DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Super Sale

Love Notes

Prjónuð tunika í perluprjóni úr DROPS Cotton Viscose og DROPS Alpaca eða tveimur þráðum DROPS Alpaca. Stærð S-XXL

DROPS 100-8
DROPS Design
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS Cotton Viscose frá Garnstudio
350-400-400-450-500 gr nr 01, hvítur
Og einnig:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
200-250-250-300-300 gr nr 1101, hvítur

Eða notið:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
400-500-500-600-600 g nr 1101, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri gerð verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2.

ÚTAUKNING (á við um einingu í perluprjóni):
Lykkjur eru auknar út í einingu í perluprjóni með því að lykkjur sem áður voru prjónaðar í sléttprjóni eru prjónaðar inn í perluprjón. Fjöldi lykkja í stykki verður sá sami og áður.

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu verður að gera öll lengdarmál þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður flíkin of síð við mátun.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Lesið MÆLING – að ofan!
Fitjið upp 63-69-75-83-93 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Cotton Viscose eða 2 þráðum Alpaca.
Prjónið 4 umferðir slétt. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 65-71-77-85-95 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið í 5. hverjum cm alls 3 sinnum = 59-65-71-79-89 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 og 39-40-41-42-43 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið = 63-69-75-83-93 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 3 lykkjur 0-0-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-2-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-6 sinnum = 55-57-59-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70 cm prjónið perluprjón yfir miðju 43-43-43-45-47 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 23-23-23-25-27 lykkjur af fyrir hálsmáli = 16-17-18-18-18 lykkjur eftir á hvorri öxl. Haldið áfram í sléttprjón með 10 lykkjur perluprjóni við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 27-28-29-30-31 cm. Haldið áfram með affelling í hliðum jafnframt því sem miðju lykkjan er prjónuð í perluprjóni (aðrar lykkjur eru prjónaðar áfram í sléttprjóni). Nú er fjöldi lykkja aukinn í einingu í perluprjóni í hverri umferð þannig – lesið útaukning að ofan: Aukið svona út með 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkju þar til perluprjón er yfir miðju 21 lykkjum. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37 cm fellið af miðjulykkjur. Setjið 29-32-35-39-44 lykkjur í annarri hlið á þráð og prjónið hvort stykki til loka fyrir sig.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
HLIÐ-1: Prjónið sléttprjón með 10 lykkjum perluprjón við miðju að framan. JAFNFRAMT er aukið út í hlið á sama hátt og á bakstykki = 31-34-37-41-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51 cm fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-52-54 cm er aukin út fjöldi lykkja eins og í perluprjóni í hlið á einingu með perluprjóni í annarri hverri umferð þannig: 5 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 6-6-6-6-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-58-60 cm fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: 8 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 3-3-3-4-5 sinnum = 16-17-18-18-18 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með 10 lykkjur perluprjón við hálsmál til loka. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm.
HLIÐ-2: Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp eins og HLIÐ-1, nema gagnstætt.
ATH: 1. umferð er prjónuð frá miðju að framan, til að koma í veg fyrir að það myndist ”hak”, takið upp 1 lykkju (þá lykkju sem var felld af við miðju að framan). Prjónið þessa lykkju saman við 1. lykkju á prjóni.

ERMI:
Fitjið upp 40-42-42-44-46 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 6 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Cotton Viscose eða 2 þráðum Alpaca.
Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 12 cm. Haldið áfram í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 6-5-4-3-2½ cm millibili alls 5-6-7-8-10 sinnum = 50-54-56-60-66 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-41-40 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-2 sinnum. Haldið áfram að fella af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 49-49-50-50-50 cm, fellið af að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist 50-50-51-51-51 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt niður að klauf.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 4 þræði Cotton Viscose eða Alpaca ca 3 metra. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í. Leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda ca 5 cm frá enda á snúru. Dragið snúruna upp og niður í gegnum stykkið í kringum hálsmál.
Gerið 1 skúf í hvorn enda á snúru þannig: Klippið 20 þræði Cotton Viscose eða Alpaca ca 25 cm. Deilið skúfnum upp yfir hnút og þræðið í endana í gegn. Hnýtið saman endana og vefjið 1 af endunum utan um efsta hlutann á skúfnum til að halda honum saman. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 100-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Laura McMullen wrote:

HELP! I love this pattern but cannot determine what weight yarn to use from the listed yarns. It would appear to be a bulky yarn if it uses size 10 US needles and 2 yarns. I would like it as a summer top in cotton but don't know what weight yarn to use. And it might be too heavy using 2 strands. Thank you.

15.04.2019 - 01:50

DROPS Design answered:

Dear Laura, the pattern uses DROPS Alpaca, and DROPS Cotton Viscose (discontinued). Both yarns are sport / sock weight yarns, belonging to the yarn group A. You can substitute either yarn from other yarns from this yar group. Also you can use the yarn converter on out site. But please always knit a swatch, check your gauge, stitch counts and calculate changes accodingly. Happy Knitting!

15.04.2019 - 21:26

country flag Sabine wrote:

Hallo liebes Drops Team, vielen Dank für die schnelle Antwort. Ich verstehe nur leider immer noch nicht was genau bei jeder 2.ten Reihe für das Armloch abketten bedeutet. Ich habe nun die ersten abnahmen (3 Maschen am Anfang der Hinreihe und ebenso 3 Maschen am Anfang der Rückreihe) gemacht. Muss ich jetzt gleich wieder in der folgenden Hinreihe abnehmen oder stricke ich eine Hin und eine Rückreihe ohne abnahmen dazwischen und dann erst wieder die nächsten abnahmen?

12.04.2018 - 14:55

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, je nach der Größe sollen Sie jetzt am Anfang jeder Reihe (= Hin sowie Rückreihen): 2 M. 1-2-1-2-3 Mal und 1 M. 2-2-3-4-6 Mal abketten. Z. B in der 1. Größe werden jetzt 2 M am Anfang beider nächsten Reihen und dann 1 M am Anfang jeder 4 nächsten Reihen (= 2 M auf beiden Seiten) abgkettet. Viel Spaß beim stricken!

12.04.2018 - 15:29

country flag Sabine wrote:

Nach 47-48-49-50-51 cm, auf beiden Seiten, bei jeder 2. R. für das Armloch abk. Wie muss ich das - bei jeder 2. R. für das Armloch abk. - verstehen, ich kette ja jeweils am Anfang der Reihe ab, also am Anfang der Hinreihe und am Anfang der Rückreihe. Muss ich danach eine Hin- und Rückreihe ohne Abnahmen stricken oder gleich bei der nächsten Hinreihe wieder abketten?

12.04.2018 - 14:25

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, beim Rückenteil sollen Sie die Maschen für das Armloch am Anfang jeder Reihe abketten, dh bei der Hin- sowie der Rückreihe: 3 M am Anfang beide Reihen. Die abgeketteten Maschenanzahl muss die gleiche am Anfang jeder Reihe sein (= auf beiden Seiten). Viel Spaß beim stricken!

12.04.2018 - 14:32

country flag Vittoria wrote:

Grazie per la rapida risposta. Ora mi è più chiaro come procedere. Cordiali saluti Vittoria

11.04.2018 - 14:02

country flag Vittoria De Pascale wrote:

Buongiorno non riesco a capire bene le diminuzioni per lo scalfo. Sto facendo il dietro e si intende intrecciare 3 maglie al 1 giro, 0 maglie al 2 e 3 giro e, 1 maglia al 4 e 5 giro per una volta e poi proseguire con lo stesso principio con le altre indicazioni? GRazie e cordiali saluti Vittoria

11.04.2018 - 08:58

DROPS Design answered:

Buongiorno Vittoria. Diminuisce per lo scalfo in questo modo: p.es per la taglia L: intreccia, da ciascun lato del dietro, all’inizio del ferro: 3 m 1 volta, 2 maglie 1 volta e 1 maglia 3 volte. Quindi ferro 1 (diritto del lavoro) intreccia le prime 3 m; f 2 (rovescio del lavoro) intreccia le prime 3 m; ferri 3 e 4 intreccia le prime 2 maglie e così via. Nelle taglie S e M, intreccia 2 m 1 volta nella taglia S (2 volte nella taglia M) e poi 1 m 2 volte. Buon lavoro!

11.04.2018 - 09:41

country flag Gaelle wrote:

Bonjour, j'ai un souci pour l'augmentation des mailles au point de riz. J'ai commencé sur un rang end, j'ai fait la maille du milieu à l'env, puis le rang suivant tout à l'env. Vous dites qu'il faut faire le 3ème rang de la sorte : 1m env, 1m end, 1 m env etc. mais en faisant cela ça ne fait pas un vrai point de riz. ne vaut il pas mieux augmenter à chaque rang ? en plus, je n'aurais pas les 21 mailles au point de riz avant de rabattre la maille centrale. Merci

07.01.2017 - 20:55

DROPS Design answered:

Bonjour Gaelle, vous tricotez ces mailles au point de riz mais augmentez 2 m point de riz tous les 2 rangs, soit au 1er rang, vous aurez 1 m env, au 2ème rang, 1 m end, au 3ème rang 1 m env, 1 m end, 1 m env, au 4ème rang, 1 m end, 1 m env, 1 m end, au 5ème rang, 1 m env, 1 m end, 1 m env, 1 m end, 1 m env et ainsi de suite jusqu'à ce que vous ayez 21 m point de riz. Bon tricot!

09.01.2017 - 09:17

country flag Tatiana wrote:

Je ne comprend pas comment augmenter le point de riz sur le devant J'ai tricoté la maille du milieu sur le devant à l'envers, le rang suivant j'ai tout fait à l'envers, le rang suivant je fais comment? Merci pour votre aide

03.11.2015 - 00:00

DROPS Design answered:

Bonjour Tatiana, vous allez tricoter tous les 2 rangs 1 m point de riz en plus de chaque côté de cette m env, donc au rang 1, on a 1 m env (sur l'endroit), au rang 3, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 1 m avant cette m, et tricotez 1 m env, 1 m end (la m centrale de la pointe), 1 m env. Continuez ainsi en tricotant 1 m point de riz en plus tous les rangs sur l'endroit jusqu'à ce que vous ayez 21 m point de riz (= 10 m point de riz, 1 m centrale (= la pointe), 10 m point de riz). Bon tricot!

03.11.2015 - 09:44

country flag Claudia wrote:

In ihrer Anleitung schreiben Sie, das man nach 48cm beidseitig Maschen für den Armausschnitt vornehmen soll und zwar bei der Größe M insgesamt 8M bei einer Maschenanzahl von 69M. Da ergibt sich für mich eine Maschenzahl von 61M und nicht wie angegeben 57M Weiterhin kann die Angabe von, Armausschnitt in 48 cm nicht stimmen, da in der Skizze diese mit 68cm (Größe M) angegeben wird und die Halsöffnung (mit 66cm?) die laut Skizze vor dem Armausschnitt erfolgen muss???????????

05.07.2015 - 20:44

DROPS Design answered:

Sie nehmen bei Größe M nicht 8 M ab, sondern insgesamt 12 M, d.h. beidseitig je 6 M: 2 M bedseitig je 2 x (= 8 M insgesamt) und 1 M beidseitig je 2 x (= 4 M insgesamt). Dann passt das mit 57 M. Die 68 cm sind die Gesamthöhe, nicht die Höhe für die Armausschnitte. Wenn Sie diese ermitteln möchten, müssen Sie 68 cm minus Armausschnitthöhe rechnen, also 20 cm, 68 cm - 20 cm = 48 cm, das stimmt dann also mit der Anleitung überein.

06.07.2015 - 11:05

country flag Titili wrote:

Bonjour. Il y a une petite erreur je pense dans les explications de la version française. L'échantillon doit être réalisé avec des aiguilles n°6 alors que l'on demande des n°5 pour l'ouvrage... Merci d'harmoniser les tailles s'il y a effectivement une erreur de frappe ^^

24.05.2014 - 19:40

DROPS Design answered:

Bonjour Titili, il s'agissait effectivement d'une faute de frappe (corrigée), la tunique se réalise bien avec des aiguilles 6 ou la taille nécessaire pour avoir 15 m x 19 rangs = 10 x 10 cm. Bon tricot!

26.05.2014 - 10:03

country flag Belinda Christ wrote:

Liebes Drops-Team, habe eine Frage zum Modell 100-8. Mir ist nicht klar, ob das gesamte Teil im Perlmuster gestrickt wird oder glatt mit jeweils 3 M Perlmuster am Reihenanfang und -ende? Beim Rückenteil fehlt die cm-Angabe (15 cm) wann die erste Masche zugenommen wird. Was heißt: "die 10M. gegen die Mitte in Perlmuster stricken". Bedeutet das "die mittleren 10M im Perlmuster stricken? Danke für Ihre Hilfe. Mit freundlichen Grüßen Belinda Christ

18.02.2013 - 10:51

DROPS Design answered:

Liebe Belinda, das Perlmuster wird nur im oberen Bereich gestrickt, die 3 M unten sind kraus re gestrickt Die Angaben wann wie viele M im Perlmuster gestrickt werden (ist am Rücken und Vorderteil unterschiedlich) finden Sie genau in der Anleitung. Die Angabe der 15 cm werden wir gleich ergänzen, das hat unsere Übersetzerin leider übersehen. Und die 10 M zur Mitte sind nicht die mittleren 10 M, es sind die 10 M am Rand zum Halsausschnitt und nicht zum Ärmel.

19.02.2013 - 09:43