Moon Lace Sweater |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og víðum, ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um mitt undir ermi): Í byrjun hverrar umferðar eru heklaðar 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Þegar fram- og bakstykki og ermar er heklað í hring, snúið stykkinu eftir hverja umferð, þannig að heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru heklaðar neðan frá og upp og heklað er í hring upp að ermakúpu, síðan er ermin hekluð til loka fram og til baka. Stykkin eru hekluð saman. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 180-204-204-228-252-276 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Belle og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju (jafngildir 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 180-204-204-228-252-276 fastalykkjur. Síðan er heklað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1, heklið A.2 alls 29-33-33-37-41-45 sinnum, heklið A.3 og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Það eru nú 180-204-204-228-252-276 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. 30-34-34-38-42-46 stuðlahópar með 3 loftlykkjum á milli hverra stuðlahópa – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur hringinn til skiptis með eina umferð frá réttu og eina umferð frá röngu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-28 cm – stillið af að síðasta umferðin sem var hekluð sé frá röngu, skiptist fram- og bakstykki fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er síðan heklað eins og útskýrt er að neðan. Klippið og festið þráðinn. BAKSTYKKI: Hoppið yfir fyrstu 7-7-7-7-13-13 lykkjur í umferð, heklið 1 keðjulykkju um loftlykkju í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. í 2-2-2-2-3-3 stuðlahóp í umferð) og heklið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4 í sama stuðlahóp, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu. Nú er hekluð öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.6 í fyrsta stuðul í næsta stuðlahóp, snúið stykkinu = 19-25-25-31-31-37 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.6, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 2 og 3 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Hoppið yfir afgang af stuðlahóp A.6 sem heklað var í, hoppið yfir 5 mynstureiningar með A.2, hoppið yfir 1 mynstureiningu með A.3 og hoppið yfir fyrsta stuðul og loftlykkju í næsta stuðlahóp (37 lykkjur sem hoppað var yfir = hálsmál aftan í hnakka), heklið 1 keðjulykkju í síðasta stuðul í stuðlahópnum og heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.6, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu eftir bakstykki, hoppið yfir fyrstu 15-15-15-15-27-27 lykkjur í umferð, heklið 1 keðjulykkju í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. í 3-3-3-3-5-5 stuðlahóp eftir bakstykki) og heklið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4 í sama stuðlahóp, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 35-37-37-39-39-41 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu. Nú er hekluð öxl til að forma hálsmál eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.7, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.7, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 einu sinni til viðbótar (= 4 heklaðar umferðir), A.7 hefur nú verið heklað til loka á hæðina. Heklið nú þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.6, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 5 og 6 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Hoppið yfir afgang af stuðlahópum A.6 sem var hekla í á vinstri öxl að framan (= 2 lykkjur), hoppið yfir 5 mynstureiningar með A.2, hoppið yfir 1 mynstureiningu með A.3 og hoppið yfir fyrsta stuðul og loftlykkju í næsta stuðlahóp (37 lykkjur sem hoppað var yfir = hálsmál mitt að framan), heklið 1 keðjulykkju í síðasta stuðul í stuðlahópi og heklið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.8, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.8, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 einu sinni til viðbótar (= 4 heklaðar umferðir), A.8 hefur nú verið heklað til loka á hæðina. Heklið nú þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.6 (byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu), heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu. Heklið umferð 5 og 6 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. ERMAR: Heklið 70-76-82-82-88-94 loftlykkjur með heklunál 3,5 og tengið loftlykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkjur (jafngildir 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 70-76-82-82-88-94 fastalykkjur. Síðan er mynstrið heklað, lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, heklið A.3 og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu. Heklið hringinn á sama hátt til skiptis með eina umferð frá réttu og eina umferð frá röngu þar til ermin mælist 51-49-50-48-46-44 cm – stillið af að síðasta umferðin sé hekluð frá réttu og í síðustu umferðinni er heklaður 1 stuðull í lykkjuna á undan 3 loftlykkjum í byrjun umferðar, þannig að það verða 2 stuðlar (1 stuðull + 3 loftlykkjur) mitt undir ermi, snúið stykkinu. Heklið síðan fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, heklið 1 stuðul í síðustu lykkju = 71-77-77-83-89-95 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.6, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, heklið A.3, endið með A.6, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, endið með A.6, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 2 og 3 svona fram og til baka þar til ermin mælist 55-53-54-52-53-51 cm. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Heklið saman axlasaumana þannig: 1 fastalykkja í ystu lykkju í gegnum bæði lögin, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkju í stuðlahóp á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkju í stuðlahóp á bakstykki, haldið svona áfram, með að hekla til skiptis framstykki/bakstykki þar til heklað hefur verið meðfram allri öxlinni. Heklið á sama hátt meðfram hinni öxlinni. Heklið ermakúpuna við handveg á sama hátt (heklið a við A – sjá teikningu). Síðan er botninn saumaður við handveg (b við B) KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og heklið kant í kringum hálsmál þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju í axlasauminn, * heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um fyrsta/næsta loftlykkjuboga/umferð *, heklið frá *-* allt hálsmálið hringinn, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í keðjulykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), síðan eru heklaðir 3 stuðlar um hvern loftlykkjuboga, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Lebrun wrote:
Bonjour, Désolé je me suis aperçu que je n avait pas respectée les mesures après la séparations dos devant d ou un écart de 7 cm sur l 3mmenchure. Désolée.
29.04.2024 - 09:25Lebrun wrote:
Bonjour, Pour la taille XXL j ai tricote comme indiqué 28 cm avant la séparation devant dos. Mais après je me retrouve avec des emmanchures de 32 cm. Je ne peux coudre les manches. Ne faut il pas plutôt faire 38 cm avant la séparation ? De plus sur le dessin il est indiqué 50 mais cela aussi me semble faux ?
29.04.2024 - 07:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lebrun, les 50 cm sont mesurés à partir du rang de montage du bas du pull soit 28 cm avant le début des emmanchures + 22 cm après les emmanchures = 50 cm de hauteur totale. Bon crochet!
29.04.2024 - 10:12Eygje Edel-Dekker wrote:
Kloppen de lengte van de mouwen, ik begrijp niet zo goed waarom voor maat s de langste mouwlengte is, kunt u mij dat uitleggen? Alvast bedankt!
17.03.2024 - 21:28DROPS Design answered:
Dag Eygje,
Omdat de schouders voor maat S kleiner zijn, zijn de mouwen langer.
20.03.2024 - 12:28Hanneke wrote:
Een mooi luchtig zomer truitje
04.03.2024 - 17:40Birthe Hjälmås wrote:
I mönstret står att man ska vända arbetet trots att det går lika bra att fortsätt framåt då arbetet är runt. Jag undrar om det är nödvändigt?
29.02.2024 - 07:53DROPS Design answered:
Hej Birthe, det er for at det skal blive ens når du kommer op til der hvor du skal dele arbejdet - men må selvfølgelig gerne hækle rundt, hvis du vil det :)
05.03.2024 - 11:42Yvon Kremers wrote:
De tekensverklaring van het telpatroon kloppen niet.
21.02.2024 - 08:15Rybka wrote:
Lace Symphony
21.01.2024 - 14:30Haré wrote:
Proposition d'un Nom du modèle : Belle des champs
20.01.2024 - 09:27Karen wrote:
Summer Breeze
20.01.2024 - 04:35Kelly wrote:
Felix
18.01.2024 - 21:53