fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar A.3 er prjónað á að prjóna síðustu lykkjuna á undan kanti að framan eins og fyrstu lykkju í A.3, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins við kanta að framan.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi, síðan er fram- og bakstykkið og ermar prjónað til loka hvert fyrir sig. Fram- og bakstykkið heldur áfram fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Það eru ekki gerð hnappagöt, tölum er hneppt í gegnum gataumferðir í kanti að framan.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 75-79-85-87-89-93 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Karisma.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið stroff fram og til baka svona þar til stroffið mælist 3 cm, í næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 7 nýjar lykkjur fyrir garðaprjón í hvorri hlið fyrir kant að framan = 89-93-99-101-103-107 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: A.1 yfir 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir og A.2 yfir 7 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist alls 6½ cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu.

BERUSTYKKI:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttar lykkjur og aukið út 14-18-20-18-24-20 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 103-111-119-119-127-127 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér, héðan er nú berustykkið mælt.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður).
Nú er prjónað A.3 – lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan, jafnframt er aukið út í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) þannig:
UMFERÐ 1: Aukið út um 24 lykkjur jafnt yfir = 127-135-143-143-151-151 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 2: Aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 151-159-171-171-183-183 lykkjur.
UMFERÐ 3: Aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir =175-183-199-199-215-215 lykkjur.
UMFERÐ 4: Aukið út um 24-24-26-32-28-36 lykkjur jafnt yfir = 199-207-225-231-243-251 lykkjur.
UMFERÐ 5: Aukið út um 26-30-26-32-32-36 lykkjur jafnt yfir = 225-237-251-263-275-287 lykkjur

Prjónið sléttprjón (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 37-39-42-44-46-48 lykkjur slétt (vinstra framstykki), setjið næstu 44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur slétt (bakstykki), setjið næstu 44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 37-39-42-44-46-48 lykkjur slétt (hægra framstykki). Stykkið er nú mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 149-157-167-175-183-191 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 13-15-18-21-24-25 cm frá skiptingu, stillið af þannig að næsta umferð sé frá réttu (það eru ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Nú eru kantar að framan prjónaðir áfram í garðaprjóni, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni jafnframt því sem aukið er út um 28-30-30-32-33-36 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 177-187-197-207-216-227 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 33-36-40-44-48-50 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 44-46-48-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýju lykkjurnar og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Prjónið hringinn í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-3½-4½-5-6-7 cm millibili alls 5 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 16-20-24-28-31-35 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op mitt að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan, efsta talan er sett þannig að hægt sé að hneppa í gegnum 1. umferð með götum í kanti að framan – deilið síðan þeim tölum sem eftir eru meðfram götum í kanti að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það á að myndast gat

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = útaukningsumferð – lesið útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Bly wrote:

What do I do with the black dashes in A1. And also the ovals in A3.

07.02.2024 - 15:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bly, see the diagram key over diagrams: the dashes are for the decreases: see `5th and 6th symbol and the oval is a yarn over, see 3rd symbol. Happy knitting!

08.02.2024 - 08:25

country flag Mindy wrote:

I am just starting the A.1 and A.2 band over 7 stitches but I do not understand the third row: The pattern shows a squiggle after the first stitch (I can’t attach a photo unfortunately) What does this mean?

18.01.2024 - 23:03

DROPS Design answered:

Hi Mindy, The diagrams are worked bottom up and read from right to left, so the row you mention is row 8 in both diagrams and is worked from the wrong side. The row consists of knit 1, 1 yarn over, k2 together, 1 yarn over, K2 tog, 1 yarn over, K2 tog which gives you a line of holes in the pattern. Hope this helps and happy knitting!

19.01.2024 - 07:12

country flag Donatella wrote:

... allora glielo segnalo: la circonferenza torace di un bambino di due anni è (secondo le tabelle pediatriche "normali") di 56 cm.; pur aggiungendo la vestibilità siamo ben lontani dai 71 cm. risultanti dal calcolo eseguito sul campione indicato... correggetemi se sbaglio

31.12.2023 - 11:30

country flag Donatella wrote:

Correggetemi se sbaglio: 149 maglie corrispondono a 71 cm (21 m. in 10 cm) Mi sembra una misura eccessiva per il torace di una bambina di due anni… Magari sbaglio ma le misure non sono corrispondenti all’età

29.12.2023 - 23:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella, al momento non ci sono indicazioni di errori nelle spiegazioni, i numeri indicati sono corretti. Buon lavoro!

30.12.2023 - 10:43

country flag STÉPHANIE BLAIS wrote:

Bonsoir, . j'ai déjà réalisé ce modèle et je l'apprécie beaucoup mais cette fois-ci je souhaiterais utilisé la "sky", est-ce un bon fils pour le tricoter et combien me faudrait-il de pelotes pour le 7/8 ans? merci beaucoup! stéphanie

08.11.2023 - 18:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blais, utilisez notre convertisseur pour connaître la quantité correspondante nécessaire en DROPS Sky (et dans d'autres alternatives du groupe B). Bon tricot!

09.11.2023 - 08:14

country flag Cathie wrote:

Bonjour Jene comprends pas la ligne numéro 8 du diagramme A1 ... 1 maille endroit sur envers et envers sur endroit et ensuite ?. Que signifie les signes suivants ? Merci de votre aide ...

16.10.2023 - 10:57

DROPS Design answered:

Bonjour Cathy, le 8ème rang de A.1 se lit de gauche à droite car on le tricote sur l'envers, et on va tricoter ainsi: (2 m ens à l'end, 1 jeté) x 3 et terminer par 1 maille endroit. Bon tricot!

16.10.2023 - 15:00

country flag Suzanne Messara wrote:

Hello. I am knitting the Running Circles cardigan. I do not understand the symbols in row s 8 of chart A2 and A3. Thank you

07.10.2023 - 16:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Messara, on 8th row in A.2 work (from WS): K1, (YO, K2 tog) x 3. I'm just unsure which size you are working A.3, you will find all symbols explained above diagrams, the x is a stitch that should be knitted from wrong side (or purled from right side). Happy knitting!

09.10.2023 - 09:55

country flag Alba wrote:

Merci pour vos explications, j'ai tout ce qu'il me faut pour continuer maintenant :) Je fais la taille 5/6 ans. Bonne journée!

21.09.2023 - 11:26

DROPS Design answered:

Bonjour Alba et merci, donc en taille 5/6 ans, vous tricotez: 7 m de bordure devant, 13 fois A.3, la 1ère m de A.3 et 7 m de bordure devant (sur l'envers: A.2, la 1ère m de A.3, répétez A.3 et terminez par A.1). Bonne continuation, n'hésitez pas à revenir si besoin.

21.09.2023 - 11:49

country flag Alba wrote:

Bonjour, merci pour votre réponse ! Pour suivre: quand je fais les augmentations en suivant les indications des flèches sur le motif A3, au rang après un rang d'augmentation, je suis le même conseil que vous m'avez donné quand le nombre de mailles entre les bordures n'est pas un multiple de 8? C'est à dire tricoter A3 en continu sur le rang même si la dernière maille du rang n'est pas forcément la dernière maille des 8 du motif A3? Merci et bonne journée!

21.09.2023 - 10:48

DROPS Design answered:

Bonjour Alba, vous répétez toujours A.3 de la même façon entre les mailles de bordure des devants, pour les motifs ajourés, vous aurez toujours un nombre multiple de 8. Les motifs ajourés ne seront pas alignés les uns au-dessus des autres comme dans le diagramme, mais vous devez répétez le diagramme sur toutes les mailles (n'hésitez pas à indiquer quelle taille vous tricotez, je n'ai pas trouvé tout à l'heure). Bon tricot!

21.09.2023 - 11:23

country flag Alba wrote:

Bonjour, Au début de l'empiècement, après avoir fait un rang envers sur l'envers, en conservant les bordures A1 et A2, il y a 105 mailles entre les bordures. Il est écrit de faire A3 sur ces mailles. 105 n'étant pas un multiple de 8, comment tricoter A3 sur ces mailles dans avoir de décalage sur les motifs de A3 qui vont se répéter au long des mailles? Merci et bonne journée!

20.09.2023 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Alba, effectivement, vous devez alors terminer le rang par la 1ère maille de A.3 avant les mailles de bordure devant sur l'endroit (et commencez par cette maille après les mailles de bordure devant sur l'envers) - cf aussi POINT FANTAISIE, ainsi, le motif est symétrique sur chaque devant. Bon tricot!

21.09.2023 - 10:42