Tripoli |
|
|
|
Heklað bikini úr DROPS Muskat Soft eða DROPS Muskat. Stærð XS - XXL/XXXL
DROPS 136-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR FL-UMFERÐ: Allar umf byrja með 1 ll áður en heklað er áfram með fl í hverja l. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fl í hvorri hlið í sömu umf þannig: Heklið 1 fl, * setjið heklunálina í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-*, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja l þar til eftir eru 3 l í umf, endurtakið úrtöku í næstu 2 umf og heklið 1 fl í síðustu l. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l í hvorri hlið í sömu umf með því að hekla 2 l í fyrstu og síðustu l í umf (heklið 1 fl í hverja og eina af hinum fl ). MYNSTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu l í umf, * hoppið yfir 2 l, 5 st í næstu l, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf. Endið með 1 fl í síðustu l, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, 2 st í fyrstu fl í umf, * 1 fl í miðju af þeim 5 st frá fyrri umf, 5 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf. Endið með 1 fl í miðju af þeim 5 st frá fyrri umf, 3 st í síðastu fl í umf, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrsta st í umf, * 5 st í næstu fl, 1 fl í miðju af þeim 5 st frá fyrri umf *, endurtakið frá *-* út umf. Endið með 1 fl í 3. ll í byrjun á fyrri umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BIKINIBUXUR: Byrjið efst á framstykki og heklið í eitt stykki að efri hluta bakstykkis. Helkið 45-45-51-51-51-57 ll með heklunál nr 4 með Muskat Soft eða Muskat. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 3. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af þeim næstu ll út umf = 43-43-49-49-49-55 fl (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 6 + 1), snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR FL-UMFERÐ. Heklið nú fl-umf fram og til baka með 1 fl í hverja fl. JAFNFRAMT er fækkað um 1 fl í hvorri hlið í hverri umf alls 0-0-6-6-6-12 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 15-15-12-12-12-9 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 13 fl í öllum stærðum (stykkið mælist ca 15 cm). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram að hekla fl-umf með 1 fl í hverja fl. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm byrjar bakstykki og héðan er nú mælt. Aukið út um 1 fl í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 3 sinnum í öllum stærðum, í hverri umf alls 8-8-10-10-10-10 sinnum og að lokum aftur í annarri hverri umf alls 13-13-14-14-14-17 sinnum = 61-61-67-67-67-73 fl (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 6 + 1). Haldið áfram með fl-umf yfir allar fl þar til bakstykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, klippið ekki þráðinn frá. MYNSTURKANTUR og BÖNDUM: Heklið umf 1-3 í MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, ekki klippa þráðinn frá. Heklið nú bönd til þess að hnýta með þannig: Heklið 2 ll, heklið 1 fl í fyrstu ll sem var hekluð, * heklið 1 ll, heklið 1 fl í fyrri fl *, endurtakið frá *-* þar til bandið mælist ca 30-40 cm, klippið frá og festið enda. Heklið annað band eins og festið í hinna hliðina við mynsturkant. Heklið mynsturkant og tvö bönd alveg eins á framstykki. BIKINITOPPUR: Stykkið er heklað í 2 hlutum. Heklið 3 ll með heklunál nr 4 með Mustkat Soft eða Muskat og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrsta ll í hringinn, 2 fl í hverja og eina af þeim 2 næstu ll í hringinn (= 6 fl), setjið prjónamerki í og látið það fylgja með áfram uppúr. Heklið nú í hringinn til að forðast skil í byrjun umf. UMFERÐ 2: * Heklið 2 fl í hvora af þeim 2 fyrstu fl, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (= 4 fl með 1 ll á milli). UMFERÐ 3: * Heklið fl í hverja af þeim 4 fyrstu fl, um ll er hekluð 1 fl + 1 ll (= 1 horn) + 1 fl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum ( nú eru 3 horn með 6 fl í hverju horni). UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl, um ll í hverju horni er hekluð 1 fl + 1 ll + 1 fl ( nú eru 8 fl á milli horna). UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl, um ll í horni er hekluð 1 fl + 1 ll + 1 fl ( nú eru 10 fl á milli horna). Haldið áfram með útaukningar þar til stykkið mælist ca 8-8½-9-9½-10-10½ cm frá miðju og út (eða að óskaðri lengd). Síðasta umf er hekluð þannig: Heklið eins og áður með fl og útaukningu meðfram 2 hliðunum (meðtalin eru öll 3 hornin), nú er heklað meðfram síðustu hliðinni þannig: Heklið 1 hst í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* fram að horni og endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umf (= gat í umferð). Klippið frá og festið enda. Heklið annað stykki eins. BAND: Heklið 2 ll, heklið 1 fl í fyrstu ll sem var hekluð, * heklið 1 ll, heklið 1 fl í fyrri fl *, endurtakið frá *-* þar til bandið mælist ca 110-120-140-150-160-180 cm, klippið frá og festið enda. Þræðið bandið upp og niður í gegnum götin á báðum bikinihlutunum. Heklið eins band ca 180-185-190-195-200-210 cm. Þræðið endann inn frá röngu í gegnum hornið efst á bikinihlutanum og síðan inn frá réttu gegnum hornið efst á örðum bikinihlutanum (þessi „lykkja“ fer aftan við hnakka þegar flíkin er mátuð). Endarnir eru bundnir saman við hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Tina wrote:
Who makes these patterns?
09.01.2012 - 02:58Lucia wrote:
Semplicemente stupendo!
06.01.2012 - 12:13Vivi wrote:
Virkelig ikke pæn
03.01.2012 - 14:29Cecile wrote:
Niet doen! Wel retro maar zo fout dat het ook niet meer leuk is!
23.12.2011 - 14:24Kim wrote:
Love it. Is there anyway it can be made to have a little padding in the top for post breastfeeding mummies?
17.12.2011 - 15:13Clausen wrote:
Kan nok ikke blive grimmere
12.12.2011 - 23:29Marechal wrote:
Bonjour un peu plus de maillot de bain adultes et enfants au crochet par exemples serait le bien venue exemple un 2 piece relie en sont milieu merci
09.12.2011 - 16:56