Strawberry Cheeks |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og háu hálsmáli, húfu og sokkum með norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 19-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 15, 21 og 28 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 10, 17, 25, 32 og 39 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli. ÚRTAKA (á við um miðjustykki á húfu): Fækkið lykkjum á eftir 1. lykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. Fækkið lykkjum á undan síðustu lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-133-145 (159-171) l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu (þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka). Prjónið síðan stroff þannig; frá réttu: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl /1 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf sléttprjón (kantur að framan er áfram prjónaður í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-14 (16-16) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 107-119-131 (143-155) l. Prjónið síðan M.1 með 4 kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið með litnum ljós bleikur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið næstu umf þannig: prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 43-49-55 (61-67) l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 34-36-38 (38-38) l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff = 1 l sl/1 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-2 (2-2) l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið síðan M.1. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón með litnum ljós bleikur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6. (6.-6.) hverri umf 5-7-6 (8-10) sinnum = 40-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm (útaukningu á nú að vera lokið) fellið af 6 l mitt undir ermi = 34-38-42 (46-50) l á prjóni. Leggið stykkið til hliðar. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 163-183-203 (223-243) l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-11-7 (11-7) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 156-172-196 (212-236) l. Prjónið 0-1-2 (3-4) cm sléttprjón með litnum ljós bleikur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, M.2A yfir næstu 144-160-184 (200-224) l, M.2B (= 4 l) og endið á 4 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er l fækkað í M.2. Þegar M.2 er lokið eru 81-89-101 (109-121) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjur að framan. Þegar stroffið mælist 1 cm er öllum 3 l br fækkað í 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er öllum 2 l br fækkað til 1 l br = 45-49-55 (59-65) l á prjóni. Peysan mælist nú 28-30-34 (38-41) cm upp að öxl og haldið er áfram með 1 l sl/ 1 l br fyrir hálsmáli (kantar að framan eins og áður). Þegar allt stroffið mælist 6-7-7 (8-8) cm (munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagati í kanti að framan þegar stroffið mælist 5-6-6 (7-7) cm) fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 75-81-85 (91-91) lausar l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan stroff (= 1 l sl/1 l br) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og 1 l sl innan við kantlykkju í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-8 (8-8) l jafnt yfir = 65-71-77 (83-83) l. Skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og prjónið M.3A með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir M.3A eru prjónaðar 4 umf í sléttprjóni með litnum ljós bleikur (kantlykkjur eru áfram prjónaðar í garðaprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú M.3B með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Eftir M.3B eru prjónaðar 4 umf sléttprjón (kantlykkjur í garðaprjóni) með ljós bleikur. Prjónið nú M.3C með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu og haldið áfram með nokkrar umf með litnum ljós bleikur að réttri lengd. Fellið nú af síðustu 23-25-28 (30-30) l í hvorri hlið (fellið af í byrjun á 2 næstu umf) = 19-21-21 (23-23) l eftir á prjóni (= miðjustykki aftan á húfu). Prjónið áfram í garðaprjóni yfir þessar l með litnum ljós bleikur – JAFNFRAMT eftir 3 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverjum cm alls 3 sinnum = 13-15-15 (17-17) l eftir á prjóni. Þegar mynstureining með garðaprjóni mælist 12-13-14 (15-15) cm fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman miðjustykki að aftan að hliðarstykkjum í hvorri hlið – saumið kant í kant í l með garðaprjóni svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið upp frá réttu ca 61-85 l (deilanlegar með 2 + 1) meðfram neðri kanti á húfu á prjóna nr 3,5 með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umf er prjónuð þannig (frá réttu): 1 l sl, * 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, þær eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan 2 umf í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fellið síðan af. SNÚRA: Klippið 3 þræði með litnum ljós bleikur ca 2 metra, tvinnið þá vel saman, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman, hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferð neðst á húfu. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 34-34-40 (40-40) l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós bleikur. Prjónið stroff = 1 l sl, 1 l br í 4-4-5 (5-6) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið nú M.4. Eftir M.4 eru prjónaðar 4 umf sléttprjón með litnum ljós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 (á eftir M.4) er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l. Eftir 4 umf sléttprjón er haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið 1 prjónamerki. Héðan er nú prjónuð HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 7-8-9 (9-10) nýjar l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar l með litnum ljós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm til loka). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Fóturinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Lone wrote:
Hov jeg mente M1 og ikke m2
14.07.2018 - 17:08DROPS Design answered:
Hei Lone. Du skal strikke M.1 over 123 masker (131 – 8 stolpemasker). Hver M.1 går over 12 masker, så du vil få 10 hele rapporter av diagrammet (=120 masker), også kan du strikke de første 3 maskene av M.1 over de siste 3 maskene på omgangen. Altså du begynner på den 11 rapporten av M.1 over de siste maskene. God fornøyelse.
19.07.2018 - 08:57Lone wrote:
Jeg er ved at lave jakken i 12-18 md. Jeg skal lave m2 men får det ikke til at passe ? Hvis jeg slutter af som diagram er det 3 m rosa og det passer ikke med de masker jeg har.
14.07.2018 - 11:49Anneli wrote:
M.2A över de följande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm. Fortsätt mönstret så, Jag stickar lilla storleken, när jag kommer fram till mönstret är det 156 maskor och när jag stickat 144 m med M.2A är det 12 maskor kvar inkl kanten då jag ska sticka M.2B vilket står att det ska vara fyra maskor men det blir ju fyra maskor över? 156 - 144 = 12 maskor 12 - 4 (kantm) = 8 .. och det står att det ska vara fyra??
08.02.2015 - 10:18DROPS Design answered:
Hej "Nästa v stickas så här från rätsidan: 4 framkantsm, M.2A över de följande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm." Du glömde att räkna med de första 4 framkantsmaskorna. 4+144+4+4 =156 m. Lycka till!
15.05.2015 - 11:01GullBritt wrote:
M.2A över de följande 144-160-184 (200-224) m, M.2B (= 4 m) och avsluta med 4 framkantsm. Fortsätt mönstret så, SAMTIDIGT som det minskas m i M.2. När M.2 är färdigt är det 81-89-101 (109-121) m kvar på st. Det står bara M2 är det både A och B som skall stickas eller bara M2A??
26.07.2014 - 14:34DROPS Design answered:
Hej GullBritt. Der er beskrevet i starten hvor du skal strikke A og B. Du fortsætter derefter over begge M.2'er som beskrevet.
07.08.2014 - 12:28Martina wrote:
Ich habe 2 unklarheiten betreffend ärmel: 1) nach 5 cm 2 maschen aufnehmen = nach insgesamt 5 cm oder nach 5 cm glatt stricken 2) die aufnahme soll jede 6. runde wiederholt werden, total 8 mal (grösse 2 jahre), laut anleitung hat man dann am ende insgesamt 46 maschen. 2 aufnahmen x 8 sind aber 16 zusatzmaschen, bei grösse 2 jahre ergibt das 36 + 18 = 54 maschen. Oder muss man nur beim ersten mal 2 maschen aufnehmen und danach 8 x 1 masche?
24.03.2014 - 22:30DROPS Design answered:
Liebe Martina, zu Frage 1: die Maßangaben beziehen sich immer auf die Anschlagkante, wenn nichts anderes angebenen ist, also nach insgesamt 5 cm. Zu Frage 2: Nach dem Bündchen haben Sie ja 36 M, dann nehmen 8x je 2 M zu (= 16 M zugenommen), 36 + 16 = 52 M, ganz am Ende ketten Sie 6 M an der unteren Ärmelmitte ab = 46 M. Viel Spaß beim Weiterstricken!
25.03.2014 - 11:19Anna wrote:
Garnmängden stämmer inte alls för mig. Stickar största storleken och har just börjat på mitt femte nystan i huvudfärgen, och då har jag nyss börjat på den mönstrade delen av oket.
01.06.2011 - 12:23Anna-Karin wrote:
Ok, trodde halsresåren skulle stickas med stickor 3,5 även på denna.
13.07.2010 - 09:27DROPS Design wrote:
I detta mönster börjar du med st 3,5 och fortsätter med 4,5 enligt mönster. Lycka till!
13.07.2010 - 09:04Anna-Karin wrote:
Rättelsen gjord på bruna koftan ang byte till st 3,5 borde vara med på denna också.
12.07.2010 - 15:41