Little Oliver |
|
|
|
Hekluð jakkapeysa með opi og kanti með tölum framan við hálsmál úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 3-12 ára
DROPS Children 24-28 |
|
HEKLLEIÐBEININGAR: Í öllum umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Í öllum umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl með ljós grágrænn. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st með ljós grágrænn. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár. Endurtakið umf 1 til 4. MYNSTUR Á ERMI: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár. UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár. UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hvern st með ljós grágrænn. UMFERÐ 8: Heklið 1 st í hverja fl með ljós grágrænn. Endurtakið umf 1 til 8. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman. Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. -------------------------------------------------------- PEYSA: Svo að áferðin verði eins í öllu stykkinu, heklið öll stykkin fram og til baka og saumið saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 67-71-76-81-85 ll með gráblár með heklunál nr 4. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja og eina af næstu 2-6-4-2-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 58-62-66-70-74 fl (fyrsta ll = 1 fl). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið áfram með MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm = 62-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist ca 27-30-33-36-39 cm (passið uppá að næsta umf er umf með fl), fellið af fyrir handveg þannig: Heklið kl yfir 4 fyrstu st, heklið nú fl þar til 4 st eru eftir, snúið við. * Heklið 3 ll (= 1 st), heklið nú 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið st þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman, síðan 1 st í síðustu f. Snúið við og heklið 1 umf með fl yfir allar l til baka, snúið við *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 46-50-54-58-62 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 39-43-47-51-55 cm. Heklið nú 2 umf með mynstri eins og áður einungis yfir 12-13-14-16-17 l í hvorri hlið (miðju 22-24-26-26-28 l = hálsmál). Klippið frá. FRAMSTYKKI: Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 27-30-33-36-39 cm (stillið af þannig að næsta umf er umf með fl) = 62-66-70-74-78 st. Nú byrjar úrtaka fyrir handveg – jafnframt er stykkinu skipt við miðju að framan fyrir op. STYKKI 1: Heklið kl yfir 4 fyrstu st, síðan eru heklaðar fl yfir næstu 29-31-33-35-37 st * snúið við og heklið st til baka þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið nú 1 st í síðustu fl. Snúið við og heklið fl til baka yfir alla st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Nú hefur fækkað um alls 8 l fyrir handveg og eftir eru 25-27-29-31-33 l í umf. Heklið nú áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 35-38-42-45-49 cm (stillið af að næsta umf byrjar frá hlið), byrjið úrtöku við hálsmál. Nú er einungis heklað yfir fyrstu 17-18-19-21-22 l. Snúið og heklið til baka – jafnframt eru heklaðar 4 fyrstu l við hálsmál saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA! Í næstu umf eru 2 síðustu l við hálsmál heklaðar saman, endurtakið þessa úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 12-13-14-16-17 l eftir fyrir öxl. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 40-44-48-52-56 cm, klippið frá. STYKKI 2: Byrjið við miðju að framan og heklið 1 fl á bakstykki í hverja og eina af 4 síðustu l frá stykki 1 (þannig að kantur fyrir hnappagöt liggi yfir kant fyrir tölur neðst niðri). Heklið nú fl fram þar til 4 st eru eftir, snúið við og heklið til baka. Heklið nú þessa hlið eins og stykki 1. ERMI: Ermin er hekluð ofan frá og niður. Heklið 32-35-38-43-46 ll með heklunál nr 4 með gráblár. Fyrsta umf er hekluð þannig. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja og eina af 2-1-0-1-0 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu ll*, endurtakið frá *-* út umf = 24-26-28-32-34 fl í umf (þetta er umf 1 í MYNSTUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan). Haldið nú áfram með rendur eins og útskýrt er í MYNSTUR Á ERMI. JAFNFRAMT er aukið út í hvorri hlið í hverri umf með st þannig: Aukið út í hverri umf með st með því að hekla 2 st í l innan við síðustu l í hvorri hlið (= 1 st fleiri í hvorri hlið – ATH: í umf með fl er hekluð 1 fl í hvern st án þess að auka út). Haldið svona áfram með útaukningu þar til 38-40-42-46-48 l eru eftir í umf (stillið af að næsta umf er umf með fl). Klippið frá og heklið þannig: Heklið 4 lausar ll, heklið 1 fl í hverja eina af 38-40-42-46-48 st í umf og heklið síðan 6 lausar ll, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja eina af 2 næstu ll, heklið 1 st í hverja eina af þeim 38-40-42-46-48 fl í umf og endið á 1 st í hverja og eina af 4 ll í lok umf = 46-48-50-54-56 st í umf. Setjið 1 prjónamerki yst í aðra hliðina á stykki. Ermakúpan er nú hekluð og heklið nú niður ermina þannig: Haldið áfram með MYNSTUR Á ERMI í röndum eins og áður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 st/fl í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st/fl í hvorri hlið saman – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4.- 4.- 5.- 5.- 5. hverri umf 5-6-6-7-8 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-7-8-9 l færri) = 34-34-36-38-38 l í umf. JAFNFRAMT þegar ermin mælist ca 30-34-39-43-47 cm – stillið af eftir 1 rönd með ljós grágrænn, heklið með gráblár til loka. Þegar stykkið mælist 35-39-43-47-51 cm klippið frá. Heklið aðra ermi alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma, hliðarsauma og ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan ermar í fram- og bakstykki. Saumið tölur í hægra stykki við miðju að framan og hneppið í gegnum l. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið nú kant meðfram opi að framan, í kringum hálsinn og niður meðfram hinni hliðinni á opi. Byrjið frá réttu og heklið með gráblár með heklunál nr 4 þannig: Heklið 1 fl í 1. fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* passið uppá að kanturinn verði jafn og fallegur. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (55)
Kathrin wrote:
Hallo! Ich habe eine Frage zum Ärmel in dieser Anleitung! Muß man nach den ersten Zunahmen in den Staebchenreihen nicht erst einige Zentimeter im Muster Häkeln bis die Armkugel ausgearbeitet wird?In der Anleitung arbeitet man diese schon nach den ersten Zunahmen aus. Habe ich da einen Denkfehler?MfG! Kathrin
11.07.2013 - 07:44DROPS Design answered:
Liebe Kathrin, die Ärmel werden ja von oben nach unten gehäkelt und zu Beginn ist man also ganz oben an der Armkugel. Sie beginnen gleich mit den Aufnahmen, wie Sie auch bis ganz zum Schluss Abnahmen machen, wenn Sie Ärmel von unten nach oben häkeln.
12.07.2013 - 11:24Chiara wrote:
La spiegazione è chiarissima, grazie. Utilizzerò questo calcolo anche per altri modelli. Buonasera.
03.07.2013 - 20:51Chiara wrote:
Vorrei realizzare questo modello taglia 3-4 anni con il filato Muscat. Quanti gomitoli devo acquistare? Grazie, saluti.
03.07.2013 - 17:30DROPS Design answered:
Buonasera. Bisogna calcolare il n° complessivo di metri con il filato indicato e dividerlo per i metri di un gomitolo del filato scelto. Per il colore grigio blu: 5 gomitoli merino extrafine x 105 metri = 525 m : 100 m (= metri in 1 gomitolo di muskat) = 5,25 , quindi 6 gomitoli. Colore verde / grigio chiaro: 4 gomitoli x 105 m = 420 m : 100 m = 4,20 quindi 5 gomitoli. La tensione con il Muskat deve però essere la stessa di quella indicata nel modello. Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!
03.07.2013 - 18:59Alike wrote:
Super trui voor mij stoere vent. leuk voor de komende winter. En Merino is heerlijk om te dragen
28.06.2013 - 13:24AnnaKarin wrote:
Färdigt mått på denna är mindre än på andra mönster ni har i samma storlek, ska de vara så?
19.06.2013 - 15:19