Daisy Fields |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja, þessar lykkjur eru kallaðar laskalykkjur í mynstri). AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU: Á undan merkiþræði: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt (1 lykkja fleiri). Á eftir merkiþræði: Prjónið 1 lykkju fram hjá merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt (1 lykkja fleiri). AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR. Á undan merkiþræði: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt (2 lykkjur fleiri). Á eftir merkiþræði: Prjónið 1 lykkju fram hjá merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt (2 lykkjur fleiri). ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-128-136-144-152-160 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4 cm. Setjið eitt merki í síðustu umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Setjið 4 merkiþræði í stykkið (án þess að prjóna) þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= hægri öxl að aftan), teljið 20-20-28-28-28-32 (= ermi) og setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 40-44-40-44-48-48 lykkjur (= framstykki) og setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20-20-28-28-28-32 (= ermi) og setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, síðustu 40-44-40-44-48-48 lykkjur (= bakstykki). Merkiþræðirnir sitja á milli 2 lykkja slétt, þessar lykkjur eru kallaðar laskalykkjur í mynstri og eru prjónaðar í sléttprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og lesið ÚTAUKNING-1 í útskýringu að ofan. Prjónið 1 laskalykkju, prjónið sléttprjón og aukið út 5-5-3-3-3-5 lykkjur jafnt yfir næstu 18-18-26-26-28-30 lykkjur, prjónið 2 laskalykkjur, prjónið sléttprjón og aukið út 8-6-8-6-4-4 lykkjur jafnt yfir næstu 38-42-38-42-46-46 lykkjur, prjónið 2 laskalykkjur, prjónið sléttprjón og aukið út 5-5-3-3-3-5 lykkjur jafnt yfir næstu 18-18-26-26-26-30 lykkjur, prjónið 2 laskalykkjur, prjónið sléttprjón og aukið út jafnt yfir 8-6-8-6-4-4 lykkjur yfir næstu 38-42-38-42-46-46 lykkjur og prjónið 1 laskalykkju. Nú eru 146-150-158-162-166-178 lykkjur í umferð (48-50-48-50-52-52 lykkjur á milli merkiþráð á framstykki/bakstykki og 25-25-31-31-31-37 lykkjur á milli merkiþráða á ermum). Prjónið 1 umferð sléttprjón. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Nú á að prjóna sléttprjón á framstykki/bakstykki og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, á ermum jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Útaukningin er mismunandi á ermum og á framstykki/bakstykki. STÆRÐ S og M: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 laskalykkju, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á eftir merkiþræði – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði (= framstykki), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU á undan merkiþræði og prjónið 1 laskalykkju (= bakstykki) = 154-158 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur í annarri hverri umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar aukið hefur verið út 22-25 sinnum fyrir laskalínu er útaukningu lokið á ermum. ATH! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram með mynstur eins og áður, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt gatamynstur í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með útaukningu á framstykki/bakstykki og í annarri hverri umferð alls 2-1 sinnum til viðbótar, þar til aukið hefur verið út alls 22-25 sinnum á ermum og 24-26 sinnum á framstykki/bakstykki = 330-354 lykkjur. Það eru 96-102 lykkjur á framstykki/bakstykki og 69-75 lykkjur á hvorri ermi. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 laskalykkju, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á eftir merkiþræði – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði (= framstykki), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU á undan merkiþræði og prjónið 1 laskalykkju (= bakstykki) = 166-170-174-186 lykkjur. Prjónið 1 umferð án útaukninga. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er prjónað áfram jafnframt því sem aukið er út mismunandi á framstykki/bakstykki og ermum, lesið ÚTAUKNING ERMAR og ÚTAUKNING FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI áður en prjónað er áfram! ÚTAUKNING ERMAR: Haldið áfram að auka út 1 lykkju fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-28-27-22 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan), síðan er aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 6-2-4-7 sinnum. Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 24-30-31-29 sinnum á ermum. ATH! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur mynstur áfram, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur fyrir lasaklínu á framstykki/bakstykki – lesið AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR í útskýringu að ofan. Síðan er aukið út 1 LYKKJA fyrir laskalínu í annarri hverri umferð eins og áður, en í hverri 10-12-6-6 umferð sem er prjónuð (þ.e.a.s. í 5-6-3-3 hvert skiptis sem aukið er út), aukið út 2 LYKKJUR í stað 1 LYKKJA. Prjónið svona þar til aukið hefur verið út alls 29-30-34-36 sinnum (6-5-11-12 af þessum skiptum er aukið út um 2 lykkjur í stað 1 lykkju) = 394-422-470-486 lykkjur. Nú eru 118-120-142-148 lykkjur á framstykki/bakstykki og 79-91-93-95 lykkjur á hvorri ermi = 394-422-470-486 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: = 330-354-394-422-470-486 lykkjur. Prjónið síðan án þess að auka út þar til berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið 1 lykkju sléttprjón (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 67-73-77-89-91-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 98-104-120-122-144-150 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 67-73-77-89-91-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 97-103-119-121-143-149 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Síðan er fram- og bakstykki og ermar prjónað hvert fyrir sig, stykkið er nú mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-224-256-264-308-324 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, þeir eru notaðir þegar auka á út lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 5 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverjum 4½-5-4½-5-5-4½ cm alls 4 sinnum í öllum stærðum = 228-240-272-280-324-340 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-27-26-27-27-26 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan með hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 36-40-44-44-52-56 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 264-280-316-324-376-396 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 67-73-77-89-91-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-85-99-101-105 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið hringinn í mynstri eins og áður, passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt yfir mynstur sem prjónað var á berustykki, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni – síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi er mynstrið stillt af í samræmi við það. Þegar ermin mælist ca 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 3-5-5-7-7-8 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í ca hverjum11-10-7-3-3-2½ cm alls 4-4-5-9-9-9 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-42-41-40-38-38 cm – stillið af þannig að prjónuð sé 1 umferð án mynsturs. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 3-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-72-76-76 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-46-45-44-42-42 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Ann Rivard wrote:
Très féminin
19.01.2024 - 14:49Jan wrote:
Simple and elegant
19.01.2024 - 04:26Veronica Canelo wrote:
Rosa blanca
19.01.2024 - 03:21Daniela wrote:
Cotton light
18.01.2024 - 23:09Sarah wrote:
Sommerbris
18.01.2024 - 22:11Sheila wrote:
Camomilla
18.01.2024 - 20:31Elena wrote:
Schneeflocke
18.01.2024 - 19:40Edina wrote:
Pearl
18.01.2024 - 19:26Carla wrote:
Camille
18.01.2024 - 18:47Kristina Krisciuniene wrote:
👍
18.01.2024 - 16:46