Christel |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Lima með berustykki. Stærð S - XXXL
DROPS 140-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UMFERÐ MEÐ FL (FRAM OG TIL BAKA): Allar umf með fl byrja á 1 ll (ekki talin með sem 1. fl), heklið 1 fl í hverja l umf hringinn, snúið. MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 5 + 1): UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 2 ll, 1 kúla með 4 tbst, 2 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 3 fl um 1. ll-boga, hoppið yfir 1. kúlu, 2 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 2 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður). MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 4+1): UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.2 þannig: * Heklið 1 ll, heklið 1 kúlu með 3 tbst, 1 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í A.2 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf endið umf með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður). ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að hekla 2 l í sömu l. UMFERÐ MEÐ ST (FRAM OG TIL BAKA): Allar umf með st eru heklaðar frá réttu. Allar umf með st byrja á 3 ll (= 1. st), hoppið yfir 1. fl frá fyrri umf, heklið 1 st í hverja fl út umf, snúið. MYNSTUR A.3: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 umf með st. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 umf með fl. UMF MEÐ FL (HRINGINN): Allar umf með fl byrja með 1 ll (ekki talin með sem 1. fl), heklið 1 fl í hverja l umf hringinn, endið með 1 kl í 1. fl. ÚRTAKA – FL: Heklið 1 fl, geymið að draga þráðinn í gegn alla leið (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næstu fl – þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni, nú hefur fækkað um 1 fl yfir 2 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 157-172-187-202-222-242 LAUSAR ll með Lima með heklunál nr 4,5, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 156-171-186-201-221-241 fl, snúið (umf 1 = rétta). Heklið nú MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan = 31-34-37-40-44-48 mynstureiningar + 1 tbst. Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 156-171-186-201-221-241 fl í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið A.1 alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er heklað þannig: Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, * 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 fl um síðasta ll-boga = 125-137-149-161-177-193 fl, snúið. Heklið nú MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan! Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 125-137-149-161-177-193 fl í umf. Heklið A.2 alls 5 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er aukið út um 10-10-12-14-16-18 fl jafnt yfir - LESIÐ ÚTAUKNING = 135-147-161-175-193-211 fl. Nú mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm. Heklið nú MYNSTUR A.3 – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í 1. umf með fl frá röngu er aukið út um 9-9-11-13-15-17 l jafnt yfir = 144-156-172-188-208-228 fl. Heklið A.3 alls 6 sinnum (síðasta umf = 1 umf með fl frá röngu), nú mælist stykkið ca 37-37-37-40-40-40 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki 36-39-43-47-52-57 fl inn frá hvorri hlið í síðustu umf með fl (= 72-78-86-94-104-114 fl á milli prjónamerkja á bakstykki). KANTUR Á ERMI: Stykkið er heklað í hring. Heklið 50-52-56-60-64-66 LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með Lima og tengið í hring með 1 kl í 1. ll í fyrstu ll. Umferð 1 er hekluð þannig: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja ll, endið með 1 kl í 1. fl í byrjun umf (= miðja undir ermi) = 50-52-56-60-64-66 fl. Haldið áfram hringinn með UMFERÐ MEÐ FL – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið við miðju 12-12-12-14-16-16 l undir ermi = 38-40-44-46-48-50 fl á milli prjónamerkja á ermi. Geymið stykkið og heklið annan kant til viðbótar á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið 1 nýtt prjónamerki við miðju á fram – og bakstykki, héðan er nú mælt! Umferð 1 er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja og eina af fyrstu 30-33-37-40-44-49 l á hægra framstykki, heklið 1 st í hverja af þeim 38-40-44-46-48-50 l frá fyrri kant á ermi (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir þær 12-12-12-14-16-16 l á milli prjónamerkja við miðju undir ermi), hoppið yfir 12-12-12-14-16-16 l við miðju á hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 6-6-6-7-8-8 l hvoru megin við prjónamerki), heklið 1 st í hverja af næstu 60-66-74-80-88-98 l (= bakstykki), heklið 1 st í hverja af 38-40-44-46-48-50 l frá seinni kant á ermi, hoppið yfir 12-12-12-14-16-16 l á hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 6-6-6-7-8-8 l hvoru megin við prjónamerki), heklið 1 st í hverja af síðustu 30-33-37-40-44-49 l á vinstra framstykki = 196-212-236-252-272-296 st. Haldið áfram fram og til baka með A.3 eins og áður – JAFNFRAMT Í 3.- 4.- 4.- 4.- 5.- 5. hverri umf með fl frá röngu, fellið af 32-36-40-44-48-54 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA - FL. Endurtakið úrtöku í 6.- 7.- 7.- 7.- 8.- 8. hverri umf með fl síðan í 8.- 9.- 9.- 9.- 10.- 11. hverri umf með fl, að lokum í 9.- 10.- 11.- 11.-12.- 13. hverri umf með fl = 68-68-76-76-80-80 fl eftir (síðasta umf = ranga), berustykkið mælist nú ca 15-17-18-18-20-22 cm frá prjónamerki. Klippið ekki frá. HÁLSMÁL: Heklið nú hækkun aftan við hnakka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið efst á hægra framstykki, heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* kringum hálsmál, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl um hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 12 l (= 6 fl + 6 ll) á hægra framstykki, snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl þar til eftir eru 12 l á vinstra framstykki, snúið. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll í hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 18 l að kanti á hægra framstykki (= 9 fl og 9 ll), snúið. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 18 l að kanti á vinstra framstykki, snúið. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 24 l fram að kanti á hægra framstykki (= 12 fl og 12 ll), snúið. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl þar til eftir eru 24 l fram að kanti á vinstra framstykki. Klippið ekki frá. Heklið nú 1 hring með fl í hverja fl og í hverja ll, heklið nú umf með fl þar til listinn með fl mælist 2 cm við miðju að framan, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið frá réttu ca 90-110 fl meðfram kanti við miðju að framan á hægra framstykki (meðtalin er kantur við hálsmál). Heklið nú 1 umf fl frá röngu – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 92-94-98-102-104-108 fl. Setjið 1 prjónamerki í skiptingar á milli A.2 og A.3. Í næstu umf frá réttu er hekluð fl – JAFNFRAMT eru 4 hnappagöt hekluð jafnt yfir á milli prjónamerkis og efstu brún á hálsmáli (1 hnappagat = heklið 2 ll, hoppið yfir næstu fl) – síðasta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá efstu brún. Í næstu umf eru heklaðar 2 fl í hvern ll-boga fyrir hnappagati. Heklið umf með fl þar til kanturinn mælist ca 2 cm, klippið frá og festið enda. Heklið kant meðfram vinstra framstykki alveg eins, nema án hnappagata. Saumið 4 tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (53)
Marylene wrote:
Jolie
05.07.2012 - 09:20Rosmarie wrote:
Zeichnet sich durch sein schlichtheit aus zudem liebe ich rot. als übergang zwischen sommer und herbst.
29.06.2012 - 13:05Gitte Skovholm wrote:
Den er rigtig rigtig sød.Håber den kommer med mønster.
27.06.2012 - 19:36Nathalie wrote:
Tres facile et super joli .on peut meme le faire avec le cotton litght pour l ete ?
18.06.2012 - 22:12Susanne wrote:
I bladet med den. Den skal strikkes
08.06.2012 - 19:38Vtana wrote:
I'm not a fan of crochet, I do crochet for some projects, but I gotta say, this one so cool! I voted for it, so please public it! :D
07.06.2012 - 22:21Anke wrote:
Ein absoluter Hingucker!
06.06.2012 - 16:06Heidi wrote:
Tosi kaunis liivi!
05.06.2012 - 11:40Magda wrote:
Wie schon gesagt, diese Häkelweste ist sehr schick und trägt nicht auf! Die möchte ich unbedingt nachhäkeln
03.06.2012 - 17:26Andrea wrote:
Endlich mal ein gehäkeltes Kleidungsstück das auch wirklich schick ist. Ich liebe das Häkeln, aber meist tragen gehäkelte Sachen auf. Diese Weste nicht.
02.06.2012 - 17:32