DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 399.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6384.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 14-9
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M (M/L)
Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
Litasamsetning-1
550 (600) gr nr 002, blár
100 (100) gr nr 018, hvítur
50 (50) gr nr 001, ljósblár
50 (50) gr nr 004, fjólublár

Litasamsetning-2
550 (600) gr nr 010, ferskjubleikur
100 (100) gr nr 018, hvítur
50 (50) gr nr 011, laxableikur
50 (50) gr nr 009, beige

Eða notið:
DROPS Lima frá Garnstudio
600 (650) gr nr 6235, gráblár
100 (100) gr nr 1101, hvítur
50 (50) gr nr 8112, ísblár
50 (50) gr nr 4088, bleikvínrauður

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5 og 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l x 25 umf með sléttprjóni á prjóna nr 4,5 verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 4,5
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 399.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6384.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Allt mynstrið er prjónað með sléttprjóni.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

BÚKUR:
Fitjið upp 170 (178) l með bláum/grábláum á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 5 cm stroff 1 l sl, 1 l br. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 28 (32) l jafnt yfir í 1. umf = 198 (210) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið áfram út um 2 l á hvorri hlið 15 (12) sinnum þannig: S/M: til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, M/L: Til skiptis í 5. og 6. hverri umf = 258 (258) l. Þegar stykkið mælist 22 (26) cm eru felldar af miðjulykkjurnar á fram- og bakstykki fyrir v-hálsmáli. Nú er hægra og vinstra stykki prjónað til loka hvort fyrir sig – fækkið áfram lykkjum við hálsmáli um 1 lykkju í hvorum enda í 3. hverri umferð og eftir það 1 umf án úrtöku. Endurtakið þar til felldar hafa verið alls 124- (124) l – 62 (62) lykkjur hvoru megin við háls. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28 (32) cm skiptist stykkið upp á hvorri hlið fyrir handveg og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Eftir síðustu úrtöku eru eftir 2 l, fellið af, stykkið mælist ca 56 860) cm.

ERMI:
Fitjið upp 40 (42) l með bláum/grábláum á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið 4 cm stroff 1 l sl, 1 l br. Skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 15 (13) l jafnt yfir í 1. umf = 55 (55) l. Áfram er aukið út mitt undir ermi þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju til skiptis í 3. og 4. hverri umferð alls 26 sinnum = 107 (107) l. Þegar stykkið mælist 41 cm skiptist stykkið við miðju að neðan og prjónað er áfram fram og til baka. Fellið af 10 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Þegar stykkið mælist 44 cm eru allar lykkjur felldar af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.
Takið upp 88 l hvoru megin við V-hálsmál með hvítum á hringprjóna nr 4,5 = 352 l. Prjónið mynstur – 11 mynstureiningar hvoru megin við V-hálsmál JAFNFRAMT er l fækkað að aftan og að framan fyrir miðju: Prjónið 2 l innan miðju-l snúna slétt saman og prjónið 2 l á eftir miðju-l saman slétt. Endurtakið úrtöku uppúr en í 4. hverri umf er ekki nein úrtaka. Eftir síðustu mynsturumferð er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5 og ljósblátt/laxableikt. Prjónið 3 cm stroff (haldið áfram með úrtöku), fellið af. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.04.2018
Leiðrétting. Mynsturteikning hefur verið uppfærð og mál, jafnframt er búið að umorða hluta af uppskrift til að gera hana auðveldari og nákvæmari

Mynstur

symbols = fjólublár / beige (Muskat)/ bleikvínrauður (Lima)
symbols = ljósblár / laxableikur (Muskat) / ísblár (Lima)
symbols = hvítur / hvítur (Muskat) / hvítur (Lima)
symbols = blár / apríkósa (Muskat)/ gráblár (Lima)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Bluescape

Elise, Norway

Bluescape

Jadeitea, Poland

Bluescape

Valery, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 14-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Eb wrote:

Suite et fin question précédente: une de mes erreurs est peut-être d'avoir compris qu'il fallait réaliser l'encolure jacquard en 4 fois (côté devant droit, tout le diagramme, puis côté devant gauche, tout le diagramme, puis le dos, etc...) ??? Sans faire cela, je doute pouvoir réaliser un vrai "V".

12.12.2020 - 23:30

DROPS Design answered:

Bonjour Eb, à 22-26 cm vous divisez l'ouvrage en 2 et terminez chaque côté séparément: mettons d'abord le côté droit (à partir du milieu devant jusqu'au milieu dos et/ou vice versa), puis à 28-32 cm vous divisez de nouveau en 2 cette fois pour terminer le devant et le dos séparément. Attention! le jacquard ne se tricote qu'après l'assemblage, pas quand on fait ces 2 côtés divisés encore en 2. Bon tricot!

14.12.2020 - 08:45

country flag Eb wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment diminuer l'encolure, le jacquard: comment suivre le diagramme des 8 mailles s'il faut diminuer (3 tours sur 4) ??? Merci de votre aide; je tricote depuis longtemps mais n'ai pas réalisé beaucoup de jacquard. Cordialement.

12.12.2020 - 23:18

DROPS Design answered:

Bonjour Eb, les diminutions de l'encolure se font ainsi: diminuez 1 maille en début de rang + 1 maille en fin de rang pendant 3 rangs, tricotez 1 rang sans diminuer et répétez ces 4 rangs jusqu'à ce que vous ayez diminué 124 m au total (= 62 de chaque côté). En même temps, à 28-32 cm; divisez l'ouvrage en 2 parties et terminez chaque partie séparément. Le jacquard ne se tricote pas à ce niveau, mais après, quand on fait le grand V après les pointillés du schéma (et il se fera en tricotant le motif autant que possible de chaque côté des diminutions du V). Bon tricot!

14.12.2020 - 08:42

country flag Jannie wrote:

Hoe vergroot ik het patroon van L naarXL of XXL

23.02.2020 - 17:48

DROPS Design answered:

Dag Jannie,

Helaas zijn de wat oudere patronen er inderdaad niet in alle maten en in dit geval heb je te maken met een telpatroon waar je rekening mee moet houden. Wat je zou kunnen doen is een dikker garen nemen, bijvoorbeeld Paris. Daar maak je een proeflapje van en dan kijk je hoe je uitkomt met de maten die je wilt hebben.

24.02.2020 - 07:59

country flag Inger-Johanne Karlsen wrote:

Ja, så har det gått over èn måned uten at jeg har fått svar ? Skuffende ?

30.11.2019 - 02:49

DROPS Design answered:

Hej Inger-Johanne, Vi havde ikke set din kommentar før nu. Tak for information, så skal vi se hvad det er for noget. :)

03.12.2019 - 15:46

country flag Eefje wrote:

Beste lezer, Ik ben bezig met de minderingen van het lijf en moet op een gegeven moment het aantal steken op de naald splitsen voor de armsgaten zodat ik 4 losse delen krijg. Is het vervolgens de bedoeling dat ik de minderingen op alle 4 de delen toepas? Of net zoals daarvoor, alleen middenvoor en middenachter? Ik hoor het graag!

28.11.2019 - 21:55

DROPS Design answered:

Dag Eefje,

Nee, het minderen doe je alleen op de voor en achterpanden.

16.12.2019 - 12:40

country flag Inger-Johanne Karlsen wrote:

Jeg har mange gamle kataloger fra Drops, som jeg ofte blar i. Jeg ble derfor forbauset da jeg gjenkjente bildet fra denne oppskriften på en genser på nettbutikken "FLORYDAY". Det er det eksakt samme bilde, bare ansiktet på modellen er beskåret. Drops er ikke kreditert for design, og andre regler er ikke fulgt. Juks?

28.10.2019 - 05:06

country flag Trude Friis Frosta wrote:

Er denne oppskriften korrekt ?. Jeg får ikke lengden til å stemme. Når jeg har 2 masker igjen for felling skal arbeidet være 60 cm, jeg får 70 cm. da blir ermeåpningen for stor til ermet. Samtidig står det ikke spesifisert at det skal felles for ermehull på bolen ,

19.06.2019 - 06:52

DROPS Design answered:

Hei Trude. Ja, oppskriften stemmer. Når arebidet måler 26 cm felles den midterste masken foran og bak, du har da 256 masker igjen, altså 128 masker på hver side/del. Videre felles 1 maske i hver side av hver pinne 3 ganger, og så strikkes 1 pinne uten felling. dvs på 4 pinner har du felt 6 masker. Når du har felt 124 masker har du altså strikket ca 84 pinner. Med den angitte strikkefastheten blir dette 34 cm. Du strikker altså 26 cm før fellingene, og så 34 cm med felling = 60 cm totalt. Du deler arbeidet til ermhull når det måler 32 cm, som forklart i nest siste setning av bolen. God fornøyelse

19.06.2019 - 15:10

country flag Brigitte Gundlach wrote:

Ich bin dabei, dieses modell zu stricken. leider sind die angaben zum abnehmen an der halsseite nicht korrekt. das teil ist schon 56cm lang, wenn noch 20 maschen aufder nadel sind, das heißt, das teil wird viel zu lang. auch mit den anderen längenangaben hatte ich schon probleme und mußte improvisieren. ich weiß nicht, ob ich so weiterstricke, denn das modell paßt dann garantiert nicht. habe vorher eine maschenprope gemacht und infolge dessen mitnadelnr. 4 gearbeitet.

26.03.2019 - 14:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gundlach, die Anleitung wurde neu geschrieben, es sollte jetzt besser verständlich sein. Viel Spaß beim stricken!

27.03.2019 - 13:51

country flag BESSIN J wrote:

Il y a bien une erreur pour l\\\'encolure car c\\\'est 2 X62 m et donc 2m par rang de diminutions et non 1m, 3 rangs sur 4 rangs, le 4 ème sans diminution

18.09.2018 - 23:39

country flag élisabeth wrote:

Ça ne fonctionne pas mon encolure est bien trop longue ! Mon pull mesure 92 cm au lieu des 56 recommandé. Il doit y avoir une erreur quelque part.

22.03.2018 - 14:37

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth, il est probable qu'il y ait une erreur dans le nombre de fois à répéter. Nos stylistes vont vérifier les indications. Si l'on compte qu'il doit rester 2 m pour chaque épaule, et vous diminuez 3 m sur 4 rangs, en répétant ces diminutions 20 fois au total (= 60 dim) et en diminuant ensuite aux 2 rangs suivants (62 dim au total), il vous restera bien 2 m et les mesures seront justes. (vous tricotez d'abord sur les 128 m de chaque côté (soit 64 m pour le demi-dos et le demi-devant) puis continuer le devant et le dos séparément - et répétez de l'autre côté ensuite). Bon tricot!

06.04.2018 - 09:17