First Snow Hat |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og háu hálsmáli, húfu og sokkum með norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 19-33 |
||||||||||||||||
PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1-M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 15, 21 og 28 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 10, 17, 25, 32 og 39 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kant í hálsmáli. -------------------------------------------------------- PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 119-133-145 (159-171) l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan á hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með ljós brúnn. Prjónið 1 umf br frá röngu (þær 4 kantlykkjur að framan á hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka). Prjónið síðan stroff þannig; frá réttu: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl /1 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf sléttprjón (kantur að framan er áfram prjónaður í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-14 (16-16) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 107-119-131 (143-155) l. Prjónið síðan M.1 með 4 kantlykkjum að framan á hvorri hlið. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið með ljós brúnn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið næstu umf þannig: prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 43-49-55 (61-67) l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 34-36-38 (38-38) l á sokkaprjóna nr 3,5 með ljós brúnn. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff = 1 l sl/1 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-2 (2-2) l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið síðan M.1. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón með ljós brúnn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6. (6.-6.) hverri umf 5-7-6 (8-10) sinnum = 40-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm (útaukningar eiga nú að vera búnar) fellið af 6 l mitt undir ermi = 34-38-42 (46-50) l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 163-183-203 (223-243) l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-11-7 (11-7) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 156-172-196 (212-236) l. Prjónið 0-1-2 (3-4) cm sléttprjón með ljós brúnn. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, M.2A yfir næstu 144-160-184 (200-224) l, M.2B (= 4 l) og endið á 4 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er l fækkað í M.2. Þegar M.2 er lokið eru 81-89-101 (109-121) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjur að framan. Þegar stroffið mælist 1 cm er öllum 3 l br fækkað í 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er öllum 2 l br fækkað til 1 l br = 45-49-55 (59-65) l á prjóni. Peysan mælist nú 28-30-34 (38-41) cm upp að öxl og haldið er áfram með 1 l sl/ 1 l br fyrir hálsmáli (kantar að framan eins og áður). Þegar allt stroffið mælist 6-7-7 (8-8) cm (munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagati á kant að framan þegar stroffið mælist 5-6-6 (7-7) cm) fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. -------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.3 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. --------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. Fitjið upp 88-94-98 (104-106) l á hringprjóna nr 3,5 með ljós brúnn. Prjónið stroff = 1 l sl/ 1 l br þar til stykkið mælist 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-14 (14-16) l jafnt yfir = 78-84-84 (90-90) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Setjið 6 prjónamerki í stykkið með 13-14-14 (15-15) l á milli prjónamerkja. Prjónið M.3A. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og ljós brúnn. JAFNFRAMT er l fækkað hægra megni við öll prjónamerkin með því að prjóna 2 l slétt saman (= 6 l færri í umf). Endurtakið úrtöku (með 1 l færri á milli skipta sem úrtakan er) að auki í annarri hverri umf 3 sinnum = 54-60-60 (66-66) l. Á eftir síðustu umf með úrtöku er prjónað M.3B. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og ljós brúnn JAFNFRAMT er l fækkað hægra megin við öll prjónamerki (= 6 l færri). Prjónið 1 umf án úrtöku og endurtakið síðan úrtöku = 42-48-48 (54-54) l. Prjónið M.3C. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og ljós brúnn til loka – JAFNFRAMT er aftur fækkað l hægra megin við öll prjónamerki. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-3-4 (4-5) sinnum = 24-30-24 (30-24) l á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem efir eru og herðið að. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með natur að þvermáli ca 4 cm. Saumið dúskinn efst á húfuna. -------------------------------------------------------- SOKKUR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.4 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) l eru eftir á prjóni. ÚRTAKA: Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. --------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Fitjið upp 34-34-40 (40-40) l á sokkaprjóna nr 3 með ljós brúnn. Prjónið stroff = 1 l sl, 1 l br í 4-4-5 (5-6) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið nú M.4. Eftir M.4 eru prjónaðar 4 umf sléttprjón með ljós brúnn – JAFNFRAMT í umf 1 (á eftir M.4) er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l. Eftir 4 umf sléttprjón er haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið 1 prjónamerki. Héðan er nú prjónuð HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 7-8-9 (9-10) nýjar l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar l með ljós brúnn – JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l mitt á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l mitt á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm til loka). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið l í annarri hverri umf: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Fóturinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk alveg eins. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (29)
Miriam Walchshäusl wrote:
Ich stricke das Modell in Größe 50/56. Die Maschenprobe stimmt, aber nach Beendigung der Jacke ist die Schulterpartie viel zu ausladend. Meiner Meinung nach müsste etwas vom Muster M2A und B weggelassen werden, da die cm-Angaben sonst nicht eingehalten werden können und das ganze Modell einen zu hohen Schulterbereich bekommt, der dann am Baby unschön absteht. Kann das sein? Und wenn ja, wo kann ich reduzieren, damit die Jacke passgenau wird? Vielen Dank. :)
28.10.2013 - 09:02DROPS Design answered:
Liebe Miriam, bitte kontrollieren Sie, ob Sie sich genau an die Anleitung gehalten haben. Diese Jacke wurde schon sehr oft nachgestrickt und hat eine gute Passform. In der kleinsten Grösse misst die Passe lediglich 11 cm.
29.10.2013 - 09:22Claudia wrote:
Hallo, ich stricke gerade die Mütze und mit ist das mit dem Abnehmen vor den Fäden nicht ganz klar. Soll ich immer 1 Runde abnehmen + 1 Runde glatt rechts mal 3, also ingesamt 6 Runden lang? Oder wie ist das zu verstehen? Danke :)
01.10.2013 - 17:26DROPS Design answered:
Liebe Claudia, es wird in jeder 2. R re neben den Markierungen abgenommen. Also eine Abnahmerunde und eine Runde ohne Abnahmen im Wechsel - so oft wdh wie in der Anleitung angegeben.
02.10.2013 - 09:10Katti wrote:
Hallo, ich habe eine Frage zum Norwegermuster. Bei mir ist es direkt nach dem Bündchen unsichtbar geworden, d.h. man sieht von rechts die dunkelbraunen Maschen gar nicht. Ich habe eine Hin-und eine Rückreihe mit zwei Fäden gestrickt. War das richtig oder kommt das Muster immer nur in der Hinreihe? Vielen Dank schon mal und viele Grüße Katti
26.06.2013 - 10:05DROPS Design answered:
Liebe Katti, ich vermute, Ihre Frage bezieht sich auf die Mütze, denn dort kommt das Muster gleich nach dem Bündchen - allerdings wird in Runden gestrickt: Sie stricken ja zunächt 1 Rd re (in der die Maschenzahl angepasst wird), das verhindert, dass das Muster in das Bündchen "rutscht".
28.06.2013 - 08:25Anna-Sophie wrote:
Ich meine natürlich die 4 Blendenmaschen... Ich hatte sie zu den 160 Maschen gezählt.. Daher meine Probleme... Danke für den Hinweis! :-)
04.06.2013 - 15:14Anna-Sophie wrote:
Ich meine natürlich die 4 Blendenmaschen... :-) Ich hatte sie zu den 160 gezählt... Daher meine Probleme..
04.06.2013 - 15:12Anna-Sophie wrote:
Oh.... Ich sehe gerade ich habe die 4 Maschen zwischen Blende und M2A überlesen. Kein Wunder, dass es bei mir nicht aufgehen wollte. Vielen Dank für den Hinweis! :-)
04.06.2013 - 15:09Margit wrote:
Oket med 172 m delas så här: 4 kantm. + 20 x M2A (160 m) + 4 m M2B + 4 kantm.= 172 m.
03.06.2013 - 18:34Anna-Sophie wrote:
Ich stricke diese Garnitur gerade für mein erstes Kind und dabei ist mir ein kleiner Zählfehler aufgefallen. Wenn man die Jacke für 6/9 Monate strickt, muss es in dem Arbeitsschritt "Passe" heißen: "M2A über die nächsten 164 M.," statt über die nächsten 160 M. Denn anschließend werden nur noch 4 M M2B und die Blende gestrickt. Wenn mann M2B aber nach 160 M strickt, verschiebt sich das ganze Muster. Ansonsten eine schöne und einfache Anleitung! Liebe Grüße
03.06.2013 - 14:05DROPS Design answered:
Liebe Anna-Sophie, die 160 M über M2A stimmen. Sie stricken 4 Blendenm, M2A über 160 M., M2B (= 4 M.) und 4 Blendenm = 172 M.
04.06.2013 - 10:09Isabel wrote:
Wunderschön !!!!!
03.06.2011 - 13:27