Bonnie Blue |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður með hringlaga berustykki, stuttum ermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur (þetta er 1 stuðull), þessi stuðull kemur sem viðbót við lykkjurnar sem heklaðar eru í mynsturteikningu A.1. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. A.x sýnir hvernig mynstrið endurtekið á hæðina. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið er út í umferð þar sem 1 stuðull er heklaður í hvern stuðul. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í 4. og 5. hverja lykkju. ÚRTAKA (á við um ermar): Lykkjum er fækkað í umferð þar sem heklaður er 1 stuðull í hvern stuðul. Fækkað er um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið heklað til loka, skiptast lykkjurnar fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað niður á við í hring, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf, framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru heklaðar niður á við í hring. Í lokin er hekluð 1 umferð með fastalykkjum í hálsmáli. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 100-106-109-115-118-130 loftlykkjur með heklunál 3,5 og DROPS Belle – lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og heklið 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem aukið er út um 22-22-22-25-25-25 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 121-127-130-139-142-154 stuðlar. BERUSTYKKI. Byrjið umferð með 3 loftlykkjum (= 1 stuðull), endurtakið síðan A.1 hringinn í umferð. Í umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! ÖR 1: Aukið út 24-27-27-30-36-39 stuðlar jafnt yfir = 145-154-157-169-178-193 lykkjur. ÖR 2: Aukið út 24-27-30-36-36-42 stuðlar jafnt yfir = 169-181-187-205-214-235 lykkjur. ÖR 3: Aukið út 27-27-30-39-42-45 stuðlar jafnt yfir = 196-208-217-244-256-280 lykkjur. ÖR 4: Aukið út 27-30-33-39-42-45 stuðlar jafnt yfir = 223-238-250-283-298-325 lykkjur. ÖR 5: Aukið út 27-30-33-39-42-45 stuðlar jafnt yfir = 250-268-283-322-340-370 lykkjur. ÖR 6: Aukið út 27-33-36-39-45-45 stuðlar jafnt yfir = 277-301-319-361-385-415 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.x þar til stykkið mælist 20-20-23-23-25-27 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem heklaður er 1 stuðull í hvern stuðul. Héðan er nú stykkið mælt! SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 43-48-49-55-60-64 stuðla (ca hálft bakstykki), heklið 9-9-12-12-15-18 loftlykkjur (í hlið undir ermi) og hoppið yfir næstu 52-55-61-70-73-79 stuðla (ermi), heklið 86-95-98-110-119-128 stuðla (framstykki), heklið 9-9-12-12-15-18 loftlykkjur (í hlið undir ermi) og hoppið yfir næstu 52-55-61-70-73-79 stuðla (ermi) og heklið 43-47-49-55-59-64 stuðla (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-208-220-244-268-292 lykkjur. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) og mynstur A.x eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 6-6-7-7-7-9 cm frá skiptingu, aukið út 6-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 196-214-226-250-274-298 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 13-13-14-14-14-16 cm frá skiptingu, aukið út 9-6-9-6-6-6 stuðla jafnt yfir = 205-220-235-256-280-304 lykkjur. Heklið síðan eftir mynstri þar til stykkið mælist 24-26-25-26-26-26 cm frá skiptingunni. Klippið þráðinn. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Leggið stykkið flatt, setjið eitt merki í hvora hlið þannig að það eru 102-110-117-128-140-152 lykkjur á framstykki og 103-110-118-128-140-152 lykkjur á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið heklað fram og til baka hvort fyrir sig með stuðlum. FRAMSTYKKI: = 102-110-117-128-140-152 lykkjur. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til klaufin mælist ca 4 cm. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. BAKSTYKK: = 103-110-118-128-140-152 lykkjur. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til klaufin mælist ca 4 cm. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Byrjið umferð ca mitt í 9-9-12-12-15-18 loftlykkjum sem voru heklaðar í hlið á fram- og bakstykki. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) og heklið mynstur A.x hringinn eins og áður = 61-64-73-82-88-97 lykkjur. Þegar ermin mælist ca 3-3-4-4-5-5 cm, fækkið um 3-3-3-3-3-3 stuðla jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 58-61-70-79-85-94 stuðlar. STÆRÐ XL: Þegar stykkið mælist ca 8 cm er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 76 stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: Heklið mynstur eins og áður, en stillið af að það séu minnst 2 umferðir án gatamynsturs neðst á ermi. Heklið þar til ermin mælist ca 17-17-15-16-14-12 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að aftan, festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 1 fastalykkju á milli hverra stuðla frá fyrstu umferð, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (30)
Mònica Berta wrote:
Zu meiner Frage vom 16.2.24, über Zunahmen, möchte ich darauf hinweisen, dass in den Anleitungen in spanischer Sprache tatsächlich uns ausdrücklich steht, dass die Zunahmen ABWECHSELND in jede 4. und 5. Mache gemacht werden müssen.
20.02.2024 - 09:19Mònica Berta wrote:
Unter den Zunahmen in diesem Modell, steht im Beispiel, dass die Zunahmen nach der Berechnung in jeder 4. und 5. Masche vorgenommen werden sollen: sollte es nicht heissen in jeder 4. Oder 5. Masche?
16.02.2024 - 15:45DROPS Design answered:
Liebe Frau Berta, man muss abwechslungsweise in jede 4. und in jede 5. Stäbchen zunehmnen, dh: *1 Stäbchen in je die nächsten 3 Stäbchen, 2 Stäbchen in die nächste M, 1 Stäbchen in je die nächsten 4 Stäbchen, 2 Stäbchen in die nächste M*, und von *bis* wiederholen. Viel Spaß beim häkeln!
19.02.2024 - 15:41Mònica Berta wrote:
Kann dieses Modell in der Passe auch in Hin- und Rückreihen gehäkelt werden?
16.02.2024 - 15:42DROPS Design answered:
Liebe Berta, ja sicher, dann sollen Sie jede Reihe mit einer Kettmasche schliessen, und abwechslungsweise in Hin- und Rück-Reihen häkeln. Viel Spaß beim häkeln!
19.02.2024 - 07:30Vajkai Kati wrote:
Please, explain me how to crochet ' treble crochet in stitch below '.
16.02.2024 - 11:50DROPS Design answered:
Dear Mrs Kati, just work 1 treble crochet in the stitch from previous round as shown in diagram. Happy crocheting!
16.02.2024 - 15:35Aurore wrote:
Lavande
20.01.2024 - 14:53Alexandra wrote:
Sparrow traces
19.01.2024 - 17:34Laura wrote:
Waves
19.01.2024 - 09:07Karin wrote:
Hæklet bluse ikke så tosset
19.01.2024 - 05:47Sea Blues Pullover wrote:
Le bleu me fait penser à la mer ...les rangs de brides font penser aux vagues
18.01.2024 - 18:01Maria Teresa Lopez wrote:
Sugerencia de nombre para el modelo: Aire fresco
18.01.2024 - 13:16