Moon Mist |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S – XXXL.
DROPS 245-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 4 lykkjum með prjónamerki í – síðan kölluð laskalínulykkja. Laskalínulykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkju þannig: Á UNDAN laskalínulykkju: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR laskalínulykkju: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalínulykkju þannig: Á UNDAN laskalínulykkju: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR laskalínulykkju: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. LASKALÍNA-2: Aukið út um 1 lykkju aukalega á eftir / undan laskalínulykkjum á framstykki / bakstykki (ekki á ermum). Laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við Laskalína-1. Þetta er gert þannig: Á UNDAN laskalínulykkju: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan laskalínulykkju, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat. Á EFTIR laskalínulykkju: Prjónið 3 lykkjur fram hjá laskalínulykkju (hugsanlega er uppsláttur frá útaukningu í sömu umferð sem er ekki talinn sem lykkja hér), notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er hálsmál prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Síðan er framstykki / bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli sem brotinn er saman tvöfaldur. HÁLSMÁL: Fitjið upp 62-64-66-68-70-72 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 4 prjónamerki og 1 merkiþráð í stykkið þannig: Teljið 1 lykkju, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12-13-14-15-16-17 lykkjur, setjið 1 merkiþráð (miðja að aftan), teljið 12-13-14-15-16-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju = 1 lykkja eftir síðasta prjónamerki. Lykkjur með prjónamerki eru núna kallaðar laskalínulykkjur. Prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 72-74-76-78-80-82 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-76-78-80-82-84 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta). Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 84-86-88-90-92-94 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 86-88-90-92-94-96 lykkjur. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 97-99-101-103-105-107 lykkjur. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-102-104-106-108-110 lykkjur. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 116-120-124-128-132-136 lykkjur. Prjónið áfram að merkiþræði mitt að aftan. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur. Prjónið núna berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn frá miðju að aftan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Það á núna að auka út fleiri lykkjur á framstykki/ bakstykki en á ermum, þess vegna er aukið út auka lykkjum á framstykki / bakstykki með jöfnu millibili (laskalína-2). Þetta er gert sem viðbót við laskalína-1. Lestu því allan kaflann um berustykki áður en þú prjónar áfram. Aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur í annarri hverri umferð alls 3-5-8-13-13-11 sinnum (þ.e.a.s. 7-9-12-17-17-15 sinnum meðtaldar 4 útaukningar fyrir hálsmáli). JAFNFRAMT í fyrstu umferð, aukið út fyrir LASKALÍNA-2 á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan (laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við laskalína-1). Aukið út fyrir laskalína-2 í 12.-12.-14.-10.-8.-8. hverri umferð alls 2-2-2-4-5-6 sinnum. Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalína-1 alls 3-5-8-13-13-11 sinnum eftir hálsmáli eins og útskýrt er að ofan, heldur útaukning fyrir laskalína-1 áfram í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-14-12-8-10-14 sinnum á fram- og bakstykki (7-7-6-4-5-7 sinnum á ermum) – munið eftir laskalína-2. Nú hefur verið aukið út alls 23-25-26-29-32-35 sinnum á framstykki / bakstykki (meðtalin laskalína-2) og 14-16-18-21-22-22 sinnum á ermum. Eftir alla útaukningu fyrir laskalína-1 og laskalína-2 eru 232-252-268-296-316-332 lykkjur í umferð (70-76-80-88-96-104 lykkjur á milli laskalíulykkja á framstykki / bakstykki og 44-48-52-58-60-60 lykkjur á milli laskalínulykkja á ermum). Prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-39-41-45-49-53 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 72-78-82-90-98-106 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 36-39-41-45-49-53 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 21-21-22-23-23-23 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Setjið lykkjur frá framstykki á hringprjón 3,5 og látið lykkjur á bakstykki hvíla á hringprjón 5. FRAMSTYKKI: = 80-86-92-100-110-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 25-27-29-31-35-37 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 105-113-121-131-145-157 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af, notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Færið 80-86-92-100-110-120 lykkjur yfir á hringprjón 3,5 og prjónið á sama hátt og á framstykki. ERMI: Setjið 44-48-52-58-60-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-62-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-2-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-5-3½-3-2½-2 cm millibili alls 4-5-7-9-10-10 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 31-29-28-28-26-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 64-66-68-70-76-78 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Fellið af á sama hátt og framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 43-41-40-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að aftan og prjónið upp frá réttu ca 100-104-108-112-116-120 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 – stillið af þannig að stroffið passi þannig að laskalínulykkjur haldi áfram sem slétt lykkja (séð frá réttu) í kanti í hálsmáli og að það sé oddatala í fjölda lykkja á milli hverra laskalínu, þannig að stroffið gangi jafnt upp hringinn. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 15 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum við hverja laskalínu. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Kristine wrote:
Cloudy pearls
31.08.2023 - 14:26Lis Juul wrote:
Det er en model jeg gerne vil strikke, den er virkelig flot.
29.08.2023 - 12:09Marina wrote:
Silver autumn
06.08.2023 - 12:11Vanilla wrote:
Rainy cloud
04.08.2023 - 17:29Mette wrote:
Morning mist
03.08.2023 - 21:13