Avalanche Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-7 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri að aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð. Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá lykkju með prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 33-35-37-39-41-43 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 49-52-55-58-61-64 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 81-86-91-96-101-106 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 97-103-109-115-121-127 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8½-7½-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 137-143-147-153-159-169 lykkjur með DROPS BabyMerino yfir hringprjón 2,5 og hringprjón 3 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 3 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 2,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur fyrir kant að framan í lok 2 næstu umferða = 149-155-159-165-171-181 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður (sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur), en nú eru ystu 7 lykkjurnar í hvorri hlið prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8-8-8-10-10-10 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður JAFNFRAMT sem ca 4. hver lykkja frá stroffi er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 34-36-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING = 183-191-195-203-211-223 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki innan við kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – prjónamerkið er notað til að mæla frá. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun þá heldur þú áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-4-6-2-3-4 cm frá prjónamerki, aukið út um 39-39-43-39-39-41 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 222-230-238-242-250-264 lykkjur. Útaukningu fyrir áferðamynstri er nú lokið í stærð S, M og L. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 4-6-8 cm frá prjónamerki, aukið út um 36-36-38 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 278-286-302 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 222-230-238-278-286-302 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 4-5-7-5-7-9 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 26-27-28-33-34-36 sinnum, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan (ekki er aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 40-48-56-40-48-56 lykkjur jafnt yfir = 262-278-294-318-334-358 lykkjur. Ör-2: Aukið út 48-44-52-42-54-58 lykkjur jafnt yfir = 310-322-346-360-388-416 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 10-11-13-11-13-15 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A alls 24-25-27-24-26-28 sinnum, A.2B, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar komið er að umferð merktri með ör-3 í mynsturteikningu, eru 410-426-458-510-550-590 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og aukið jafnframt út 1-7-11-3-10-3 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör-3 = 411-433-469-513-560-593 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykki ca 21-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 59-64-69-74-82-90 lykkjur og aukið jafnframt út 6-7-7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 72-78-83-89-97-106 lykkjur á framstykki), setjið næstu 80-80-89-100-109-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 119-131-139-151-164-181 lykkjur og aukið jafnframt út 11-11-13-13-16-17 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 130-142-152-164-180-198 lykkjur á bakstykki), setjið næstu 80-80-89-100-109-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 59-64-69-74-82-90 lykkjur og aukið jafnframt út 6-7-7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 72-78-83-89-97-106 lykkjur á framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 290-314-338-362-398-434 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 alls 23-25-27-29-32-35 sinnum, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, eru 267-289-311-333-366-399 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð 70-75-81-86-95-103 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 127-139-149-161-176-193 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Það á að nota þá þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-17-17-17-17-17 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptist stykkið við báða merkiþræðina og framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið 70-75-81-86-95-103 lykkjur frá vinstra framstykki á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-26-26-31-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 93-101-107-117-127-139 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið 70-75-81-86-95-103 lykkjur frá hægra framstykki á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-26-26-31-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 93-101-107-117-127-139 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á vinstra framstykki. BAKSTYKKI: Setjið síðustu 127-139-149-161-176-193 lykkjur á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-48-52-58-65-70 lykkjur jafnt yfir = 173-187-201-219-241-263 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykkjum. ERMI: Byrjið mitt undir annarri erminni, notið stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4-4-5-5-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið 80-80-89-100-109-109 lykkjur af þræði á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir þessar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 8-8-9-10-11-11 lykkjur jafnt yfir, prjónið að lokum upp 1 lykkju í hverja af síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjum mitt undir ermi = 96-96-108-120-132-132 lykkjur. Ermin er núna prjónuð í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi) – látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.3 jafnframt því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan. Prjónið A.3 alls 8-8-9-10-11-11 sinnum í kringum ermi. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, hefur fækkað um 1 lykkju í hverri mynstureiningu (8-8-9-10-11-11 lykkjur færri). Prjónið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-0-3-7-10-10 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-8-8-8-8 sinnum = 72-76-77-80-85-85 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-29-30-31-31 lykkjur jafnt yfir = 98-102-106-110-116-116 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op við miðju að framan á köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Ing-Marie Andersson wrote:
Crystal bright
04.08.2023 - 11:56Gittan Nyström wrote:
Den ser elegant ut. Bra passform. Mjuk och mysig.
04.08.2023 - 08:35Gittan Nyström wrote:
Elegant
04.08.2023 - 08:33Patricia wrote:
Crystal
03.08.2023 - 14:41